Hanna Birna Kristjánsdóttir: Barnamenningarhátíð hefst í dag Hanna Birna Kristjánsdóttir skrifar 19. apríl 2010 06:00 Langþráður draumur Reykjavíkurborgar um að halda sérstaka barnamenningarhátíð verður að veruleika við setningu fyrstu Barnamenningarhátíðar í Reykjavík í dag, en hátíðin verður haldin dagana 19. til 25. apríl. Börnin í borginni fá þá daga einstakt tækifæri til að sýna hvað í þeim býr á hinum ólíku sviðum lista- og menningar en dagskráin er undirbúin af börnum, fyrir börn. Um 1.300 tíu ára börn taka þátt í setningarhátíðinni í Hljómskálagarðinum ásamt Fíusól, sirkuslistamönnum og götuleikhúsfólki. Að hátíðinni koma grunnskólar í borginni, leikskólar, tónlistar- og myndlistarskólar, bókasöfn, listasöfn og aðrar menningarstofnanir og svo fjölmargir aðrir með spennandi verkefni. Listsköpun barna verður sýnileg á óvæntum stöðum eins og á botni Vesturbæjarlaugar, á innkaupakerrum í matvöruverslunum og í Strætó. Leik- og grunnskólar borgarinnar munu iða af lífi með sýningum og opnum húsum þar sem foreldrum og öðrum aðstandendum barna verður boðið upp á spennandi dagskrá. Börnin leggja land undir fót og taka yfir aðrar stofnanir en þeirra eigin á hátíðinni. Þannig syngur 300 leikskólabarna þjóðkór í Háskólabíó og nemendur úr Háteigsskóla frumflytja frumsamda óperu „Jörðina okkar“ í Hallgrímskirkju. Barnamenningarhátíðinni lýkur með stórum tónleikum með lögum af Vísnabókarplötunum Einu sinni var og Út um græna grundu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þann 25. apríl næstkomandi. Þema hátíðarinnar að þessu sinni verður forvitni og kennir ýmissa forvitnilegra grasa í dagskránni. Ítarlegt yfirlit yfir alla dagskrárliði hátíðarinnar er aðgengilegt á slóðinni barnamenningarhatid.is. Ég hvet fjölskyldur til að taka öflugan þátt í fyrstu Barnamenningarhátíðinni í Reykjavík og njóta þess hvað börnin okkar í borginni eru hugmyndarík, skapandi og skemmtileg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík? Ari Edwald Skoðun Halldór 02.05.2026 Halldór Ætti Ísland að taka þátt í PISA? Maren Davíðsdóttir Skoðun Vélarnar ræstar út í skurð Bryndís Haraldsdóttir Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson Skoðun Alþjóðadagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir Jóhann Pétur Guðvarðarson Skoðun Betri heilsa – betri Kópavogur Arnar Grétarsson Skoðun Skoðun Skoðun Eru verkalýðsfélög úrelt eða bara óþægileg sumum? Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Tímaskekkjan er ekki verkalýðshreyfingin Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Allt frítt í Garðabæ, eða ábyrgur rekstur ? Lárus Guðmundsson skrifar Skoðun Eigum við að forgangsraða börnunum okkar? Ester Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ætti Ísland að taka þátt í PISA? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun Betri heilsa – betri Kópavogur Arnar Grétarsson skrifar Skoðun Vélarnar ræstar út í skurð Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Að lifa, þrátt fyrir brotna odda Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík? Ari Edwald skrifar Skoðun Við klippum ekki borða! Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir Jóhann Pétur Guðvarðarson skrifar Skoðun Loftslagsmál snúast um jöfnuð og lífsgæði Skúli Helgason skrifar Skoðun Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson skrifar Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Sjá meira
Langþráður draumur Reykjavíkurborgar um að halda sérstaka barnamenningarhátíð verður að veruleika við setningu fyrstu Barnamenningarhátíðar í Reykjavík í dag, en hátíðin verður haldin dagana 19. til 25. apríl. Börnin í borginni fá þá daga einstakt tækifæri til að sýna hvað í þeim býr á hinum ólíku sviðum lista- og menningar en dagskráin er undirbúin af börnum, fyrir börn. Um 1.300 tíu ára börn taka þátt í setningarhátíðinni í Hljómskálagarðinum ásamt Fíusól, sirkuslistamönnum og götuleikhúsfólki. Að hátíðinni koma grunnskólar í borginni, leikskólar, tónlistar- og myndlistarskólar, bókasöfn, listasöfn og aðrar menningarstofnanir og svo fjölmargir aðrir með spennandi verkefni. Listsköpun barna verður sýnileg á óvæntum stöðum eins og á botni Vesturbæjarlaugar, á innkaupakerrum í matvöruverslunum og í Strætó. Leik- og grunnskólar borgarinnar munu iða af lífi með sýningum og opnum húsum þar sem foreldrum og öðrum aðstandendum barna verður boðið upp á spennandi dagskrá. Börnin leggja land undir fót og taka yfir aðrar stofnanir en þeirra eigin á hátíðinni. Þannig syngur 300 leikskólabarna þjóðkór í Háskólabíó og nemendur úr Háteigsskóla frumflytja frumsamda óperu „Jörðina okkar“ í Hallgrímskirkju. Barnamenningarhátíðinni lýkur með stórum tónleikum með lögum af Vísnabókarplötunum Einu sinni var og Út um græna grundu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þann 25. apríl næstkomandi. Þema hátíðarinnar að þessu sinni verður forvitni og kennir ýmissa forvitnilegra grasa í dagskránni. Ítarlegt yfirlit yfir alla dagskrárliði hátíðarinnar er aðgengilegt á slóðinni barnamenningarhatid.is. Ég hvet fjölskyldur til að taka öflugan þátt í fyrstu Barnamenningarhátíðinni í Reykjavík og njóta þess hvað börnin okkar í borginni eru hugmyndarík, skapandi og skemmtileg.
Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar