Verslunarmiðstöðin Smáralind er til sölu 28. apríl 2010 08:13 Í Smáralindinni má finna flestar tegundir verslana, matvöruverslanir, húsgagnaverslanir, veitingastaði, kvikmyndahús og margvíslega aðra þjónustu.
Reginn ehf. dótturfélag Landsbankans (NBI hf.) hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að annast sölu á öllu hlutafé í Eignarhaldsfélaginu Smáralind ehf. sem á og rekur verslunarmiðstöðina Smáralind í Kópavogi.Greint er frá málinu á vefsíðu Reginn. Þar segir að seljandi hlutafjárins er Fasteignafélag Íslands ehf. sem er í eigu Regins ehf. Fasteignafélag Íslands hefur átt í fjárhagserfiðleikum, en efnahagur Eignarhaldsfélagsins Smáralindar ehf. er og hefur verið traustur.Verslunarmiðstöðin Smáralind var opnuð árið 2001 og hefur frá stofnun verið mikilvægur þáttur í verslun á Íslandi. Smáralind er stærsta verslunarmiðstöð landsins og telur 62.730 fermetra og þar af nýtast 40.490 fermetrar undir verslun. Heildarfjöldi verslana og þjónustufyrirtækja er 95 og árið 2009 komu í Smáralindina um 4 milljónir viðskiptavina.Í Smáralindinni má finna flestar tegundir verslana, matvöruverslanir, húsgagnaverslanir, veitingastaði, kvikmyndahús og margvíslega aðra þjónustu.Starfsemi Eignarhaldsfélagsins Smáralindar felst í útleigu, rekstri, viðhaldi og uppbyggingu verslunarmiðstöðvarinnar Smáralindar. Kaupandinn verður einn eigandi húsnæðisins.Söluferlið hefst í dag, 28. Apríl, og er opið öllum áhugasömum fjárfestum, sem standast hæfismat og sýnt geta fram á fjárfestingargetu umfram 500 milljónir króna. Þeim fjárfestum sem óska eftir að taka þátt í söluferlinu, ber að fylla út trúnaðaryfirlýsingu, veita upplýsingar vegna hæfismats og fullnægjandi staðfestingu á áðurnefndri fjárfestingargetu.Þeir fjárfestar sem uppfylla skilyrði fyrir þátttöku á fyrra stigi söluferlisins fá afhent gögn um Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf. föstudaginn 28. maí 2010. Frestur til að skila óskuldbindandi tilboði rennur út kl. 16:00, 16. júní 2010.Þeim sem leggja fram hagstæðustu tilboðin að mati seljanda og Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans, verður boðið að taka þátt í síðara stigi söluferlisins sem áætlað er að hefjist þann 21. júní og ljúki 12. júlí 2010 með skilum fjárfesta á bindandi tilboði. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans gengur þá fyrir hönd seljanda til samninga við tilboðsgjafa. Stefnt er að lokum söluferlisins fyrir lok júlí 2010.Rétt er að ítreka að seljandi, Fasteignafélag Íslands ehf., áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum, breyta söluferlinu og/eða stöðva eftir atvikum. Öllum þátttakendum verður tilkynnt um slíka ákvörðun og rökstuðning fyrir henni.Markmið Fasteignafélags Íslands ehf. er að fá sem hagstæðast verð fyrir hlutafé Eignarhaldsfélags Smáralindar ehf. og að salan sé endanleg og óafturkræf.
Mest lesið Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Play tekur flugið til Agadir Viðskipti innlent Vilja að stjórnvöld greiði leið kísilversins á Bakka Viðskipti innlent Stöðva rekstur á Bakka í júlí og segja 80 manns upp störfum Viðskipti innlent Halla nýr yfirlögfræðingur Emblu Medical Viðskipti innlent Ætla ekki að láta norska olíusjóðinn sniðganga Ísrael Viðskipti „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Atvinnulíf Tap útgerðarinnar vegna fjárfestinga í fiskeldi nemur milljörðum Viðskipti innlent Bein útsending: Ársfundur Samáls Viðskipti innlent Kastrup og Jón Mýrdal hafa skilið skiptum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion vill sameinast Kviku Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Bein útsending: Ársfundur Samáls Vilja að stjórnvöld greiði leið kísilversins á Bakka Play tekur flugið til Agadir Halla nýr yfirlögfræðingur Emblu Medical Stöðva rekstur á Bakka í júlí og segja 80 manns upp störfum Heimar mega kaupa Grósku Tap útgerðarinnar vegna fjárfestinga í fiskeldi nemur milljörðum 4,5 milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Kastrup og Jón Mýrdal hafa skilið skiptum Ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen Ný forysta Félags kvenna í atvinnulífinu kjörin Alcoa fellur frá þriggja milljarða króna skaðabótakröfu Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Íslendingar vongóðir um að finna heitt vatn á Tenerife Kaupa fasteignirnar sem hýsa starfsemi Samskipa Valgerður Hrund hættir hjá Sensa Sannfærður um að fjárfestingin standi undir sér Stefán endurkjörinn formaður Þorsteinn Már hættir hjá Samherja Samþykktu að selja Perluna fyrir 3,5 milljarða Einar Bárðarson tekur við umdeildu félagi Brynja yfirmaður markaðseftirlits Nasdaq Iceland Gísli Þór og Jón Garðar nýir framkvæmdastjórar hjá Terra Ráðin þjónustustjóri atNorth á Akureyri Gunnar Örn og Haraldur Hilmar nýir forstöðumenn hjá Arion Setja spurningarmerki við umfjöllun um Climeworks Íbúðaverð hækkað um 14,5 prósent á tveimur árum Stjórnarandstaðan í vasa hagsmunaaðila Sjá meira