Enski boltinn

Góður sigur hjá Man. City

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Leikmenn Man. City fagna hér marki Micah Richards.
Leikmenn Man. City fagna hér marki Micah Richards. Nordic Photos/Getty Images

Manchester City vann góðan sigur á baráttuglöðu liði Sunderland í enska boltanum. Það var varnarmaðurinn Micah Richards sem skoraði eina mark leiksins.

Leikurinn byrjaði ekki gæfulega fyrir Sunderland því George McCartney var vísað af velli með rautt spjald strax á 15. mínútu.

Man. City fékk kjörið tækifæri til að komast yfir fimm mínútum síðar en Robinho klúðraði vítaspyrnu.

Leikmenn Sunderland börðust hetjulega en stíflan brast á 56. mínútu þegar Richards skoraði.

Man. City komst með sigrinum upp í tíunda sæti deildarinnar en Sunderland er í því fjórtánda.

Staðan í ensku deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×