Til hamingju, tónlist Sigursveinn Magnússon skrifar 27. febrúar 2010 06:00 Rifjaði upp nýlega tónleika þar sem unglingar höfðu flutt 9. sinfóníu Beethovens í tvígang fyrir fullu húsi hér í Reykjavík. „Hvað er að gerast?" sagði hann. „Fyrir aðeins fáeinum áratugum, þótti það stórvirki að Sinfóníuhljómsveit Íslands og Söngsveitin Fílharmónía skyldu ráða við að flytja þetta öndvegisverk og nú gera börnin okkar sér leik að því að flytja þessa stóru hljómkviðu. Eru þau svona miklu gáfaðri og tónvissari en við, foreldrarnir? Svo fór ég að hugsa málið," hélt hann áfram. „Hvaðan kemur allur sá skari æskufólks sem er skapandi í músík. Af hverju blómstra hátíðir á borð við Síðan fór ég suður, Icelandic Airwaves, Músíktilraunir, Skrekkur, Söngvakeppni skólanna, Evrovision, Ungsveit Sinfóníunnar, Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna, Norðurlandameistarar í djassi, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Ungfónían, Kammersveit Reykjavíkur, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Íslenska óperan, ekki er hér rúm til að nefna ótal hópa sem kenndir eru við „krúttkynslóð" og flytja tónlist víða um heim. Tónlistarhátíðir: Þjóðlagahátíð á Siglufirði, Myrkir músíkdagar, Berjadagar, Reykholtshátíð, Sumartónleikar í Skálholti, Djasshátíð í Reykjavík, Djasshátíð Austurlands, Listasumar á Akureyri, Tónlistarstarf á Hólum í Hjaltadal, á Klaustri, Við Djúp, Kirkjulistahátíð, Listahátíð í Reykjavík, þúsundir syngjandi radda í skólum og kirkjum, sem lyfta andanum og telja í okkur kjark á tímum erfiðleika og andstreymis." Svona lét vinur minn dæluna ganga og geystist yfir þetta víða svið. En hvað hefur breyst? - Ekkert sprettur af engu. - Árið 1966, er stórvirki Beethovens var fyrst flutt og Ísland kvaddi sér hljóðs á þessu sviði heimsmenningarinnar, var blekið rétt að þorna af nýrri lagasetningu Gylfa Þ. Gíslasonar um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, en þar með hófst menningarsókn, sem enn sér ekki fyrir endann á. Það var þetta sem félagi minn reyndi að átta sig á. Allt of fáir sjá þessa atburðarás í samhengi. Fyrir tilstilli lagasetningar Gylfa og síðar Vilhjálms Hjálmarssonar urðu til tækifæri til menntunar í hljóðfæraleik og söng og með árunum varð til fjöldahreyfing sem ber uppi þessa miklu grósku. Hvert væri menningarstig okkar ef framsýni þessara frumkvöðla á hinu menningarpólitíska sviði hefði ekki notið við? Tónlistarskólar um allt land helga sér laugardaginn 27. febrúar til að kynna starf sitt. Á heimasíðum þeirra má fræðast nánar um dagskrá á hverjum stað. Sækjum þá heim og gleðjumst með kennurum og nemendum yfir góðum árangri. Til hamingju með daginn. Höfundur er tónlistarskólastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson Skoðun Skoðun Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar