Hverju skilaði Búsáhaldabyltingin? 17. febrúar 2010 06:00 Eva Heiða Önnudóttir skrifar um Búsáhaldabyltinguna. Föstudaginn 12.febrúar var haldin ráðstefna í Iðnó á vegum Háskólans á Bifröst þar sem rætt var hverju Búsáhaldabyltingin hefði skilað. Í Búsáhaldabyltingunni var þess krafist að ríkisstjórnin segði af sér, efnt væri til kosninga og að stjórnir Seðlabankans og FME segðu af sér. Með öðrum orðum að þessar stofnanir öxluðu ábyrgð. Þessar kröfur náðu fram að ganga. Spurningin sem eftir stendur er hvort að í framtíðinni þurfi slík mótmæli til þess að draga opinbera fulltrúa til ábyrgðar. Svarið við því ætti að vera nei, helst ekki. Stjórnskipulag á að vera með þeim hætti að ekki þurfi fjölmenn mótmæli til þess að opinberir fulltrúar axli ábyrgð. Í Búsáhaldabyltingunni og í umræðunni sem fylgdi var einnig krafist breyttra stjórnarhátta og lýðræðisumbóta. Starfsemi stjórnmálaflokka var gagnrýnd, sem og stjórnvöld fyrir að vera í litlum tengslum við almenning. Núverandi ríkisstjórn tók þessa umræðu upp fyrir kosningar, þar sem m.a. var rætt um stjórnlagaþing, persónukjör og þjóðaratkvæði. Enn sem komið er bólar ekkert á slíku, þótt lögð hafi verið fram frumvörp þess efnis og frumvarp um stjórnlagaþing verið samþykkt. Enn hefur þeirri spurningu ekki verið svarað hvernig hægt er að breyta íslensku stjórnkerfi til að gera það lýðræðislegra. Ræðumenn, pallborðsgestir og aðrir fundarmenn í Iðnó voru sammála um að Búsáhaldabyltingin væri merkilegur atburður í sögu lýðveldisins en þrátt fyrir það hefði lítið breyst varðandi stjórnskipulag og lýðræði á Íslandi. Sumir lýstu yfir áhyggjum um að umræða um endurbætur koðni niður niður, meðan aðrir bentu á mikilvægi þess að fara varlega í breytingar ef markmið þeirra ættu að ná fram. Bæði þessi sjónarhorn hafa nokkuð til síns máls. Meira þarf þó að koma til en breytt stjórnskipulag. Jafnvel þyrfti að taka til gagngerrar endurskoðunar þær hefðir sem ekki eru bundnar í lög um ábyrgð og skyldur opinberra fulltrúa gagnvart íslenskum borgurum. Ekki er hægt að líta svo á að ein ráðstefna breyti þessu en áframhaldandi umræða og vitundarvakning um lýðræði á Íslandi ætti að vera hvatning til breytinga í átt að samfélagi sem einkennist af jafnræði, réttlæti og lýðræði. Höfundur er aðjúnkt í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson Skoðun ADHD og hvatvísi Hjördís María Karlsdóttir Skoðun Lögreglu-Ríkið Ólafur Stephensen Skoðun Vandinn er ekki lóðaskortur Óli Örn Eiríksson Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað sagði konan? G.Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við stöndum á tímamótum Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Samningsmarkmið Íslands mega ekki vera leyndarmál Júlíus Valsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð og hjúkrunarfræðingar: Hvað segja gögnin? Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Lögreglu-Ríkið Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Þarf einhverja yfirbyggingu í skólamálum Mosfellsbæjar? Haukur Skúlason skrifar Skoðun Verkin tala! Kristinn Jakobsson skrifar Skoðun Vandinn er ekki lóðaskortur Óli Örn Eiríksson skrifar Skoðun Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann skrifar Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Að þora að vera til fyrirmyndar Trausti Jóhannsson skrifar Skoðun Orkan sem skapar verðmæti Sævar Freyr Þráinsson skrifar Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Eru 700 milljónir á ári ekki miklir peningar? Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir skrifar Skoðun Tölum um samfélagið okkar Jónína Margrét Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Umferðin vex í Hafnarfirði – hvað ætlum við að gera öðruvísi? Stefán Már Víðisson skrifar Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Hagsmunir launafólks og Evrópusambandið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Rjúfum vítahring olíunnar Guðjón Hugberg Björnsson skrifar Skoðun Dómar eiga að hafa tilgang Védís Einarsdóttir skrifar Skoðun Vandamál leikskólanna verða ekki leyst nema með aðkomu ríkisins Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Mannréttindi í hættu í yfirfullum fangelsum Tinna Eyberg Örlygsdóttir skrifar Skoðun Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Stóra sósíalíska skinkumálið Helgi Áss Grétarsson skrifar Sjá meira
Eva Heiða Önnudóttir skrifar um Búsáhaldabyltinguna. Föstudaginn 12.febrúar var haldin ráðstefna í Iðnó á vegum Háskólans á Bifröst þar sem rætt var hverju Búsáhaldabyltingin hefði skilað. Í Búsáhaldabyltingunni var þess krafist að ríkisstjórnin segði af sér, efnt væri til kosninga og að stjórnir Seðlabankans og FME segðu af sér. Með öðrum orðum að þessar stofnanir öxluðu ábyrgð. Þessar kröfur náðu fram að ganga. Spurningin sem eftir stendur er hvort að í framtíðinni þurfi slík mótmæli til þess að draga opinbera fulltrúa til ábyrgðar. Svarið við því ætti að vera nei, helst ekki. Stjórnskipulag á að vera með þeim hætti að ekki þurfi fjölmenn mótmæli til þess að opinberir fulltrúar axli ábyrgð. Í Búsáhaldabyltingunni og í umræðunni sem fylgdi var einnig krafist breyttra stjórnarhátta og lýðræðisumbóta. Starfsemi stjórnmálaflokka var gagnrýnd, sem og stjórnvöld fyrir að vera í litlum tengslum við almenning. Núverandi ríkisstjórn tók þessa umræðu upp fyrir kosningar, þar sem m.a. var rætt um stjórnlagaþing, persónukjör og þjóðaratkvæði. Enn sem komið er bólar ekkert á slíku, þótt lögð hafi verið fram frumvörp þess efnis og frumvarp um stjórnlagaþing verið samþykkt. Enn hefur þeirri spurningu ekki verið svarað hvernig hægt er að breyta íslensku stjórnkerfi til að gera það lýðræðislegra. Ræðumenn, pallborðsgestir og aðrir fundarmenn í Iðnó voru sammála um að Búsáhaldabyltingin væri merkilegur atburður í sögu lýðveldisins en þrátt fyrir það hefði lítið breyst varðandi stjórnskipulag og lýðræði á Íslandi. Sumir lýstu yfir áhyggjum um að umræða um endurbætur koðni niður niður, meðan aðrir bentu á mikilvægi þess að fara varlega í breytingar ef markmið þeirra ættu að ná fram. Bæði þessi sjónarhorn hafa nokkuð til síns máls. Meira þarf þó að koma til en breytt stjórnskipulag. Jafnvel þyrfti að taka til gagngerrar endurskoðunar þær hefðir sem ekki eru bundnar í lög um ábyrgð og skyldur opinberra fulltrúa gagnvart íslenskum borgurum. Ekki er hægt að líta svo á að ein ráðstefna breyti þessu en áframhaldandi umræða og vitundarvakning um lýðræði á Íslandi ætti að vera hvatning til breytinga í átt að samfélagi sem einkennist af jafnræði, réttlæti og lýðræði. Höfundur er aðjúnkt í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst.
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir Skoðun
Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar
Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar
Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar
Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Vandamál leikskólanna verða ekki leyst nema með aðkomu ríkisins Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar
Skoðun Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir skrifar
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir Skoðun