Jón Hjaltason: Af hverju ertu svona reiður, Jón? Jón Hjaltason skrifar 19. apríl 2010 06:00 Ég var spurður þessarar spurningar í lok borgarafundarins um daginn. Svarið er einfalt: Bæjarfulltrúar Akureyrar, þeir sem vilja miðbæjarskipulagið, stunda það beinlínis að slá ryki í augu okkar bæjarbúa. Svo ég taki ekki dýpra í árinni. Þeim virðist lífsins ómögulegt að komast í gegnum umræðu um skipulagið án þess að fara með hálfsannindi og stundum hrein ósannindi. Ætla að hundsa vilja nær 4000 AkureyringaÉg er tilbúinn að rökstyðja þessa fullyrðingu á opnum vettvangi, hvar sem er. Ég er líka reiðubúinn að koma á fundi hjá Sjálfstæðis- og Samfylkingarmönnum, þá jafnframt til að útskýra af hverju mikill meirihluti Akureyringa er á móti miðbæjarskipulaginu sem þeir ætla að berja í gegn hvað sem tautar og raular. Alvarlegast er þó að þessir flokkar virðast ætla að hundsa kröfu nær 4000 Akureyringa um að miðbæjarskipulagið verði lagt í dóm bæjarbúa. Sigrún Björk Jakobsdóttir sagði þetta hreint út. Og rökin, jú það er ekki tímabært því að ekki verður ráðist í framkvæmdir næstu 5, 10 eða 15 árin. Svo voru ekki liðnar nema 5 mínútur þegar hún bætti við: En við ætlum að byrja framkvæmdir í miðbænum á næsta ári. Var einhver að tala um íbúalýðræði? Hvað munar okkur um milljarð?Og hvað um peningahliðina. Hvorugur fulltrúi meirihlutans þóttist hafa hugmynd um hvað dæmið væri búið að kosta hingað til. Hugsið ykkur! Þó er eflaust um að ræða tugi milljóna en hvað er það á milli vina? Og þetta gáleysi með fjármuni okkar heldur áfram. Heila klabbið á að kosta okkur 858 milljónir, segir meirihlutinn, en reiknilist hans er dregin í efa, sumir segja töluna miklu hærri. Og hugsið ykkur; hvorki Samfylkingar- né Sjálfstæðismenn láta svo lítið að minnast á litlar 600 milljónir sem er áætlaður kostnaður við hafnarmannvirki tillögunnar. Sú tala kemur okkur víst ekki við því að Höfnin á að borga! Og til að bíta höfuðið af skömminni er rætt um að bærinn kaupi bílastæði í væntanlegum kjöllurum. Verðið? Mönnum ber ekki saman um það en eitt er víst, það hleypur ekki á tugum milljóna heldur hundruðum. En þetta kemur okkur heldur ekki við. Er furða þótt maður sé reiður? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Ég var spurður þessarar spurningar í lok borgarafundarins um daginn. Svarið er einfalt: Bæjarfulltrúar Akureyrar, þeir sem vilja miðbæjarskipulagið, stunda það beinlínis að slá ryki í augu okkar bæjarbúa. Svo ég taki ekki dýpra í árinni. Þeim virðist lífsins ómögulegt að komast í gegnum umræðu um skipulagið án þess að fara með hálfsannindi og stundum hrein ósannindi. Ætla að hundsa vilja nær 4000 AkureyringaÉg er tilbúinn að rökstyðja þessa fullyrðingu á opnum vettvangi, hvar sem er. Ég er líka reiðubúinn að koma á fundi hjá Sjálfstæðis- og Samfylkingarmönnum, þá jafnframt til að útskýra af hverju mikill meirihluti Akureyringa er á móti miðbæjarskipulaginu sem þeir ætla að berja í gegn hvað sem tautar og raular. Alvarlegast er þó að þessir flokkar virðast ætla að hundsa kröfu nær 4000 Akureyringa um að miðbæjarskipulagið verði lagt í dóm bæjarbúa. Sigrún Björk Jakobsdóttir sagði þetta hreint út. Og rökin, jú það er ekki tímabært því að ekki verður ráðist í framkvæmdir næstu 5, 10 eða 15 árin. Svo voru ekki liðnar nema 5 mínútur þegar hún bætti við: En við ætlum að byrja framkvæmdir í miðbænum á næsta ári. Var einhver að tala um íbúalýðræði? Hvað munar okkur um milljarð?Og hvað um peningahliðina. Hvorugur fulltrúi meirihlutans þóttist hafa hugmynd um hvað dæmið væri búið að kosta hingað til. Hugsið ykkur! Þó er eflaust um að ræða tugi milljóna en hvað er það á milli vina? Og þetta gáleysi með fjármuni okkar heldur áfram. Heila klabbið á að kosta okkur 858 milljónir, segir meirihlutinn, en reiknilist hans er dregin í efa, sumir segja töluna miklu hærri. Og hugsið ykkur; hvorki Samfylkingar- né Sjálfstæðismenn láta svo lítið að minnast á litlar 600 milljónir sem er áætlaður kostnaður við hafnarmannvirki tillögunnar. Sú tala kemur okkur víst ekki við því að Höfnin á að borga! Og til að bíta höfuðið af skömminni er rætt um að bærinn kaupi bílastæði í væntanlegum kjöllurum. Verðið? Mönnum ber ekki saman um það en eitt er víst, það hleypur ekki á tugum milljóna heldur hundruðum. En þetta kemur okkur heldur ekki við. Er furða þótt maður sé reiður?
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar