Skoðun

Jón Hjaltason: Af hverju ertu svona reiður, Jón?

Jón Hjaltason skrifar
Ég var spurður þessarar spurningar í lok borgarafundarins um daginn. Svarið er einfalt: Bæjarfulltrúar Akureyrar, þeir sem vilja miðbæjarskipulagið, stunda það beinlínis að slá ryki í augu okkar bæjar­búa. Svo ég taki ekki dýpra í árinni. Þeim virðist lífsins ómögulegt að komast í gegnum umræðu um skipulagið án þess að fara með hálfsannindi og stundum hrein ósannindi.

Ætla að hundsa vilja nær 4000 AkureyringaÉg er tilbúinn að rökstyðja þessa fullyrðingu á opnum vettvangi, hvar sem er. Ég er líka reiðubúinn að koma á fundi hjá Sjálfstæðis- og Samfylkingarmönnum, þá jafnframt til að útskýra af hverju mikill meirihluti Akureyringa er á móti miðbæjarskipulaginu sem þeir ætla að berja í gegn hvað sem tautar og raular.

Alvarlegast er þó að þessir flokkar virðast ætla að hundsa kröfu nær 4000 Akureyringa um að miðbæjarskipulagið verði lagt í dóm bæjarbúa.

Sigrún Björk Jakobsdóttir sagði þetta hreint út. Og rökin, jú það er ekki tímabært því að ekki verður ráðist í framkvæmdir næstu 5, 10 eða 15 árin. Svo voru ekki liðnar nema 5 mínútur þegar hún bætti við: En við ætlum að byrja framkvæmdir í miðbænum á næsta ári.

Var einhver að tala um íbúalýðræði?

Hvað munar okkur um milljarð?Og hvað um peningahliðina. Hvorugur fulltrúi meirihlutans þóttist hafa hugmynd um hvað dæmið væri búið að kosta hingað til. Hugsið ykkur! Þó er eflaust um að ræða tugi milljóna en hvað er það á milli vina? Og þetta gáleysi með fjármuni okkar heldur áfram. Heila klabbið á að kosta okkur 858 milljónir, segir meirihlutinn, en reiknilist hans er dregin í efa, sumir segja töluna miklu hærri.

Og hugsið ykkur; hvorki Samfylkingar- né Sjálfstæðismenn láta svo lítið að minnast á litlar 600 milljónir sem er áætlaður kostnaður við hafnarmannvirki tillögunnar. Sú tala kemur okkur víst ekki við því að Höfnin á að borga!

Og til að bíta höfuðið af skömminni er rætt um að bærinn kaupi bílastæði í væntanlegum kjöllurum. Verðið? Mönnum ber ekki saman um það en eitt er víst, það hleypur ekki á tugum milljóna heldur hundruðum. En þetta kemur okkur heldur ekki við.

Er furða þótt maður sé reiður?




Skoðun

Skoðun

Takk Trump!

Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Sjá meira


×