Skoðun

Læknafélag atgervismanna

Jóhann Tómasson skrifar um tryggingamál lækna.

Læknafélag Íslands er sennilega eitt sterkasta hagsmunafélag Íslands. Þegar ég var ungur gegndu formennsku í Læknafélagi Íslands menn sem nutu almennrar virðingar. Mér virtist læknar hafa takmarkaðan félagslegan áhuga og skrifaði greinar í Morgunblaðið. Árið 1995 sótti ég um aðild að hóptryggingu lækna, 45 ára gamall. Mér var synjað. Ég var of lélegur. Ég yrði fjárhagsbyrði á atgervismönnum. Fjórum árum seinna gat ég þessa máls í einni af greinum mínum gegn gagnagrunninum, mestu skömm læknastéttarinnar. Þar las aldraður tengdafaðir minn um málið. Honum þótti þetta slæm tíðindi og spurði hvort mér væri sama um þótt hann fjallaði um málið í Læknablaðinu.

Hann skrifaði grein í Læknablaðið, 7/8 tbl. 1999, með fyrirspurnum til stjórnar Læknafélags Íslands. Þegar hann fékk ekkert svar frá félaginu skrifaði hann aðra grein í 11. tbl. 1999, einskonar eintal við sjálfan sig eins og hann orðaði það. Þá loks kom svar frá framkvæmdastjóra félagsins í 1. tbl. 2000. Framkvæmdastjórinn benti á, „að LÍ hafi í fjölda ára greitt félagsmönnum leið að góðum tryggingum á hagstæðari kjörum en almennt bjóðast á almennum markaði." Framkvæmdastjórinn upplýsti einnig að „samkvæmt upplýsingum tryggingafélagsins hafa mjög fáir læknar fengið neitun um aðild að hóptryggingu lækna, - þeir verða taldir á fingrum annarrar handar." Í þriðju grein sinni um málið, „Codex og tryggingarnar" í 3. tbl. 2000, skrifaði Guðmundur Helgi Þórðarson læknir:

„Það gildir sem sagt ekki um alla lækna. Sumir njóta ekki þessarar umhyggju samtakanna, og á það fyrst og fremst við um þá sem þurfa mest á henni að halda, það er þeir sem eru í mestri áhættu heilsufarslega og koma að lokuðum dyrum á tryggingamarkaðnum nema þeir séu í hópi með öðrum."

„Það sem skín út úr svarinu er að þeir, sem verða þarna útundan, séu svo fáir að það borgi sig ekki að æsa sig upp út af þeim. Með þessu er verið að segja, að hóptryggingin komi siðareglum lækna ekkert við, þessi mál eigi að afgreiða sem hrein og köld fjármál meirihlutans. Hér þarf að gera greinarmun á því, hvort um er að ræða heildarsamtök lækna eða hóp einstakra lækna. Ef einstakir læknar hefðu tekið sig saman og samið við tryggingafélag sem hópur, án þess að læknasamtökin hefðu komið þar við sögu, þá gegnir það öðru máli en ef samið er í nafni heildarsamtakanna.

Eins og fram hefur komið er mikil þörf á að íhuga tryggingamál lækna meðal annars með hliðsjón af Codex Ethicus. Veður eru válynd um þessar mundir og engin vanþörf á að dusta rykið af sígildum siðfræðilegum verðmætum."

Ég var annar tveggja sem lenti í brottkasti hóptryggingar lækna. Einhver hefði sagt sig úr Læknafélagi Íslands af minna tilefni. Þetta reyndist þó aðeins lítill forsmekkur þess sem ég fékk að reyna áður en ég gat sagt mig úr Læknafélagi Íslands í maí 2009. Frá því verður sagt í annarri grein.

Höfundur er læknir.




Skoðun

Skoðun

Takk Trump!

Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Sjá meira


×