Minnihlutinn líti sér nær 5. mars 2010 06:00 Óskar Bergsson skrifar um borgarmál. Minnihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur gagnrýnir að í þriggja ára áætlun borgarinnar verði ekki varið sama fjármagni til nýframkvæmda á árinu 2013 eins og gert hefur verið á árunum 2008-2010. Rétt er að geta þess að meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hefur lagt ríka áherslu á verklegar framkvæmdir eftir efnahagshrunið ekki síst til þess að halda uppi atvinnu við þessar erfiðu aðstæður. Sem dæmi má nefna að heildarframkvæmdir borgarinnar og Orkuveitunnar hafa verið í kringum 25 milljarðar króna bæði fyrir árið 2009 og 2010. Til samanburðar má geta þess að heildarframkvæmdapakki ríkisins fyrir árið 2010 er innan við 10 milljarðar króna. Helstu framkvæmdir borgarinnar og OR eru vegna samningsbundinna verkefna. Hjá borginni má helst nefna uppbyggingu skóla, leikskóla, frístundaheimila, frágang við ný hverfi og uppbyggingu í miðborginni. Hjá Orkuveitunni er framkvæmt við Hellisheiði 5 og gert ráð fyrir Hverahlíðarvirkjun ef viðunandi orkusölusamningar ganga eftir. Til þessara fjárfestinga var stofnað þegar íslenskur byggingariðnaður þurfti mest á því að halda. Eftir þessa miklu uppbyggingu er ekki nema eðlilegt að dregið verði úr framkvæmdum að því tímabili loknu. Reykjavíkurborg hefur þá nýtt tíma samdráttar og erfiðleika í fjárfestingar til framtíðar. Gagnrýni minnihlutans og fullyrðingar um framkvæmdastopp árið 2013 hittir þau sjálf fyrir því samflokksmenn þeirra í ríkisstjórninni standa fyrir framkvæmdastoppi í þessum töluðu orðum. Því miður er það að gerast á tímum þegar mestu skiptir að opinberir aðilar leggi fé til framkvæmda til þess að örva atvinnugrein sem orðið hefur fyrir þungum höggum. Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur hefur væntingar um að hjól atvinnulífsins verði farin að snúast aftur árið 2013 og því sé minni þörf á opinberum framkvæmdum þá en nú. Viðbrögð minnihlutans í borgarstjórn, sem fer nú með stjórn landsmálanna, gefa því miður til kynna að þau sjálf hafi ekki trú á því að það muni ganga eftir. Það veldur vissulega áhyggjum. Höfundur er formaður borgarráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Óskar Bergsson skrifar um borgarmál. Minnihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur gagnrýnir að í þriggja ára áætlun borgarinnar verði ekki varið sama fjármagni til nýframkvæmda á árinu 2013 eins og gert hefur verið á árunum 2008-2010. Rétt er að geta þess að meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hefur lagt ríka áherslu á verklegar framkvæmdir eftir efnahagshrunið ekki síst til þess að halda uppi atvinnu við þessar erfiðu aðstæður. Sem dæmi má nefna að heildarframkvæmdir borgarinnar og Orkuveitunnar hafa verið í kringum 25 milljarðar króna bæði fyrir árið 2009 og 2010. Til samanburðar má geta þess að heildarframkvæmdapakki ríkisins fyrir árið 2010 er innan við 10 milljarðar króna. Helstu framkvæmdir borgarinnar og OR eru vegna samningsbundinna verkefna. Hjá borginni má helst nefna uppbyggingu skóla, leikskóla, frístundaheimila, frágang við ný hverfi og uppbyggingu í miðborginni. Hjá Orkuveitunni er framkvæmt við Hellisheiði 5 og gert ráð fyrir Hverahlíðarvirkjun ef viðunandi orkusölusamningar ganga eftir. Til þessara fjárfestinga var stofnað þegar íslenskur byggingariðnaður þurfti mest á því að halda. Eftir þessa miklu uppbyggingu er ekki nema eðlilegt að dregið verði úr framkvæmdum að því tímabili loknu. Reykjavíkurborg hefur þá nýtt tíma samdráttar og erfiðleika í fjárfestingar til framtíðar. Gagnrýni minnihlutans og fullyrðingar um framkvæmdastopp árið 2013 hittir þau sjálf fyrir því samflokksmenn þeirra í ríkisstjórninni standa fyrir framkvæmdastoppi í þessum töluðu orðum. Því miður er það að gerast á tímum þegar mestu skiptir að opinberir aðilar leggi fé til framkvæmda til þess að örva atvinnugrein sem orðið hefur fyrir þungum höggum. Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur hefur væntingar um að hjól atvinnulífsins verði farin að snúast aftur árið 2013 og því sé minni þörf á opinberum framkvæmdum þá en nú. Viðbrögð minnihlutans í borgarstjórn, sem fer nú með stjórn landsmálanna, gefa því miður til kynna að þau sjálf hafi ekki trú á því að það muni ganga eftir. Það veldur vissulega áhyggjum. Höfundur er formaður borgarráðs.
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar