Sigfús Sigurðsson í Emsdetten Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. nóvember 2010 17:28 Sigfús Sigurðsson og Dagur Sigurðsson á góðri stundu. Mynd/Daníel
Sigfús Sigurðsson hefur ákveðið að ganga til liðs við þýska B-deildarliðið Emsdetten sem Patrekur Jóhannesson þjálfar og mun spila með liðinu næstu sex vikurnar að minnsta kosti. Fréttirnar koma nokkuð á óvart þar sem að Sigfús hefur verið lengi frá vegna meiðsla. „Þetta kom þannig til að Patta, vini mínum, vantaði mann og hann setti sig í samband við mig," sagði Sigfús við Vísi. „Einn af varnarmönnunum hans fékk botnlangakast og annar er puttabrotinn. Ég er því að fara út fyrst og fremst til að hjálpa honum." Hann segir að líkamleg heilsa hans sé ágæt. „Leikæfingin er ekki mikil en líkamlega standið er betra en oft áður hefur verið." „Ég fór í stóra aðgerð fyrir einu og hálfu ári síðan en fór aðeins of fljótt af stað með Val á síðasta tímabili. Ég saup svo seyðið af því síðar." „Í sumar var ég mikið að synda og hreyfa mig og er orðinn léttari en áður. Löppin er öll að koma til og get spilað með aðstoð spelku." Hann fagnar því að geta komið Patreki til aðstoðar. „Þegar ég byrjaði að spila aftur með landsliðinu árið 2001 þá var hann einn af þeim sem hjálpaði mér sem mest. Vonandi fæ ég núna tækifæri til að hjálpa honum á móti." „Hann er frábær þjálfari og góður vinur." Sigfús segist einnig reiðubúinn að hjálpa íslenska landsliðinu verði þess óskað. „Það er ekki mitt að ákveða það en ef þjálfarinn myndi vilja nota mig og þiggja mína hjálp er ég alltaf boðinn og búinn til þess." Sigfús heldur utan á morgun og spilar með Emsdetten gegn Gylfa Gylfasyni og félögum í Minden á laugardaginn.
Mest lesið Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum Körfubolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Enski boltinn „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira