Lífið

Brotnaði niður hjá Opruh

Kate McCann
Kate McCann
Kate McCann grét á föstudagskvöldið þegar hún kom fram í sjónvarpsþætti Opruh Winfrey og sagðist ekki þekkja dóttur sína á myndum sem sýna hvernig hún gæti litið út í dag. Hún sagðist hinsvegar þekkja Maddie ef hún sæi hana úti á götu en Madeliene litla verður sex ára í næsta mánuði.

Gerry og Kate McCann komu fram í þættinum til þess að minnast þess að nú eru tvö ár liðin síðan dóttir þeirra hvarf þegar þau voru í sumarfríi Portúgal, nokkrum dögum áður en hún varð fjögurra ára gömul.

Tölvusnillingar á vegum Opruh höfðu útbúið ljósmynd af Maddie sex ára gamalli í bláum kjól sem birtist á risa skjá í stúdíóinu fyrir framan fullan sal af áhorfendum.

Einn úr áhorfendaskaranum sagði að Kate hefði sagt Opruh að henni liði eins og Madeleine væri enn á lífi. „Oprah þurfti að minnsta kosti þrisvar að þurrka tár, andrúmsloftið var magnað."

Þátturinn verður sýndir í 144 löndum þann 4.maí en daginn áður eru tvö ár síðan Madeliene McCann hvarf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×