Óstjórn á Álftanesi, fullyrðir Þór Saari þingmaður Kristinn Guðmundsson skrifar 8. febrúar 2010 15:25 Mér er málið skylt og þar sem ég er þingmanninum ósammála vil ég svara honum. Ég lagði af heilum hug hönd á plóg með Álftaneshreyfingunni í tilraun til að snúa samfélaginu úr þröngri stöðu til betri vegar. Strax í upphafi, 2006, var ljóst að reglubundnar tekjur sveitarsjóðs dugðu vart fyrir kostnaði af þjónustu við íbúana. Svigrúm til framkvæmda var aðeins fengið með því að selja eignir eða taka lán og flestar eigur sveitafélagsins höfðu þá þegar verið seldar. Þar sem íbúafjöldi á Álftanesi hafði vaxið dæmalaust hratt árin á undan og enn var framundan fyrirsjáanleg fjölgun, þá þurfti að stækka grunnskólann og bæta við rekstur leikskóla, koma upp aðstöðu fyrir íþróttaiðkun, byggja þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara og almenna félagsstarfsemi, svo eitthvað sé nefnt. Sumar af þessum framkvæmdum voru reyndar þegar í undirbúningi eða að ljúka. Án þess að eyða púðri í deilur um hver ákvað hvað og hvenær, þá er flestum ljóst að vandi sveitarfélagsins helltist ekki yfir sveitarfélagið á einu kjörtímabili. En skellurinn kom með bankahruninu þegar lánin bólgnuðu og forsendur góðra áforma brustu. Þá dró úr líkum á að stefna Álftaneslistans næði að uppfylla væntingar um betri tíð með blóm í haga. Steininn tók úr er kvarnaðist úr liði meirihlutans og þegar oddviti nýs meirihluta lýsti því yfir að sveitarfélagið væri "tæknilega gjaldþrota" voru skuldir sveitarfélagsins nánast samstundis gjaldfelldar og tekjur afskrifaðar. Með því var nánast séð til þess að viðsnúningurinn sem Álftaneslistinn stóð fyrir og róðurinn móti straumnum undanfarin ár yrði til lítils. Nýr meirihluti, sem hefur ákveðið að leggja árar í bát um leið og hann tók við, virðist ætla að gera endanlega út um að framtíðardraumar Álftnesinga verði hljómur einn. En framtíðarsýnin, sem Álftnesingar völdu árið 2006, er engu að síður þess virði að verja hana og styðja með ráði og dáð. Í megindráttum gengur hún út að leggja rækt við það góða samfélag sem fyrir er og nýta þá sérstöðu sem Álftanes hefur upp á að bjóða á höfuðborgarsvæðinu til atvinnu í byggðarlaginu. Það tryggir verndun þeirrar fjölbreyttu og spennandi náttúru, sem helst í hendur við víðáttumikil opin svæði sem henta til útivistar og er viðeigandi umhverfi fjölda minna um sögu Íslendinga frá þjóðveldi til lýðveldis og forsetasetrinu á Bessastöðum. Við í Álftaneslista höfum ekki lagt okkar síðasta orð inn í baráttuna um þessa framtíðarsýn. Fjárhagsleg staða sveitarfélagsins er vissulega slæm, en ekki má gleyma að mestu máli skiptir að hverju verður stefnt. Hvaða póstnúmer verður á bréfunum sem er dreift í húsin er annað mál. Í fyrsta umgangi er rétt að fara í saumana á reiknireglum Jöfnunarsjóðs og lögboðnar skyldur ríkisins. Öðruvísi verður Álftnesingum ekki tryggð sanngjörn meðferð sinna mála. Síðan má skoða möguleika til að hagræða rekstur sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Í þeim efnum er augljóslega margt aðkallandi og því væri fásinna að mæla gegn gagngerri endurskoðun, en það á ekki að rugla þessum málum saman. Þór Saari er ekki sómi af að slá um sig, eins og hann gerir í grein sinni í Mbl 3. febrúar. Þar með tekur hann sér stöðu með fölmörgum öðrum sem mála skrattann á vegg. Vissulega er af hinu góða að benda á galla hjá forystumönnum, en það þarf að vera vel rökstutt og gert af sanngirni í stað þess að ala á misskilningi með sleggjudómum og rangfærslum. Það er heldur ekki vænlegt að rífa bara niður án þess að koma með álitlegar lausnir. Skrif Þórs bera annað hvort vitni um að hann er illa upplýstur um viðkomandi málefni Sveitarfélagsins Álftaness, eða að hann bregður fyrir sig lýðskrumi á kostnað sveitunga sinna. Ef hann og aðrir kjósendur á Álftanesi eru óánægðir með alla þá sem bjóða fram krafta sína í sveitarstjórn þá eru þeir kostir í stöðunni að annað hvort finna aðra hæfari einstaklinga sem vilja annast verkin eða beita sér fyrir breytingu á því sem fyrir er. Innantómar fullyrðingar um að Álftaneslistinn hafi brugðist kjósendum sínum er jafn vitrænt og að berja tóma tunnu. Ég fullyrði að unnið var af heilindum að þeim markmiðum sem kynnt voru fyrir kosningarnar, enda hefur ekki verður sýnt fram á annað. Áformin voru upp á borði og ekki reynt að fela að þau kostuðu þá fjárhagslegu áhættu sem fylgir lántökum. Á móti lánum var gert ráð fyrir tekjum í því sem talið var fyrirsjáanleg framtíð. Þjóðin veit hvernig það fór og því miður er að koma í ljós að fleiri hafa bitið í það súra epli og eiga nú í vök að verjast. Einustu svik Álftaneslista við kjósendur eru þau að tveir bæjarfulltrúar sem Álftaneshreyfingin treysti til að taka sæti á framboðslista sínum ákváðu að fara aðra leið. En landslög leyfa slíkt og því fæst ekki við það ráðið, sama þótt um augljósa brotalöm sé að ræða í þeirri blöndu af lýðræði og flokksræði sem við búum við. Þór og bloggvinir hans eru greinilega í hópi með þeim sem eru óánægðir. Ef þessir einstaklingar eru jafn yfirburðagreindir og látið er í veðri vaka í bloggskrifunum (jafnvel í skjóli nafnleyndar), þá hefði fyrir löngu átt að vera kominn fram valmöguleiki sem dygði til úrbóta. Það var ekki óstjórn sem hrjáði samfélagið á Álftanesi, en samfélagið hefur á yfirstandandi kjörtímabili liðið fyrir ómálefnaleg átök milli fylkinga sem deila eftir línum stjórnmálaflokka líkt og á Alþingi. Í því er Þór enginn aukvisi heldur. Þór væri meiri sómi af að beita sér á þingi fyrir málstað Álftnesinga og stuðla að því að þeir fái sanngjarna meðferð sinna mála af hálfu ríkisins. Ekki væri verra að hann fjallaði um það í fjölmiðlum líka. Sjá má á vefsíðunni www.alftanes.net hvaða stefnumál Álftaneslistinn setti fram og forvitnilegt er að skoða samhljóminn í þeirri framtíðarsýn og Aðalskipulagi Álftaness 2005 - 2024. Álftaneshreyfingin hefur ávallt hvatt íbúana til þátttöku í samfélagslegum viðfangsefnum. Þá sýn eigum við sameiginlega með Þór. Sama má segja um stefnu í náttúruvernd. En, kjósendur völdu Álftaneshreyfinguna til forystu m.a. til að endurvinna deiliskipulag fyrir miðsvæðið og höfnuðu því sem þá var nýbúið að samþykkja af fyrri meirihluta. En með fyrra skipulaginu erfðust miklar kvaðir um byggingamagn auk þess sem þurfti að sjá til þess að með lóðarsölu fengist fé til að greiða niður lán sem tekin voru þegar landspildan var keypt af fyrri eigendum. Við bankahrunið varð svo alger forsendubrestur hvað áform í fjárhagsmálum varðar, ekki ósvipað því sem margt ungt fólk upplifði eftir að hafa keypt húsnæði fyrir nýstofnaða fjölskyldu sína, fjárfestingar sem því var sagt að það myndi ráða vel við að borga niður miðað við launatekjur og framtíðarspár lánastofnanna. Kallast það fyrirhyggjuleysi og óstjórn? Ef valkostur hefði verið í boði árið 2006, með sannfærandi áformum um eitthvað svipað og Álftaneshreyfingin setti fram, utan þess sem kalla má útþenslu, þá er aldrei að vita nema ég hefði hrifist og gefið mitt atkvæði. En hverjum gagnast að tala aðeins um glötuðu tækifærin og hvað allt er ömurlegt og leggja til óskilgreinda endurmönnun í brúnni. Þá vel ég fremur að standa áfram fyrir góðri framtíðarsýn og vinna að settu marki. Álftaneshreyfingin er óháð samtök og öllum frjálst að vinna innan þeirra til að marka framtíð Álftaness með lýðræðislegum umræðum og ákvörðunum. Ég hvet því alla til að kynna sér Álftaneshreyfinguna sem vettvang bæjarmála og afla sér upplýsinga um hvað þau hafa staðið fyrir áður en rokið er til að stofna ný samtök sem yrðu líklega afar svipuð. Fundur Álftaneshreyfingarinnar 1. febrúar ákvað að bjóða á ný fram fulltrúa á Á-lista við sveitarstjórnakosningarnar í maí. Undirbúningur er hafinn, en hreyfingin hvetur alla sem vilja leggja sitt af mörkum fyrir gott samfélag og varðveislu sérkenna Álftaness á höfuðborgarsvæðinu til að gefa sig fram og taka þátt í mótun framboðslistans og baráttumála á stefnuskrá hans. Netfang Álftaneshreyfingarinnar er alftaneshreyfingin@gmail.com og öllum viðeigandi tölvupósti mun verða svarað. Kristinn Guðmundsson, fulltrúi Álftaneslista í skipulags- og byggingarnefnd Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar