Burt með skutlið 17. desember 2009 06:00 Dofri Hermannsson skrifar um barnvænt umhverfi. Víða í borginni er bíllinn okkar að verða „aðal" en við sjálf og börnin okkar að verða „auka". Hvernig gerðist það, hugsum við þegar við ökum áhyggjufull framhjá skólanum á leið okkar í vinnuna. Af hverju þarf þetta að vera svona, hugsum við líka þegar við þeysumst úr vinnunni kl. 3 til að skutla börnunum okkar í frístundastarfið og svo aftur í vinnuna áður en það þarf að sækja barnið aftur. Svarið er að þetta þarf ekkert að vera svona en til að breyta þessu þarf að skipta um hugarfar við skipulagningu borgarinnar. Þörf okkar fyrir að komast hratt og örugglega á milli staða hefur nær eingöngu verið leyst með því að búa til góðar götur. Gríðarlegir fjármunir hafa verið settir í umferðarmannvirki á sama tíma og Strætó hefur verið skorinn niður. Þetta er vond þróun og dýr og það erum við sjálf sem borgum brúsann. Í Reykjavík eru farnar um 130 þúsund skutlferðir með börn í frístundir í hverjum mánuði og í þær þurfa foreldrar samtals að eyða rúmlega 100 þúsund klukkustundum og um 170 milljónum á mánuði. Þetta eitt og sér er stór hluti af óþarfri, mengandi og hættulegri umferð í hverfum borgarinnar. Í Grafarvogi hefur frábær árangur náðst með mótun grænnar samgöngustefnu en þar ganga nú 89% barna í skólann. Í hverfinu þar sem næstflest börn ganga í skólann er hlutfallið 66%. Í Grafarvogi fer saman gott skipulag þar sem öryggi gangandi vegfarenda er mikið og samtakamáttur allra helstu aðila í hverfinu um að gera gott hverfi betra. Næsta mál á dagskrá er að laga strætó betur að þörfum barna á leið í frístundir innan hverfisins samkvæmt tillögu Samfylkingarinnar um frístundastrætó í borgarstjórn í haust. Þetta þarf að gera í öllum hverfum borgarinnar til að draga úr þörf fyrir skutl og gera hverfin okkar barnvænni. Höfundur er 1. varaborgarfulltrúi og talsmaður Samfylkingarinnar í umhverfis- og samgöngumálum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Dofri Hermannsson skrifar um barnvænt umhverfi. Víða í borginni er bíllinn okkar að verða „aðal" en við sjálf og börnin okkar að verða „auka". Hvernig gerðist það, hugsum við þegar við ökum áhyggjufull framhjá skólanum á leið okkar í vinnuna. Af hverju þarf þetta að vera svona, hugsum við líka þegar við þeysumst úr vinnunni kl. 3 til að skutla börnunum okkar í frístundastarfið og svo aftur í vinnuna áður en það þarf að sækja barnið aftur. Svarið er að þetta þarf ekkert að vera svona en til að breyta þessu þarf að skipta um hugarfar við skipulagningu borgarinnar. Þörf okkar fyrir að komast hratt og örugglega á milli staða hefur nær eingöngu verið leyst með því að búa til góðar götur. Gríðarlegir fjármunir hafa verið settir í umferðarmannvirki á sama tíma og Strætó hefur verið skorinn niður. Þetta er vond þróun og dýr og það erum við sjálf sem borgum brúsann. Í Reykjavík eru farnar um 130 þúsund skutlferðir með börn í frístundir í hverjum mánuði og í þær þurfa foreldrar samtals að eyða rúmlega 100 þúsund klukkustundum og um 170 milljónum á mánuði. Þetta eitt og sér er stór hluti af óþarfri, mengandi og hættulegri umferð í hverfum borgarinnar. Í Grafarvogi hefur frábær árangur náðst með mótun grænnar samgöngustefnu en þar ganga nú 89% barna í skólann. Í hverfinu þar sem næstflest börn ganga í skólann er hlutfallið 66%. Í Grafarvogi fer saman gott skipulag þar sem öryggi gangandi vegfarenda er mikið og samtakamáttur allra helstu aðila í hverfinu um að gera gott hverfi betra. Næsta mál á dagskrá er að laga strætó betur að þörfum barna á leið í frístundir innan hverfisins samkvæmt tillögu Samfylkingarinnar um frístundastrætó í borgarstjórn í haust. Þetta þarf að gera í öllum hverfum borgarinnar til að draga úr þörf fyrir skutl og gera hverfin okkar barnvænni. Höfundur er 1. varaborgarfulltrúi og talsmaður Samfylkingarinnar í umhverfis- og samgöngumálum.
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar