Ný Bóla Sverrir Björnsson skrifar 16. júlí 2010 06:00 „Er það vilji andskotans umboðslaun eða gróði" að fjármagnseigendum sé bætur skaðinn af bankahruninu en þeir sem ekkert áttu nema skuldir og strit beri kostnaðinn á sínum herðum um ókomin ár? Sagan hefur lag á að endurtaka sig og meginstef sögunnar er að þeir sem verst eru settir í samfélaginu bera byrðarnar af mistökum stjórnvalda og græðgi eignavaldsins. „Ríkur búri ef einhver er, illa máske þveginn, höfðingjar við síðu sér setja hann hægra megin. Fátækur með föla kinn Fær það eftirlæti, á hlið við einhvern hlandkoppinn honum er ætlað sæti." HJ Langlundargeð alþýðu þessa lands er með ólíkindum, þegjandi hefur hún um aldir axlað byrðar af mistökum valdamanna. Einn er þó maður sem óhræddur bauð stjórnvöldum birginn og barðist gegn óréttlætinu með beittu sverði sínu; skáldagáfunni. Hjálmar Jónsson, kenndur við Bólu í Skagafirði, bjó alla tíð við kröpp kjör og fjandsamleg yfirvöld. Hjálmar tók misréttinu ekki þegjandi heldur orti magnaðar vísur sem enn lifa með þjóðinni. Mergjað alþýðuskáld sem gaf hinum kúguðu rödd. Hvöss gagnrýni Hjálmars á auðsöfnun og sérgæsku á erindi við okkur í dag sem og gagnrýni á andvaraleysið og græðgisvæðinguna. „Sálarskip mitt fer hallt á hlið og hrekur til skaðsemdanna, af því það gangur illa við andviðri freistinganna." HJ En hver er minningin um þetta alþýðuskáld örþjóðar, okkar Hróa hött og Spartakus? Styttur af hagmæltum ráðherrum og athafnaskáldum eru dreifðar um allar koppagrundir og styttum af skáldum velþóknanlegum yfirvöldum er hrúgað upp. En að Bólu í Blönduhlíð bælir nálituð sinan sig, slegin niður af rigningunni, bæld af þunga vetrarins. Minning skáldsins lítill minnisvarði, ísblá fjöllin og næðingurinn með hlíðinni örstutt frá þjóðbraut landsins. Það er sorgleg þjóð sem ekki þekkir sögu sína og saga alþýðufólks á Íslandi er að mestu óskrifuð. Talið er að frá upphafi landnáms hafi tvær milljónir Íslendinga dregið lífsandann en af einni milljón fer engum sögum. Hún er horfin í myrkur tímans. Mér segir svo hugur um að týnda þjóðin sé einmitt eignalausa fólkið sem nú axlar þögult byrðarnar, skattahækkanir og niðurskurðinn. Fólkið sem ekkert átti annað en skuldir og erfir fleiri og meiri skuldir frá útrásarvíkingum og vanhæfum stjórnvöldum. Fólkið sem áður fyrr var bundið í þrælahöft höfðingjanna; vistarbandið, sem gerði hvern mann að þræl jarðeigenda. Fólk sem engin vopn hafði til að verja sig en í menningu þess lifðu vísur og kviðlingar sem réttu hlut þeirra og gerðu lífið bærilegra. Dr. Kristján Eldjárn skrifaði um Bólu Hjálmar: „Veraldarsaga Hjálmars Jónssonar er í einu orði sagt saga hins snauða íslenska kotbónda fyrri alda. Hún er öreigasaga frá upphafi til enda. Lífsbarátta hans var eins og sú sem þúsundir hans líka háðu um landið allt, ævilangt návígi við fátækt og skort." Það er löngu kominn tími til að minningu alþýðufólks fyrri alda sé meiri sómi sýndur. Ekki hefur stundin til þess verið betri en einmitt núna þegar höfðingjavaldið hefur steypt þjóðinni á hausinn og alþýðan þarf sem fyrr að taka afleiðingunum „óláns hrekst í stríðan straum og steyti á smánarbergi". Bóla í Skagafirði er tilvalinn staður fyrir ljóða- og lífstílssafn um lífsbaráttu fátæks fólks á fyrri öldum. Staðurinn er sögufrægur og í alfaraleið. Þeir sem málið er skylt ættu að taka til hendinni og heiðra minningu þessa merkilega manns og þessa merkilega fólks með því að reisa ljóða- og lífstílssafn alþýðu fólks á fyrri tíð að Bólu. Alþýðusambandi Íslands, Menntamálaráðuneytinu, Þjóðminjasafninu og afkomendum Bólu Hjálmars ætti að renna blóðið til skyldunnar og taka frumkvæði í málinu. Fyrsta skrefið gæti verið að efna til samkeppni meðal arkitekta um hönnun upplifunarsafns að Bólu. Vel hönnuðu safni þar sem við getum skynjað og skoðað hvernig kjör alþýðufólks voru á hörðustu öldum Íslandsögunnar. Fundið á eigin skinni kuldann, gengið um vistarverurnar, fundið lyktina, séð ljósið af kolatýrunni, snert förtin, smakkað matinn og heyrt hugsanir þess í rímunum. Lesið og séð stuttar ævisögur barna, kvenna og manna. Og þegar við stígum út í sólglitrandi víðáttu Skagafjarðar verður í brjósti okkar lítill glampi af lífi forfeðranna; hörkunni, voninni og stærðinni í smæðinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þau sem borga ekki Silja Sóley Birgisdóttir Skoðun Ég, glæpamaður Daníel Hjörvar Guðmundsson Skoðun Rúllum út rauða dreglinum Pétur Marteinsson Skoðun Það sem Íslendingar þurfa að skilja Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Skoðun Hvað ég skildi um Ísland þegar ég hætti að bera það saman við Napólí Valerio Gargiulo Skoðun Spjaldtölvur í námi nemenda - verkfæri djöfulsins? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Evrópa fyrir íslendinga Ásgeir Þorgeirsson Skoðun Rödd ungs fólks á Seltjarnarnesi þarf að heyrast Auður Halla Rögnvaldsdóttir Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði Skoðun Hættum beit í bænum Davíð Arnar Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði skrifar Skoðun Hér er matur, um mat, frá mat, til fæðubótarefna... Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tryggjum fæðu- og eldsneytisöryggi með uppbyggingu á Dysnesi Pétur Ólafsson skrifar Skoðun Sterk vinnustaðarmenning er lykillinn að góðum árangri Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Nýtt Álftanes á einu kjörtímabili Hreiðar Þór Jónsson skrifar Skoðun Evrópa fyrir íslendinga Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Það sem Íslendingar þurfa að skilja Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Hættum beit í bænum Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun Gagnsæi í ákvarðanatöku Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun í breyttri heimsmynd Erna Björnsdóttir skrifar Skoðun Rödd ungs fólks á Seltjarnarnesi þarf að heyrast Auður Halla Rögnvaldsdóttir skrifar Skoðun Þau sem borga ekki Silja Sóley Birgisdóttir skrifar Skoðun Spjaldtölvur í námi nemenda - verkfæri djöfulsins? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Rúllum út rauða dreglinum Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Ég, glæpamaður Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki vandamálið – hún er hluti af lausninni Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Hvað ég skildi um Ísland þegar ég hætti að bera það saman við Napólí Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Með svipuna á bakinu Rannveig Eyja Árnadóttir skrifar Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að fordæma stríðið í Íran, Líbanon og Gaza Einar Baldvin Árnason skrifar Skoðun Sterk viska í stafni íslenskrar kjarabaráttu Freyr Snorrason skrifar Skoðun Gervigreind, ábyrgð og framtíð samfélags okkar Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Mjallhvít og dvergarnir sjö Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Óveðrið tekur undir með atvinnulífinu Hugrún Elvarsdóttir,Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Er búið að lofa áfengisiðnaðinum atkvæðagreiðslu til að freista þess að stöðva dómsmál? Siv Friðleifsdóttir skrifar Skoðun Viljum við virða mannréttindi fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Maístjörnur verkalýðsins, riddarar hringborðsins eða konungsríki fárra – við viljum von, trú og kærleika Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Kvenheilsa, læknisfræðilegt kannabis og lýðheilsa — tækifæri fyrir Ísland Magnús Þórsson skrifar Skoðun Hættulegasta fitan er ekki sú sem sést utan á líkamanum Anna Lind Fells skrifar Sjá meira
„
Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar
Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Skoðun Ferðaþjónustan er ekki vandamálið – hún er hluti af lausninni Rannveig Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað ég skildi um Ísland þegar ég hætti að bera það saman við Napólí Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að fordæma stríðið í Íran, Líbanon og Gaza Einar Baldvin Árnason skrifar
Skoðun Óveðrið tekur undir með atvinnulífinu Hugrún Elvarsdóttir,Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar
Skoðun Er búið að lofa áfengisiðnaðinum atkvæðagreiðslu til að freista þess að stöðva dómsmál? Siv Friðleifsdóttir skrifar
Skoðun Maístjörnur verkalýðsins, riddarar hringborðsins eða konungsríki fárra – við viljum von, trú og kærleika Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar
Skoðun Kvenheilsa, læknisfræðilegt kannabis og lýðheilsa — tækifæri fyrir Ísland Magnús Þórsson skrifar