Fortíðarvandi nýju bankanna 29. apríl 2009 04:00 Mestur hluti útlána íslenzku bankanna í lok september 2008 var fjármagnaður með erlendum lánum. Bankarnir voru því milliliðir erlendra fagfjárfesta og lántakenda innanlands og utan. Í septemberlok voru almenn innlán í krónum um 1.300 milljarðar eða um 8,4% af 14.000 milljarða heildarskuldum bankanna. Þar af voru innlendar skuldir liðlega 3500 milljarðar og erlendar skuldir rúmir 10.300 milljarðar. Áætlanir um endurreisn bankakerfisins hafa frá upphafi byggt á þeirri hugmynd að nýir bankar tækju yfir hluta af eignum og skuldum gömlu bankanna. Nýju bankarnir myndu síðan veita atvinnulífi og heimilum landsins almenna bankaþjónustu en láta skilanefndum gömlu bankanna eftir uppgjör þrotabúa þeirra. Eins og Jón Gunnar Jónsson bankamaður hefur nýlega bent á er mikilvægt að aðferðafræðin við uppstokkun bankakerfisins miði fyrst og fremst að því að nýju bankarnir verðskuldi fullt traust markaðsaðila innanlands og utan í kjölfar endurreisnarinnar. Það verður bezt tryggt með því að 1.300 milljarða innlánin verði yfirtekin af nýju bönkunum ásamt samsvarandi hluta (vafasamra) eigna gömlu bankanna á niðurfærðu verði sem samið yrði um við kröfuhafa gömlu bankanna. Í þessu sambandi hefur komið fram að matsfyrirtækin Deloitte og Oliver Wyman hafa verðmetið eignasafn gömlu bankanna á forsendum sem taka ekki mið af breyttum horfum í efnahagsmálum heims frá sl. hausti. Það er hins vegar áríðandi fyrir trúverðugleika nýju bankanna á komandi tíð að umsamið verð á yfirteknum eignum gömlu bankanna sé ekki umfram raunhæft markaðsvirði þeirra. Áreiðanlegar upplýsingar vantar um skuldir sjávarútvegsfyrirtækja við gömlu bankana, sem fjármálaráðherra sagði á Alþingi 5. marz sl. að væru þrefaldar eða fjórfaldar árstekjur sjávarútvegs. Vaxtakostnaður einn og sér jafngildir því stórum hluta ársteknanna. Það væru því alvarleg mistök sem myndu flækja endurreisn bankakerfisins ef fortíðarvandi/skuldir sjávarútvegs væru fluttar í nýju bankana. Samkvæmt íslenzkum lögum er úthlutaður kvóti ekki varanleg eign einstakra kvótahafa. Þeir erlendu kröfuhafar sem lánað hafa íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum fjármagn gegn veðum í slíkum kvóta taka með því áhættu sem er á þeirra eigin ábyrgð. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Mestur hluti útlána íslenzku bankanna í lok september 2008 var fjármagnaður með erlendum lánum. Bankarnir voru því milliliðir erlendra fagfjárfesta og lántakenda innanlands og utan. Í septemberlok voru almenn innlán í krónum um 1.300 milljarðar eða um 8,4% af 14.000 milljarða heildarskuldum bankanna. Þar af voru innlendar skuldir liðlega 3500 milljarðar og erlendar skuldir rúmir 10.300 milljarðar. Áætlanir um endurreisn bankakerfisins hafa frá upphafi byggt á þeirri hugmynd að nýir bankar tækju yfir hluta af eignum og skuldum gömlu bankanna. Nýju bankarnir myndu síðan veita atvinnulífi og heimilum landsins almenna bankaþjónustu en láta skilanefndum gömlu bankanna eftir uppgjör þrotabúa þeirra. Eins og Jón Gunnar Jónsson bankamaður hefur nýlega bent á er mikilvægt að aðferðafræðin við uppstokkun bankakerfisins miði fyrst og fremst að því að nýju bankarnir verðskuldi fullt traust markaðsaðila innanlands og utan í kjölfar endurreisnarinnar. Það verður bezt tryggt með því að 1.300 milljarða innlánin verði yfirtekin af nýju bönkunum ásamt samsvarandi hluta (vafasamra) eigna gömlu bankanna á niðurfærðu verði sem samið yrði um við kröfuhafa gömlu bankanna. Í þessu sambandi hefur komið fram að matsfyrirtækin Deloitte og Oliver Wyman hafa verðmetið eignasafn gömlu bankanna á forsendum sem taka ekki mið af breyttum horfum í efnahagsmálum heims frá sl. hausti. Það er hins vegar áríðandi fyrir trúverðugleika nýju bankanna á komandi tíð að umsamið verð á yfirteknum eignum gömlu bankanna sé ekki umfram raunhæft markaðsvirði þeirra. Áreiðanlegar upplýsingar vantar um skuldir sjávarútvegsfyrirtækja við gömlu bankana, sem fjármálaráðherra sagði á Alþingi 5. marz sl. að væru þrefaldar eða fjórfaldar árstekjur sjávarútvegs. Vaxtakostnaður einn og sér jafngildir því stórum hluta ársteknanna. Það væru því alvarleg mistök sem myndu flækja endurreisn bankakerfisins ef fortíðarvandi/skuldir sjávarútvegs væru fluttar í nýju bankana. Samkvæmt íslenzkum lögum er úthlutaður kvóti ekki varanleg eign einstakra kvótahafa. Þeir erlendu kröfuhafar sem lánað hafa íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum fjármagn gegn veðum í slíkum kvóta taka með því áhættu sem er á þeirra eigin ábyrgð. Höfundur er hagfræðingur.
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar