Skoðun

Miðborgin varin

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar

Skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt að skilgreina miðborg Reykjavíkur sem sérstakt verndarsvæði. Undirbúningur að breytingunni hefur staðið í tvö ár og hún mun gjörbreyta skipulagsmálum í Reykjavík til hins betra. Verði hún rétt framkvæmd verður líklega um að ræða mestu breytingu í sögu skipulagsmála í borginni frá því að farið var að skipuleggja byggðina í Reykjavík. Slík borgarvernd hefur verið innleidd í flestum þeim borgum og bæjum Evrópu og Norður-Ameríku sem teljast mest aðlaðandi og haft gríðarleg áhrif fyrir alla íbúa borganna.

Slík skilgreining markar tímamót og skiptir sköpum við að vinda ofan af skipulagsmistökum fortíðar, eyða óvissu og skapa stöðugleika fyrir íbúa miðbæjarins og stuðla að því að yfirgefin og illa hirt hús verði gerð upp í stað þess að þau séu látin grotna niður.

Í erlendum borgum þar sem hverfisvernd hefur verið innleidd hefur það gjörbreytt ásýnd borgarhlutanna, aukið verðmæti fasteigna og haft mikil áhrif á uppbyggingu ferðaþjónustu. Reynslan er sú að verndarsvæðin gagnast öllum íbúum borganna enda eru þau yfirleitt álitin nokkurs konar sameign allra borgarbúa og skapa aðdráttarafl fyrir borgina alla. Verslun og þjónusta dafnar og ný fjárfesting eykst gjarnan á slíkum svæðum öllum til hagsbóta. Allt stuðlar þetta að auknu viðhaldi húsnæðis og skapar vinnu fyrir iðnaðarmenn.

Skilgreining verndarsvæða skipti t.a.m. sköpum fyrir höfuðborgir Eystrasaltsríkjanna en áður höfðu fjölmargar evrópskar og norður-amerískar borgir innleitt slíka stefnu allt frá því Georgetown í Washington og miðborg Prag voru skilgreind sem verndarsvæði árið 1950. Í Bretlandi og Bandaríkjunum er mikil ásókn íbúa í að fá borgarhluta sína skilgreinda á þennan hátt.

Íbúar miðbæjarins hafa allt of lengi mátt þola óvissu um nærumhverfi sitt, byggingarframkvæmdir þar sem gengið er á umhverfisgæði þeirra sem fyrir eru og óaðlaðandi umhverfi sem fylgir skipulagi eins og því sem nú er verið að hverfa frá í Reykjavík. Breytingin mun þó ekki aðeins gagnast íbúum miðbæjarins heldur borgarbúum öllum og gera Reykjavík að betri stað til að búa.








Skoðun

Skoðun

Afruglari

Þórður Björn Sigurðsson skrifar

Sjá meira


×