Kjánalegar fullyrðingar 5. júní 2009 06:00 Síminn hefur á undanförnum árum misst marga af sínum stærstu viðskiptavinum yfir til Vodafone. Þau eru teljandi á fingrum annarrar handar útboðin sem Síminn hefur unnið, oftast vegna þess að fyrirtækið hefur ekki boðið sambærilegt verð og aðrir en í sumum tilvikum hefur Síminn einfaldlega ekki staðist tæknilegar kröfur í útboðunum. Í því ljósi er sá pirringur forstjóra Símans, sem birtist m.a. á forsíðu Fréttablaðsins í gær og beindist að Vodafone, skiljanlegur. Hinn eflaust ágæti forstjóri hlýtur hins vegar að tala gegn betri vitund þegar hann heldur því fram, að skattgreiðendur þurfi að greiða tugi milljarða svo Vodafone og önnur dótturfélög Teymis (sem er móðurfélag Vodafone) geti starfað áfram á markaði. Slík ummæli eru beinlínis kjánaleg, því ekkert slíkt stendur til. Þvert á móti er fjárhagslegri endurskipulagningu Teymis ætlað að tryggja hagsmuni íslensku bankanna og koma í veg fyrir að byrðar lendi á skattgreiðendum. Engar skuldir verða felldar niður, heldur verður hluta þeirra breytt í hlutafé. Fyrri eigendur missa allt sitt, en nýir eigendur standa eftir með verðmæt fyrirtæki sem skapa þeim miklar tekjur. Rekstur Vodafone gengur vel og sanngjarn hagnaður af starfseminni mun renna til nýju eigendanna. Bankarnir hafa hins vegar lýst því yfir, að þeir hyggist ekki eiga fyrirtækið til lengri framtíðar og selja það hæstbjóðanda í opnu og gagnsæju ferli síðar meir líkt og önnur dótturfyrirtæki Teymis. Starfsmenn Vodafone láta það ekki trufla sín daglegu störf, þótt stærsti keppinauturinn okkar sé með Vodafone á heilanum. Þvert á móti eykur það samheldnina í okkar hópi og viljann til að veita bestu fjarskiptaþjónustuna á markaðnum. Höfundur er upplýsingafulltrúi Vodafone. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller Skoðun Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson Skoðun Umræða um dánaraðstoð krefst mannúðar og varfærni Ingrid Kuhlman Skoðun Rangfærslurnar standa enn og ekkert að þeim vikið Konráð S. Guðjónsson Skoðun Hver lygi skapar skuld við sannleikann Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason skrifar Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Umræða um dánaraðstoð krefst mannúðar og varfærni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Rangfærslurnar standa enn og ekkert að þeim vikið Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hver lygi skapar skuld við sannleikann Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Herskylduhrakspár Haraldar skekkja raunhæfa sýn á varnarmál Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Síminn hefur á undanförnum árum misst marga af sínum stærstu viðskiptavinum yfir til Vodafone. Þau eru teljandi á fingrum annarrar handar útboðin sem Síminn hefur unnið, oftast vegna þess að fyrirtækið hefur ekki boðið sambærilegt verð og aðrir en í sumum tilvikum hefur Síminn einfaldlega ekki staðist tæknilegar kröfur í útboðunum. Í því ljósi er sá pirringur forstjóra Símans, sem birtist m.a. á forsíðu Fréttablaðsins í gær og beindist að Vodafone, skiljanlegur. Hinn eflaust ágæti forstjóri hlýtur hins vegar að tala gegn betri vitund þegar hann heldur því fram, að skattgreiðendur þurfi að greiða tugi milljarða svo Vodafone og önnur dótturfélög Teymis (sem er móðurfélag Vodafone) geti starfað áfram á markaði. Slík ummæli eru beinlínis kjánaleg, því ekkert slíkt stendur til. Þvert á móti er fjárhagslegri endurskipulagningu Teymis ætlað að tryggja hagsmuni íslensku bankanna og koma í veg fyrir að byrðar lendi á skattgreiðendum. Engar skuldir verða felldar niður, heldur verður hluta þeirra breytt í hlutafé. Fyrri eigendur missa allt sitt, en nýir eigendur standa eftir með verðmæt fyrirtæki sem skapa þeim miklar tekjur. Rekstur Vodafone gengur vel og sanngjarn hagnaður af starfseminni mun renna til nýju eigendanna. Bankarnir hafa hins vegar lýst því yfir, að þeir hyggist ekki eiga fyrirtækið til lengri framtíðar og selja það hæstbjóðanda í opnu og gagnsæju ferli síðar meir líkt og önnur dótturfyrirtæki Teymis. Starfsmenn Vodafone láta það ekki trufla sín daglegu störf, þótt stærsti keppinauturinn okkar sé með Vodafone á heilanum. Þvert á móti eykur það samheldnina í okkar hópi og viljann til að veita bestu fjarskiptaþjónustuna á markaðnum. Höfundur er upplýsingafulltrúi Vodafone.
Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason Skoðun
Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar
Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar
Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason Skoðun