„Þess í stað…“ Ragnhildur Sverrisdóttir skrifar 24. júlí 2010 06:00 Í grein í Fréttablaðinu í gær, föstudag, um Björgólf Thor Björgólfsson og fjárfestingar hans er m.a. fjallað um kaup eignarhaldsfélagsins Samson á Landsbankanum. Þar vísar blaðamaður til þeirra raka stjórnmálamanna að Björgólfsfeðgar kæmu með peninga til landsins. Í greininni er því hins vegar bætt við að „þess í stað“ hafi þeir fengið lán hjá Búnaðarbankanum fyrir kaupunum. Margsinnis hefur komið fram að greiðslan og lánið voru í fullu samræmi við kaupsamning íslenska ríkisins og Samsonar sem undirritaður var 31. desember 2002. Í þeim samningi setti seljandi, íslenska ríkið, engin skilyrði um hvar kaupandi gæti tekið lán fyrir hluta kaupanna. Hins vegar var gerð krafa um að eigið fé kaupanda væri ekki lægra en 35%. Samson greiddi fyrir 45,8% hlut sinn í Landsbanka Íslands hf. eins og hér segir: - Í febrúar 2003 greiddu eigendur með eigin fé erlendis frá 48,1 milljón bandaríkjadala. - Í apríl 2003 greiddu eigendur 48,3 milljónir bandaríkjadala með láni frá Búnaðarbanka Íslands hf. - Í desember 2003 greiddu eigendur með eigin fé erlendis frá 42,7 milljónir bandaríkjadala. Heildargreiðslur námu samtals 139,0 milljónum bandaríkjadala, þar af voru 90,8 milljónir fjármagnaðar af eigendum eða 65%. Þær voru greiddar að fullu inn á reikning ríkissjóðs Íslands í Seðlabanka Bandaríkjanna í New York í árslok 2003 og átti þá sér stað fullnaðaruppgjör vegna kaupa Samsonar á hlut ríkisins í Landsbankanum. Lánið í Búnaðarbankanum var greitt að fullu upp snemma árs 2005, eins og sýnt hefur verið fram á með gögnum. Svo öðru sé haldið til haga, sem sífellt er ranglega farið með í þessu sambandi: Samson tók annað lán í bankanum, sem þá var orðinn einkabankinn Kaupþing, í árslok 2005. Björgólfur Thor og faðir hans voru í persónulegum ábyrgðum fyrir því. Það lán var ógreitt við fall bankanna, en hefur nú verið gert upp sem hluti af skuldauppgjöri Björgólfs Thors. Eins og þessi upprifjun sýnir fram á, þá fer því afskaplega fjarri að kaupin hafi verið fjármögnuð með láni frá Búnaðarbanka og Samson ekki flutt fé til landsins. Nú er tími til kominn að þessi síendurtekna vitleysa hverfi úr fréttaflutningi af málinu. Annað sem nefnt er í greininni er að Björgólfur Thor hafi undanfarið verið milli tannanna á fólki vegna „tæplega helmings hlutar hans í Verne Holding“. Fyrir margt löngu kom fram, að Björgólfur Thor á engan helmingshlut þarna lengur. Fjárfestingarfélag hans, Novator, stofnaði félagið með bandaríska fjárfestingarsjóðnum General Catalyst. Sá hlutur þynntist út vegna eignarhluta lykilstjórnenda og var um mitt ár í fyrra 38%. Í janúar sl. bættist breski góðgerðarsjóðurinn Wellcome Trust í hópinn og varð langstærstur hluthafa og þar með minnkaði hlutur þeirra sem fyrir voru verulega. Vegna mikillar umræðu, jafnvel á sjálfri löggjafarsamkundunni, um að óeðlilegt væri að Björgólfur Thor nyti nokkurs konar fyrirgreiðslu í viðskiptum ákvað hann að afsala sér þeim ríkisstyrk sem felst í lögfestingu fjárfestingarsamning um gagnaverið Verne Global, að því er snertir fjárfestingarfélag hans. Novator fær því enga fyrirgreiðslu af hálfu ríkisins vegna uppbyggingar gagnaversins, sem mun fjárfesta fyrir um 20 milljarða króna hér á landi fram til ársins 2013. Þá lýsti hann því jafnframt yfir að hann myndi ekki auka hlut sinn í félaginu eða taka leiðandi hlutverk við stjórn þess. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Guðbjörg verður áfram gul Reynir Traustason Skoðun Hinir „hræðilegu“ popúlistaflokkar Einar G. Harðarson Skoðun Umbúðir, innihald og hægfara tilfærsla kirkjunnar Hilmar Kristinsson Skoðun Stingum af Einar Guðnason Skoðun Netverslun með áfengi og velferð barna okkar Ingibjörg Isaksen Skoðun Jólapartýi aflýst Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Við gerum það sem við sögðumst ætla að gera Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Kvennaár og hvað svo? Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir Skoðun Hafnarfjörður í mikilli sókn Orri Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Netverslun með áfengi og velferð barna okkar Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Við gerum það sem við sögðumst ætla að gera Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Stingum af Einar Guðnason skrifar Skoðun Guðbjörg verður áfram gul Reynir Traustason skrifar Skoðun Kvennaár og hvað svo? Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Hinir „hræðilegu“ popúlistaflokkar Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Hafnarfjörður í mikilli sókn Orri Björnsson skrifar Skoðun Jólapartýi aflýst Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Umbúðir, innihald og hægfara tilfærsla kirkjunnar Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Hættuleg þöggunarpólitík: Hvernig hræðsla og sundrung skaða framtíð Íslands Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Jólareglugerð heilbrigðisráðherra veldur usla Alma Ýr Ingólfsdóttir,Telma Sigtryggsdóttir,Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Verðmæti dýra fyrir jörðina er ekki mælanlegt í krónum Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið grípur of seint inn: Um börn og unglinga í vanda, úrræðaleysi og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar Kristín Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Staða eldri borgara á Íslandi í árslok 2025 Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Landhelgisgæslan er óábyrg Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Nýtt ár, nýr veruleiki, nýtt samtal Kristinn Árni Hróbjartsson skrifar Skoðun Kolefnissporið mitt Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Fullkomlega afgreitt þjóðaratkvæði Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Á atvinnuvegaráðherra von á kraftaverki? Björn Ólafsson skrifar Skoðun ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen skrifar Skoðun Hitamál - Saga loftslagsins Höskuldur Búi Jónsson skrifar Skoðun Von, hugrekki og virðing við lok lífs Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hverjum þjónar kerfið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Vínsalarnir og vitorðsmenn þeirra Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun RÚV: Þú skalt ekki önnur útvörp hafa! Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Áramótaannáll 2025 Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Vonin sem sneri ekki aftur Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ljósadýrð loftin gyllir Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hættuleg þöggunarpólitík: Hvernig hræðsla og sundrung skaða framtíð Íslands Nichole Leigh Mosty skrifar
Skoðun Jólareglugerð heilbrigðisráðherra veldur usla Alma Ýr Ingólfsdóttir,Telma Sigtryggsdóttir,Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Þegar kerfið grípur of seint inn: Um börn og unglinga í vanda, úrræðaleysi og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar Kristín Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar