Ormagryfja lýðveldisins 22. desember 2009 06:00 Örn Sigurðsson skrifar um Vatnsmýrarflugvöll Í tilefni að atlögu Birnu Lárusdóttur bæjarfulltrúa á Ísafirði að heiðri okkar talsmanna Samtaka um betri byggð í Morgunblaðsgrein 4. desember telur undirritaður óhjákvæmilegt að árétta eftirfarandi: Frá fyrsta degi borgaralegs flugs í Vatnsmýri 6. júlí 1946 hefur flugstarfsemi þar í síauknum mæli hamlað þróun íslensku höfuðborgarinnar og borgarsamfélagsins og skaðað hagsmuni Íslendinga meira en orð fá lýst. Þennan dag fyrir 63 árum tók samgönguráðherra við rekstri herflugvallarins í Vatnsmýri af breska hernámsliðinu, í andstöðu við bæjarstjórn og íbúa Reykjavíkur, stóran hluta þingheims og gegn helstu hagsmunum Reykvíkinga og landsmanna allra eins og síðar kom í ljós. Samgönguráðherra náði yfirráðum yfir 300ha kjörlendi Reykvíkinga í og við Vatnsmýri, sem þeir fengu 1. janúar 1932 til stækkunar miðbæjarins, yfirráðum yfir 3.000ha lofthelgi vestan Elliðaáa og valdi á skipulagi og þróun byggðar og borgarsamfélags. Gamli miðbærinn lenti þá inni á áhættu- og mengunarsvæði vallarins, undir skerðingarfleti aðalflugbrautarinnar og hefur honum því hrakað jafnt og þétt frá þeim tíma. Stjórnlaus útþensla byggðar hefur helst átt sér stað í nýjum byggðakjörnum, sem spruttu upp í kjölfar þess að Reykjavík var svipt yfirráðum yfir kjörlendi sínu og þar með möguleikanum á frumkvæði og forystu um eðlilega borgarþróun. Ný íbúa- og miðborgarbyggð fékk ekki að þróast í eðlilegum borgartengslum og í beinu framhaldi af gömlu byggðinni heldur dreifðist hún á nokkrum áratugum með ógnarhraða yfir gríðarlegt landflæmi. Þessi nýja svefnbæjabyggð bar keim af þorpum og bæjum víða um land og greiddi því mjög fyrir fólksflutningum af landsbyggðinni. Þannig stuðlaði Vatnsmýrarvöllurinn ekki aðeins að splundrun byggðar og samfélags á höfuðborgarsvæðinu heldur einnig að veikingu margra dreifðra byggða, þar sem íbúafjöldi er nú fyrir neðan mörk sjálfbærni. Árið 2009 þekur 205.000 íbúa byggð á höfuðborgarsvæðinu meira en 13 þúsund hektara lands eða talsvert meira en td. París (2,2 millj. íb. á 8 þús. ha.) og San Francisco (800 þús. íb. á 8 þús. ha.). Frá stríðslokum hefur þéttleiki byggðar hrapað úr 170 í 14 íbúa á hektara. Grunnur nærþjónustu og almannasamgangna brast fyrir löngu og vítahringur einkabílsins varð þess í stað allsráðandi. Umferðarmannvirki og bílastæði þekja nú um helming byggðs land á höfuðborgarsvæðinu. Árið 2008 ráku borgarbúar um 700 einkabíla á hverja 1.000 íbúa. Árlegur akstur kostaði meira en 200 milljarða króna og árleg tímasóun borgarbúa í óþarfan akstur miðað við evrópskar borgir með 450 bíla á 1.000 íbúa nam um 30.000 mannárum og kostaði samfélagið 75 milljarða kr. Vegna misvægis atkvæða í Alþingiskosningum fá borgarbúar stöðugt að kenna á misbeitingu hins illa fengna valds samgönguráðherra yfir örlögum borgarsamfélagsins. Landsbyggðararmar landsmálaflokka á Alþingi (fjórflokkurinn) hafa frá lýðveldisstofnun ráðið lögum og lofum um stefnumótun í samgöngumálum og um ráðstöfun á framkvæmdafé ríkisins. Samgönguráðherrar hafa alltaf komið úr röðum landsbyggðarþingmanna. Með misbeitingu atkvæðamisvægis gulltryggja landsbyggðararmarnir að samgöngunefnd og fjárlaganefnd Alþingis séu áratug eftir áratug nær einvörðungu skipaðar úr þeirra eigin röðum. Á vef Alþingis sést að á s.l. 63 löggjafaþingum frá 1954 áttu höfuðborgarbúar (að meðtöldum Suðurnesjamönnum til 2003) 1,43 nefndarmenn að meðaltali af 9 í samgöngunefnd Alþingis og 2,19 af 11 mönnum í fjárlaganefnd. Á yfirstandandi þingi sitja 2 höfuðborgarbúar í fjárlaganefnd og 1 í samgöngunefnd. Það er rangt gefið. Stoðkerfi lýðveldisins eru morkin. Embætti samgönguráðherra, samgönguráðuneytið, Vegagerðin, Flugstoðir, Flugmálastjórn, samgöngnefnd Alþingis og fjárlaganefnd, þetta eru vopnin, sem landsbyggðararmar landsmálaflokkanna beita af mikilli hörku, annars vegar í algleymi sjálftökunnar í gerspilltu kjördæmapotinu og hins vegar gegn brýnustu hagsmunum borgarbúa, til að negla niður flugvöllinn í Vatnsmýri, til að skera við nögl vegafé til höfuðborgarinnar, nánast eins og til að refsa sameiginlegum óvini. Með sömu valdbeitingu leitast landsbyggðararmar landsmálaflokkanna við að móta stefnu og ákvarðanir samflokksmanna í borgarstjórn Reykjavíkur þegar hagsmunir landsbyggðar og borgarsamfélags virðast skarast. Og þeir beita sér sömuleiðis af alefli gegn ýmsum lýðræðisumbótum, svo sem fjölgun fulltrúa í sveitarstjórnum. Á liðnum áratugum var hlutur höfuðborgarsvæðisins af vegafé til nýframkvæmda um og innan við 25% að meðaltali og fór lækkandi og 2009 er hann um 2,5% þó meira en 70% af árlegum tekjum vegasjóðs komi þaðan. Í framhaldi af framansögðu er vert að vekja athygli kjósenda á framkomnum tillögum um að: A. Vegagerð ríkisins verði lögð niður en í staðinn verði komið á fót vegasamlagi höfuðborgarsvæðisins annars vegar og hins vegar vegastofnun landsbyggðarinnar á Akureyri; B. Fram fari ítarleg stjórnsýsluúttekt á starfháttum samgönguyfirvalda frá lokum seinna stríðs. Höfundur er arkitekt og situr í stjórn Samtaka um betri byggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar