Vatnajökulsþjóðgarður fyrir alla 3. nóvember 2010 06:00 Umræða um nýstofnaðan Vatnajökulsþjóðgarð í Morgunblaðinu og víðar hefur verið afar neikvæð og villandi. Tilteknir útivistarhópar hafa gagnrýnt tillögur í stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins um takmarkanir á ferða- og athafnafrelsi og spurt í því sambandi fyrir hvern þjóðgarðurinn sé. Þessi grein er innlegg stjórnar þjóðgarðsins í umræðuna. Hvað er þjóðgarður og fyrir hverja er hann?Samkvæmt náttúruverndarlögum nr. 44/1999 eru þjóðgarðar landsvæði sem eru svo sérstæð um landslag, lífríki eða sögu að ástæða þykir til að vernda þau og veita almenningi aðgang að þeim eftir tilteknum reglum. Tvíþætt meginhlutverk þjóðgarða, náttúruvernd og útivist, getur valdið hagsmunaárekstrum. Þjóðgarðastjórnun miðar að því að draga úr árekstrum og samræma ólík sjónarmið. Þetta er gert m.a. með fræðslu, umgengnisreglum, svæðaskiptingu og lagningu gönguslóða.Þjóðgarðar eru aðeins ein tegund náttúruverndarsvæða. Önnur slík svæði eru m.a. víðerni, friðlönd, náttúruvætti og fólkvangar. Alþjóðlegu náttúruverndarsamtökin IUCN, sem Ísland og flest önnur vestræn ríki eru aðilar að, hafa flokkað náttúruverndarsvæði og þróað viðmið sem þau þurfa að uppfylla til að standa undir nafni. Verndarflokkar IUCN eru nú sex og eru þjóðgarðar í flokki tvö næst á eftir strangfriðuðum svæðum og víðernum. Helstu stjórnunar- og verndarmarkmið þjóðgarða samkvæmt IUCN (sjá t.d. www.unep-wcmc.org/protected_areas/categories/eng/ii.pdf) eru:• Að vernda náttúruleg svæði sem gildi hafa á lands- og heimsvísu svo almenningur fái notið þeirra til andlegrar upplyftingar, í vísindaskyni, til menntunar, útivistar og ferðalaga. • Að viðhalda eftir föngum upprunalegum landslagsheildum, vistkerfum og lífverustofnum. • Að stýra umferð gesta svo þeir geti notið upplifunar, fræðst og stundað útivist án þess að náttúra þjóðgarðsins skaðist að ráði. • Að koma í veg fyrir nýtingu sem gengur gegn markmiðum friðlýsingar. • Að viðhalda virðingu fyrir náttúru þjóðgarðsins og þeim sjónarmiðum sem liggja að baki friðlýsingunni. • Að virða rétt frumbyggja og annarra íbúa þjóðgarðs og aðliggjandi svæða til hefðbundinna nytja, svo fremi þær gangi ekki í berhögg við önnur markmið friðlýsingarinnar. Ljóst má vera af þessari upptalningu að þjóðgörðum er ætlað margvíslegt hlutverk. Eðli málsins samkvæmt geta þeir þó ekki uppfyllt allar útivistarþarfir fólks þar sem ástundun tiltekinna tómstunda getur stangast á við önnur markmið, svo sem um verndun tegunda og vistkerfa, verndun víðerna og friðhelgi. Breyttar áherslur í þjóðgarðastjórnunVægi náttúruverndar í þjóðgörðum miðað við útivist hefur verið breytilegt eftir löndum og þróast í tímans rás. Í bandarískum þjóðgörðum, sem lengi hafa verið fyrirmynd annarra, hefur náttúruvernd löngum haft algeran forgang. Þar eru skotveiðar t.d. bannaðar með öllu þótt í einstöku tilfellum hafi þurft að grípa til grisjunar dýrastofna vegna offjölgunar. Á síðustu áratugum hefur hugmyndafræði varðandi rekstur og stjórnun þjóðgarða á Vesturlöndum þó verið að breytast í þá átt að taka æ meira tillit til hefðbundinna nytja og hefða heimamanna.Þessarar þróunar hefur einnig gætt hér á landi. Fyrir stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs voru hér fjórir þjóðgarðar: Þingvallaþjóðgarður (1930), þjóðgarðurinn í Skaftafelli (1967), þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfrum (1973) og þjóðgarðurinn Snæfellsjökull (2001). Í þeim öllum voru skotveiðar bannaðar og búfjárbeit einnig í tveimur þeirra fyrst nefndu. Búfjárbeit hefur verið heimil í hluta Jökulsárgljúfra og í öllum þjóðgarðinum Snæfellsjökli.Við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs var sérstaklega tekið mið af breyttri hugmyndafræði. Hefðbundnum nytjum, útivist og margvíslegum áhugamálum almennings hefur verið gefið meira rými þar en í nokkrum öðrum þjóðgarði hér á landi. Sem dæmi má nefna að búfjárbeit og veiðar, þ.m.t. skotveiðar, eru heimilar á yfir helmingi lands utan jökuls. Akstur á snjó er heimill víðast hvar. Sumarakstur er leyfður á um 50 skilgreindum leiðum sem ekki hafa talist til hefðbundinna vega, samtals um 700 km. Landeigendur mega aka utan vega við landbúnaðarstörf svo framarlega sem ekki hljótast spjöll af (sjá tillögu að stjórnunar- og verndaráætlun og meðfylgjandi kort á: www.vatnajokulsthjodgardur.is/starfsemi/a-dofinni/nr/368).Þær takmarkanir sem lagðar eru til varðandi veiðar, akstur og aðrar athafnir manna innan þjóðgarðsins eru aftur á móti afar hófsamar. Þar á meðal er tillaga um 117 km² veiðigriðland á Snæfellsöræfum (3,4% af heildarveiðilendum garðsins) og tillaga um lokun örfárra vegslóða, samtals innan við 50 km. Staðreyndin er því sú að Vatnajökulsþjóðgarður er að þessu leyti „alþýðuvænni" en nokkur annar þjóðgarður hér á landi. Hávær umræða um að verið sé að úthýsa þjóðinni er því ábyrgðarlaus og alröng.Anna Kristín Ólafsdóttir Björn Ármann Ólafsson Böðvar Pétursson Elín Heiða Valsdóttir Hjalti Þór Vignisson Magnús Hallgrímsson Ólöf Ýrr Atladóttir Þórunn Pétursdóttirfulltrúar í stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald Skoðun Er bara best að þegja? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson Skoðun Skoðun Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson skrifar Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Hafnarfirði Örn Geirsson skrifar Skoðun „Hvaða plön ertu með í sumar?“ Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar
Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar