Málsvörn framsóknarmanna 27. maí 2009 06:00 Að undanförnu hefur mikið verið fjallað um viðskipti Kópavogsbæjar við fyrirtækið Frjálsa miðlun sem er í eigu dóttur bæjarstjórans Gunnar I. Birgissonar. Fjölmiðlar hafa gert málinu skil og dregið fram atriði sem krefjast skýringar. Fáir hafa tjáð sig opinberlega en þó eru dæmi um það. Einn af trúarleiðtogum Sjálfstæðisflokksins, Gunnar í Krossinum tjáð sig um máli nýlega. Þá hefur formaður Sjálfstæðisflokksins sagt að hann skorti skilning og upplýsingar um málið. Samfylkingin er málshefjandi en hefur ekki sett fram skýrar kröfur í málinu en það verður að teljast mikilvægt að hún geri það. Framsóknarmenn hafa haldið fund um málið og lauk honum með þeirri ákvörðun að rétt væri að bíða skýrslu endurskoðanda áður en til frekari aðgerða verður gripið. Leggjum við jafnframt áherslu á að vinnan verði vönduð og flýtt eins og unnt er. Þess skal getið að margir framsóknarmanna eru ósáttir við þessa afstöðu og benda á að þarna er möndlar með útsvarspeningana okkar. Til málsbóta verður að segja að uppgefnar tölur eru með virðisauka og aðkeyptri þjónustu svo sem prent kostnaði og fleiru. Þetta er rétt að hafa í huga. Þó sýnist sem einn rauður þráður gangi í gegnum stöðumat margra en það er að samstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á undanförnum árum hefur skilað góðu búi ekki síst á tímabili Sigurðar Geirdal. Má jafnvel segja að þar í felist málsbætur sem komi til refsilækkunar - ef þannig má að orði komast. Það liggur hinsvegar einnig fyrir að Framsóknarflokkurinn mun ekki sitja undir því mati að þessi viðskipti séu eðlileg og ógagnrýniverð og vill leggja sitt af mörkum til að ná sáttum við bæjarbúa. Framsóknarflokkurinn í Kópavogi mun ekki láta sitt eftir liggja og ef Sjálfstæðisflokkurinn finnur ekki leið út úr þessum ógöngunum hljótum við Framsóknarmenn að endurskoða afstöðu okkar til málsins í heild sinni. Höfundur er formaður Framsóknarfélags Kópavogs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Að undanförnu hefur mikið verið fjallað um viðskipti Kópavogsbæjar við fyrirtækið Frjálsa miðlun sem er í eigu dóttur bæjarstjórans Gunnar I. Birgissonar. Fjölmiðlar hafa gert málinu skil og dregið fram atriði sem krefjast skýringar. Fáir hafa tjáð sig opinberlega en þó eru dæmi um það. Einn af trúarleiðtogum Sjálfstæðisflokksins, Gunnar í Krossinum tjáð sig um máli nýlega. Þá hefur formaður Sjálfstæðisflokksins sagt að hann skorti skilning og upplýsingar um málið. Samfylkingin er málshefjandi en hefur ekki sett fram skýrar kröfur í málinu en það verður að teljast mikilvægt að hún geri það. Framsóknarmenn hafa haldið fund um málið og lauk honum með þeirri ákvörðun að rétt væri að bíða skýrslu endurskoðanda áður en til frekari aðgerða verður gripið. Leggjum við jafnframt áherslu á að vinnan verði vönduð og flýtt eins og unnt er. Þess skal getið að margir framsóknarmanna eru ósáttir við þessa afstöðu og benda á að þarna er möndlar með útsvarspeningana okkar. Til málsbóta verður að segja að uppgefnar tölur eru með virðisauka og aðkeyptri þjónustu svo sem prent kostnaði og fleiru. Þetta er rétt að hafa í huga. Þó sýnist sem einn rauður þráður gangi í gegnum stöðumat margra en það er að samstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á undanförnum árum hefur skilað góðu búi ekki síst á tímabili Sigurðar Geirdal. Má jafnvel segja að þar í felist málsbætur sem komi til refsilækkunar - ef þannig má að orði komast. Það liggur hinsvegar einnig fyrir að Framsóknarflokkurinn mun ekki sitja undir því mati að þessi viðskipti séu eðlileg og ógagnrýniverð og vill leggja sitt af mörkum til að ná sáttum við bæjarbúa. Framsóknarflokkurinn í Kópavogi mun ekki láta sitt eftir liggja og ef Sjálfstæðisflokkurinn finnur ekki leið út úr þessum ógöngunum hljótum við Framsóknarmenn að endurskoða afstöðu okkar til málsins í heild sinni. Höfundur er formaður Framsóknarfélags Kópavogs.
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar