Skoðun

Aðlaðandi ævistarf

Marta Dögg Sigurðardóttir og Ingibjörg Kristleifsdóttir skrifar

Kæri lesandi sem ert tilbúinn til þess að velja þér ævistarf.

Undirritaðar eru í forsvari fyrir Félag leikskólakennara og Félag stjórnenda leikskóla og langar til þess að deila með þér nokkrum atriðum sem kunna að hjálpa þér við val á ævistarfi.

Leikskólinn er fyrsta skólastigið á Íslandi og þar stíga börn sín fyrstu skref á menntabrautinni. Í leikskólum gefst því einstakt tækifæri til að hafa áhrif á framtíðina.

Leikskólakennsla er aðlaðandi ævistarf, gefandi og skemmtileg. Kannanir sýna að starfsánægja leikskólakennara er mikil og þeir upplifa árangur verka sinna á hverjum degi.

Leikskólakennari gengur inn í lærdómssamfélag með samstarfsfólki sínu og nemendum. Hann byggir starf sitt á fræðum sem eru lögð til grundvallar hjá menntavísindasviði HÍ og kennaradeild HA og heldur áfram að vera rannsakandi í starfi eftir að formlegu námi lýkur. Símenntun er í boði alla starfsævina og er þátttaka í henni metin til launa.

Leikskólakennari hefur góða möguleika á framgangi í starfi ef hann kýs það. Með aukinni menntun leikskólakennara mun leikskólastarf á Íslandi eflast og kjörin styrkjast. Ekki aðeins í krónum heldur starfsumhverfi í heild.

Markmið leikskólastarfs er að veita börnum bestu hugsanlegu uppeldisskilyrði og menntun. Hvert og eitt barn á að fá viðfangsefni við sitt hæfi í örvandi og öruggu umhverfi þannig að hæfileikarnir blómstri og barnið njóti þess sem lífið hefur að bjóða. Það gerist í samspili með samferðafólki þar sem einstaklingurinn nýtur sín innan hóps og hópurinn auðgar einstaklinginn.







Ingibjörg Kristleifsdóttir, formaður Félags leikskólastjórnenda

Samkvæmt hugmyndafræði leikskólans er barnið virk og skapandi manneskja, litið er á leikinn sem helstu náms- og þroskaleið og mikil áhersla er lögð á skapandi starf. Gleði, áhugi, virkni, samskipti og vinátta einkenna leikskólastarf og hver dagur býður upp á nýjar áskoranir og ný og spennandi viðfangsefni.

Vaxandi fjöldi starfsmanna í leikskólum hefur lokið námi í leikskólakennarafræðum en betur má ef duga skal. Samkvæmt lögum um leikskóla eiga að lágmarki 2/3 þeirra sem starfa að uppeldi og menntun leikskólabarna að hafa leyfisbréf sem leikskólakennari. Einungis rúmur þriðjungur starfsmanna uppfyllir þau skilyrði núna.

Leikskólakennarar búa við mikið starfsöryggi og tryggt er að þeir sem útskrifast næstu áratugina eru öruggir um atvinnu.

Dagana 5. og 6. júní rennur út umsóknarfrestur um nám í háskólum. Hugsaðu málið.






Skoðun

Skoðun

Afruglari

Þórður Björn Sigurðsson skrifar

Sjá meira


×