Handritaforðinn góði 1. febrúar 2010 06:00 Guðrún S. Guðlaugsdóttir skrifar um Icesave Mikið er ég fegin að handritin eru komin heim. Það var fallegt af Dönum að skila okkur þeim aftur. Ekki er að vita hvað gerist þegar hinn pelsklæddi hluti þjóðarinnar er búinn að fella Icesavesamning nr. 2 í þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. mars. Líklega fer eftir það hver eyrir í að greiða hinar geigvænlegu skuldir þjóðarbúsins og ekki lengur hægt að kaupa matvörur til landsins vegna gjaldeyrishafta. Ekki einu sinni maðkað mjöl, sem dönsku einokunarkaupmennirnir fluttu þó hingað af náð sinni þegar illa áraði á Íslandi í „den tid". Matvörubúðirnar munu standa tómar, uppetið verður kindakjötið og kartöflurnar. Fiskmetið ekkert, útvegsmenn búnir að binda skipaflotann í höfn. En hinir pelsklæddu hafa spil uppi í erminni, - þá hefð á Íslandi að eta gömul handrit í harðindum. Þeir ganga því keikir til atkvæðagreiðslu, handritaforðinn vel geymdur. Sumir landar vilja kannski eta fyrst innflutt góðærisleður af sófum, veski, skó og hanska. En skv. reynslunni þyrfti þjóðaratkvæðagreiðslu um forgangsröðina. Þar tækjust á þeir sem fjárfestu í góðærisleðurskartinu og menningarlegir unnendur handritaarfsins. Hvernig sem sú þjóðaraatkvæðagreiðsla færi kæmu á endanum ný „móðuharðindi" yfir okkur. Einn af öðrum myndu hinir harðgeru Íslendingar leggjast til hinstu hvílu á landshlutaráfi í leit að fæðu. Uppgrafnar yrðu þá rætur allra jurtategunda, meira að segja hinnar marghötuðu lúpínu. Loks myndi landið leggjast í eyði. En það á tímann fyrir sér, öfugt við mannskepnuna. Það mun gróa upp og bíða þess í rólegheitum að nýir sundurlyndisseggir frá meginlandinu komi siglandi. En eitt getum við huggað okkur við - Íslendingar falla með sæmd - án þess að hafa látið þann blett falla á mannorð sitt að borga umsamdar Icesaveskuldir í útlöndum. Á hörðum diskum framtíðarinnar verður í minnum haft að Ísland byggði eitt sinn þjóð sem taldi mikilvægast að muna að „orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur". Höfundur er blaðamaður og rithöfundur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Guðrún S. Guðlaugsdóttir skrifar um Icesave Mikið er ég fegin að handritin eru komin heim. Það var fallegt af Dönum að skila okkur þeim aftur. Ekki er að vita hvað gerist þegar hinn pelsklæddi hluti þjóðarinnar er búinn að fella Icesavesamning nr. 2 í þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. mars. Líklega fer eftir það hver eyrir í að greiða hinar geigvænlegu skuldir þjóðarbúsins og ekki lengur hægt að kaupa matvörur til landsins vegna gjaldeyrishafta. Ekki einu sinni maðkað mjöl, sem dönsku einokunarkaupmennirnir fluttu þó hingað af náð sinni þegar illa áraði á Íslandi í „den tid". Matvörubúðirnar munu standa tómar, uppetið verður kindakjötið og kartöflurnar. Fiskmetið ekkert, útvegsmenn búnir að binda skipaflotann í höfn. En hinir pelsklæddu hafa spil uppi í erminni, - þá hefð á Íslandi að eta gömul handrit í harðindum. Þeir ganga því keikir til atkvæðagreiðslu, handritaforðinn vel geymdur. Sumir landar vilja kannski eta fyrst innflutt góðærisleður af sófum, veski, skó og hanska. En skv. reynslunni þyrfti þjóðaratkvæðagreiðslu um forgangsröðina. Þar tækjust á þeir sem fjárfestu í góðærisleðurskartinu og menningarlegir unnendur handritaarfsins. Hvernig sem sú þjóðaraatkvæðagreiðsla færi kæmu á endanum ný „móðuharðindi" yfir okkur. Einn af öðrum myndu hinir harðgeru Íslendingar leggjast til hinstu hvílu á landshlutaráfi í leit að fæðu. Uppgrafnar yrðu þá rætur allra jurtategunda, meira að segja hinnar marghötuðu lúpínu. Loks myndi landið leggjast í eyði. En það á tímann fyrir sér, öfugt við mannskepnuna. Það mun gróa upp og bíða þess í rólegheitum að nýir sundurlyndisseggir frá meginlandinu komi siglandi. En eitt getum við huggað okkur við - Íslendingar falla með sæmd - án þess að hafa látið þann blett falla á mannorð sitt að borga umsamdar Icesaveskuldir í útlöndum. Á hörðum diskum framtíðarinnar verður í minnum haft að Ísland byggði eitt sinn þjóð sem taldi mikilvægast að muna að „orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur". Höfundur er blaðamaður og rithöfundur.
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar