Milljarða lóðasala Kópavogsbæjar gæti endað fyrir dómstólum Kristín María Birgisdóttir skrifar 11. ágúst 2009 18:48
Milljarða lóðasala Kópavogs í Glaðheimum er í uppnámi og kann að enda fyrir dómstólum. Kaupandi vill rifta samningi, en bærinn neitar. Kópavogsbær keypti Glaðheimaland í maí 2006 fyrir 3,2 milljarða króna. Þar höfðu hestamenn úr Gusti verið lengi með aðstöðu. Bærinn vildi bæta hestamönnum þetta upp með því að verja tveimur milljörðum í að byggja um nýja aðstöðu á Kjóavöllum. Bærinn seldi svo Glaðheimalandið fyrir sex og hálfan milljarð króna í byrjun árs 2007. Félagið Kaupangur keypti um tvo þriðju landsins og átti að greiða fyrir 4,3 milljarða. Smáratorg keypti eftirstandandi þriðjung en skilaði lóðum sínum til bæjarins í haust. Kaupangur vill nú rifta sínum kaupsamningi og hefur falið lögmönnum sínum samskipti við bæinn. Bærinn hefur svarað og hafnar því að Kaupangur eigi rétt á að hafna samningnum. Málið er einnig á borði bæjarráðs Kópavogs. Jóhannes Sigurðsson, annar eigenda Kaupangs, segir að umsamið land hafi ekki ennþá verið afhent. Kaupangur hafi greitt 500 milljónir króna í hitteðfyrra, vegna þessa. Þetta fé þurfi að koma til baka. Samstarfið við Kópavogsbæ hafi ætíð verið með ágætum, en félagið hafi orðið fyrir tjóni af því að fá ekki landið. Verði önnur leið ekki fær, þurfi að leita til dómstóla. Málið gæti endað þar því Kópavogsbær segir líka að Kaupangur hafi ekki staðið við skuldbindingar sínar. Lítið af kaupverðinu hafi verið greitt og félagið skuldi líka gatnagerðargjöld.
Mest lesið „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Innlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Innlent Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Innlent Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Innlent Sólin gæti litið við í borginni um helgina Veður Fleiri fréttir Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Sjá meira