Grunnþjónustu stefnt í voða 22. desember 2009 06:00 Eyþór Rúnar Þórarinsson og Rúnar Eyberg Árnason skrifa um grunnþjónustu. Mikið hefur gengið á hér á Suðurnesjum á undanförnum árum og hvergi virðist vera lát þar á. Eitt af því sem við treystum á er að grunnþjónusta sé ekki skert og að við getum búið við öryggi, eða hvað? Fæstir vilja hafa þörf fyrir þjónustu okkar en þegar mikið liggur við er hringt í 112 og óskað eftir aðstoð, og það er sjálfsagt og eðlilegt. En getum við treyst á að við fáum þessa þjónustu í nánustu framtíð? Við skulum svara þessari spurningu aðeins seinna í þessari grein. Skoðum aðeins nánar hvað liggur á bak við hvert útkall. Þegar óskað er eftir aðstoð slökkviliðs eða sjúkrabíls þá fær fólk heim til sín þrautþjálfað fagfólk við oft mjög erfiðar aðstæður. Það tekur að lágmarki þrjú ár að verða fullnuma slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður. Þá er reynslan ekki talin með en hún er að sjálfsögðu mikilvæg. Starfsmannavelta Brunavarna Suðurnesja (B.S.) hefur verið lítil undanfarin ár og þar starfa reynslumiklir menn með langan starfsaldur. Þegar niðurskurður hófst með tilheyrandi látum þá var enginn undanskilin, hvorki við né aðrar stofnanir, urðum við meðal annars á þessu ári að láta sex manns fara sem störfuðu við afleysingar og leystu af í fríum og á námskeiðum og var mikil eftirsjá að þeim strákum. Töldum við að þar væri nóg komið og reyndar meira til. En ríkið hefur ákveðið að ganga lengra í þessum málum og hefur einhliða ákveðið að lækka greiðslur til aðila sem sjá um sjúkraflutninga á Íslandi um 7%. Þessi tala virkar kannski ekki svo há en þess má geta að sveitarfélögin Reykjanesbær, Garður og Vogar hafa borgað 50% með sjúkraflutningum undanfarin ár, þrátt fyrir að ríkið eigi að bera allan kostnað! Er þetta eðlilegt? Þegar við skoðum þetta í þessu samhengi þá getum við ekki annað en skilið að sveitarfélögin vilji spyrna við fótum. Það versta við sparnaðaráform ríkisins er að sparnaðurinn yrði innan við fimm milljónir á ári. Er það þess virði? Hvað þýðir þetta fyrir B.S.? Stjórn B.S. hefur litið á þennan einhliða niðurskurð sem uppsögn á samningi og rennur hann því út 1. júlí 2010. Eftir þann tíma verða sjúkrabílar ekki lengur á vegum B.S. (náist ekki nýir samningar við ríkið) og kemur því til fjöldauppsagna um áramót þar sem stöður átján slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna verða lagðar niður á Suðurnesjum. En það er annað og verra sem hlýst af þessu. Rekstur slökkviliðs er settur í uppnám. Því spyrjum við sveitarfélögin eins og við spyrjum ríkisvaldið: Hvað ætlið þið að gera? Á að fara aftur til fortíðar þegar hér var eingöngu útkallslið? Ávinningurinn sem hlýst af því er einungis lengri útkallstími sem aftur leiðir til þess að við eigum á hættu að stórbrunar verði hér fleiri en undanfarin ár, svo ekki sé minnst á mögulegan mannsskaða. Sveitarfélög sem eru að berjast fyrir því að fá stórfyrirtæki hingað á svæðið svo sem álver eða gagnaver geta ekki haldið að það sé aðlaðandi fyrir þessi fyrirtæki að státa af útkallsliði sem slökkviliði? Við höldum að menn séu ekki búnir að hugsa þessa hugsun til enda og eitt er ljóst að fólkið sem stendur að baki þessum sparnaðaraðgerðum er ekki að hugsa um öryggi fólksins hér á svæðinu. Ef við snúum okkur að spurningunni sem við veltum upp fyrr í greininni, þ.e. hvort hægt sé að treysta á þessa þjónustu í náinni framtíð þá sýnist okkurr svarið vera: Nei. Ágætu íbúar á Suðurnesjum. Viljum við byrja nýtt ár á enn einni fjöldauppsögninni sem þýðir að grunnþjónusta fólksins sé stórlega skert? Svarið er: Nei. Því viljum við starfsmenn Brunavarna Suðurnesja skora á heilbrigðisráðherra og þau sveitarfélög sem standa að Brunavörnum Suðurnesja að standa vörð um slökkviliðið og sjúkraflutninga á Suðurnesjum og þann mikla mannauð sem við teljum að Brunavarnir Suðurnesja hafi á að skipa. Eyþór Rúnar Þórarinsson er formaður LSS-deildar hjá BS. Rúnar Eyberg Árnason er formaður FSBS. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Augnablikið Magnús Jóhann Hjartarson Skoðun Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka Birgir Finnsson Skoðun Sniðgangan á Rapyd slær öll met Björn B. Björnsson Skoðun Það þarf ekki að biðjast afsökunar á því að segja satt Þórður Snær Júlíusson Skoðun Tölum um stóra valdaframsalsmálið Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Listnám er lífsbjörg – opið bréf til ráðherra mennta, félags og heilbrigðismála, til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Dagbjört Andrésdóttir Skoðun Gott frumvarp, en hvað með verklagið? Bogi Ragnarsson Skoðun Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson Skoðun Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks? Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Árið 2023 kemur aldrei aftur Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Alþingi gleymir aftur fötluðum börnum Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lægri gjöld, fleiri tækifæri Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Tölum um stóra valdaframsalsmálið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson skrifar Skoðun Öflugar varnir krefjast stöndugra fréttamiðla Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Gott frumvarp, en hvað með verklagið? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Augnablikið Magnús Jóhann Hjartarson skrifar Skoðun Listnám er lífsbjörg – opið bréf til ráðherra mennta, félags og heilbrigðismála, til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Dagbjört Andrésdóttir skrifar Skoðun Það þarf ekki að biðjast afsökunar á því að segja satt Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og Íslandsbanki, hluthafafundur á mánudag Bolli Héðinsson skrifar Skoðun „Þegar arkitektinn fer á flug“ - opinber umræða á villigötum Eyrún Arnarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfið þarf stjórnvöld með bein í nefinu Svandís Svavarsdóttir skrifar Skoðun Börn eru hvorki veiðigjöld né öryggis- og varnarmál Grímur Atlason skrifar Skoðun Í vörn gegn sjálfum sér? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Mig langar að byggja heim með frið og umlykja með ást Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin stendur með sjúkraliðum Sandra B. Franks skrifar Skoðun Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar Skoðun Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Veiðigjöld, gaslýsingar og valdníðsla Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Sniðgangan á Rapyd slær öll met Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka Birgir Finnsson skrifar Skoðun Árið 2023 kemur aldrei aftur Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Trumpistar eru víða Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar Skoðun Fasteignagjöld eru lág í Reykjavík Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi! Rakel Ýr Isaksen skrifar Skoðun Nýbakaðir foreldrar og óbökuð loforð Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þegar bráðamóttakan drepur þig hraðar Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir skrifar Skoðun Samkeppnin tryggir hag neytenda Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Stóðhryssur ekki moldvörpur Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar Sjá meira
Listnám er lífsbjörg – opið bréf til ráðherra mennta, félags og heilbrigðismála, til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Dagbjört Andrésdóttir Skoðun
Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson Skoðun
Skoðun Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson skrifar
Skoðun Listnám er lífsbjörg – opið bréf til ráðherra mennta, félags og heilbrigðismála, til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Dagbjört Andrésdóttir skrifar
Skoðun Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar
Skoðun Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka Birgir Finnsson skrifar
Skoðun Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi! Rakel Ýr Isaksen skrifar
Listnám er lífsbjörg – opið bréf til ráðherra mennta, félags og heilbrigðismála, til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Dagbjört Andrésdóttir Skoðun
Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson Skoðun