Ísland á góðan möguleika á HM-sæti Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. desember 2010 12:47 Þorgerður Anna Atladóttir í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Ole Nielsen
Íslenska landsliðið í handbolta mætir Úkraínu í umspili um laust sæti á HM í handbolta sem fer fram í Brasilíu á næsta ári. Dregið var nú í hádeginu í Herning í Danmörku þar sem úrslit Evrópumeistaramótsins ráðast í dag. Ísland var í neðri styrkleikaflokki þegar dregið var í dag en liðin sem urðu í 4.-12. sæti á EM í handbolta voru í þeim efri - að undanskildu Rússlandi sem er ríkjandi heimsmeistari og þegar búið að tryggja sér þátttökurétt á HM í Brasilíu. Úkraína varð í tólfta sæti á EM en Ísland, sem var að keppa á sínu fyrsta stórmóti í handbolta, í fimmtánda sæti. Úkraína er þó með ríka hefð í kvennahandbolta og hefur tekið þátt í nánast öllum stórmótum síðustu sextán árin. Fyrri leikurinn fer fram hér á landi annað hvort 4. eða 5. júní næstkomandi og liðin mætast svo aftur í Úkraínu viku síðar. Noregur og Svíþjóð hafa þegar tryggt sér sæti á HM en þau mætast í úrslitaleik EM í dag. Sigurvegari leiks Dana og Rúmena um bronsið fær einnig farseðilinn til Brasilíu. Leikirnir í umspilinu: Tékkland - Svartfjallaland Holland - Tyrkland Spánn - Makedónía Frakkland - Slóvenía Króatía - Serbía Ísland - Úkraína Þýskaland - Ungverjaland Pólland - Danmörk eða Rúmenía
Handbolti Mest lesið Situr límdur við skjáinn yfir leikjum KR Íslenski boltinn Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Fótbolti Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Enski boltinn Hver sigrar Puffin-hlaupið? Sport Dagskráin í dag: Stútfullur laugardagur Sport Haukur allt í öllu hjá Löwen Handbolti Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Enski boltinn Skellt í lás eftir afhroðið Íslenski boltinn Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Formúla 1 Fleiri fréttir Haukur allt í öllu hjá Löwen Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Magnús kominn heim af sjúkrahúsi en tímabilinu líklega lokið Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Þrettán frá Gidsel en Bjarki og félagar fögnuðu Gríðarlegt áfall ÍBV fyrir úrslitin Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Kraftaverk Einars Braga og félaga dugði skammt Gísli, Ómar og Elvar tóku stórt skref í átt til Kölnar Verður Elvar liðsfélagi Hauks? „Það væri óskastaðan“ Evrópskt stórlið með augu á Degi Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Uppgjörið: FH - Valur 31-25 | FH jafnaði einvígið í Krikanum Stórsigur Stjörnunnar knúði fram oddaleik Magdeburg aftur á sigurbraut eftir erfiða bikarhelgi Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Viktor Gísli áfram í stuði Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Sjá meira