Biðjum og styðjum 2. október 2009 06:00 Núna þegar ár er liðið frá efnahagshruninu eiga margar fjölskyldur í miklum fjárhagserfiðleikum. Sumar eiga vart til hnífs og skeiðar. Fyrir ári hefði engan órað fyrir að fólk sem þá var vel bjargálna þyrfti stuðning nú Stofnanir og hjálparsamtök hafa brugðist við stóraukinni þörf fyrir stuðning og hefur aðstoð þeirra margfaldast á einu ári. Aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar hefur vaxið úr rúmlega 900 þúsund krónum í september 2008 í um 8 milljónir króna í september 2009. Hjálparstarf kirkjunnar tekur á móti fólki og býður upp á mataraðstoð, aðstoð við að leysa út lyf, fatnað, skólavörur og fleira eftir aðstæðum. Ennfremur er þar veitt félagsleg ráðgjöf. Næstu tvo sunnudaga 4. og 11. október verður safnað fé í kirkjum landsins til stuðnings við þurfandi fjölskyldur sem farið hafa illa út úr efnahagshruninu. Fólk er hvatt til að mæta í guðsþjónustur og leggja sitt af mörkum. Athygli er vakin á því að leggja þarf fram reiðufé því ekki er hægt að taka við framlögum í kirkjum með öðrum hætti. Einnig er hægt að leggja inn framlag á reikning Hjálparstarfs kirkjunnar í gegnum styrktarsíðuna www.framlag.is eða heimasíðu starfsins www.help.is og á reikning Hjálparstarfsins kt. 450670-0499, reikningsnúmer 334-26-27. Samskot í guðsþjónustum Þjóðkirkjusafnaða hafa ekki verið algeng þótt slíkt sé siður í kirkjustarfi um allan heim. Þó hafa nokkrar kirkjur á höfuðborgarsvæðinu tekið upp þennan háttinn og gefist vel. Þeim fjármunum sem safnast í þessu átaki verður öllum varið til stuðnings þurfandi fjölskyldum á Íslandi. Leggjum af mörkum eins og við getum. Biðjum og styðjum. Höfundur er prestur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson Skoðun Skoðun Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver á íslenska fánann? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Vaðlaheiðargöng: greiðsluvilji er allt sem þarf Hilmar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar Skoðun Verum JÁ-kvæð í ágúst Kristján Kristinsson skrifar Skoðun Nágranninn Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar Skoðun Er ESB að grafa undan eigin hagsmunum? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landhelgisgæslan til taks - í heila öld Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar ,,ríkið” yfirgaf byggðina Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Húsnæðispakkinn Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Lýðræðisveislan í ágúst - Upplýsingar, fullveldi og framtíðarsýn fullvalda þjóðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Meira íslenskt grænmeti er velferðarmál Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun „Biðlisti“ Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun Meira afl fyrir orkuna Gunnar Guðni Tómasson skrifar Sjá meira
Núna þegar ár er liðið frá efnahagshruninu eiga margar fjölskyldur í miklum fjárhagserfiðleikum. Sumar eiga vart til hnífs og skeiðar. Fyrir ári hefði engan órað fyrir að fólk sem þá var vel bjargálna þyrfti stuðning nú Stofnanir og hjálparsamtök hafa brugðist við stóraukinni þörf fyrir stuðning og hefur aðstoð þeirra margfaldast á einu ári. Aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar hefur vaxið úr rúmlega 900 þúsund krónum í september 2008 í um 8 milljónir króna í september 2009. Hjálparstarf kirkjunnar tekur á móti fólki og býður upp á mataraðstoð, aðstoð við að leysa út lyf, fatnað, skólavörur og fleira eftir aðstæðum. Ennfremur er þar veitt félagsleg ráðgjöf. Næstu tvo sunnudaga 4. og 11. október verður safnað fé í kirkjum landsins til stuðnings við þurfandi fjölskyldur sem farið hafa illa út úr efnahagshruninu. Fólk er hvatt til að mæta í guðsþjónustur og leggja sitt af mörkum. Athygli er vakin á því að leggja þarf fram reiðufé því ekki er hægt að taka við framlögum í kirkjum með öðrum hætti. Einnig er hægt að leggja inn framlag á reikning Hjálparstarfs kirkjunnar í gegnum styrktarsíðuna www.framlag.is eða heimasíðu starfsins www.help.is og á reikning Hjálparstarfsins kt. 450670-0499, reikningsnúmer 334-26-27. Samskot í guðsþjónustum Þjóðkirkjusafnaða hafa ekki verið algeng þótt slíkt sé siður í kirkjustarfi um allan heim. Þó hafa nokkrar kirkjur á höfuðborgarsvæðinu tekið upp þennan háttinn og gefist vel. Þeim fjármunum sem safnast í þessu átaki verður öllum varið til stuðnings þurfandi fjölskyldum á Íslandi. Leggjum af mörkum eins og við getum. Biðjum og styðjum. Höfundur er prestur.
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar
Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar
Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar
Skoðun Lýðræðisveislan í ágúst - Upplýsingar, fullveldi og framtíðarsýn fullvalda þjóðar Sigurður Sigurðsson skrifar