Mæta fúlskeggjaðir á blaðamannafund Seðlabanka Íslands 27. janúar 2010 09:44 Fúlskeggjaðir og ánægðir með ákvörðun seðlabankans. „
Við ætlum að mæta á blaðamannafundinn og fá þetta endanlega staðfest," segir matargerðamaðurinn Úlfar Eysteinsson en hann og Tómas Tómasson, eigandi Hamborgarabúllu Tómasar, munu raka af sér stýrivaxtaskeggið í dag. Eins og kunnugt er þá ákváðu þeir félagar fyrir jól að skerða ekki hár á andliti sínu fyrr en Seðlabanki Íslands lækkaði stýrivexti niður fyrir tíu prósent. Það langþráða markmið þeirra félaga náðist í dag, stýrivextir eru níu og hálft prósent. Spurður hvort hálft prósent þýði ekki að þeir raki eingöngu helming skeggsins, segir Úlfar svo ekki vera. Takmarkið hafi verið skýrt, undir tíu prósent og skeggið fær að fjúka. „Ég er dauðfeginn að losna við þetta mikla magn," segir Úlfar en hann og Tommi hafa verið með svo mikið skegg að þeir léku jólasveina í hjáverkum fyrir jól og þurftu lítið annað en rauðan galla til þess að fullkomna hlutverkið. Spurður hvernig það hafi gengið að vera með svona mikið skegg, hvort það hafi ekki verið til óþæginda, svarar Úlfar: „Um tíma var það allt í lagi. Og kvenpeningnum fannst þetta sjarmerandi. Svo var þetta orðið dálítið mikið." Peningastefnunefnd seðlabankans kynnir stýrivaxtalækkunina og rök fyrir henni á blaðamannafundi klukkan ellefu í dag. Þangað munu Úlfar og Tommi mæta galvaskir en þeir hafa ekki ákveðið hvar þeir munu raka sig.
Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Sjá meira