Skoðun

Óþolandi vinnubrögð meirihlutans

Sigrún Elsa Smáradóttir og Þorleifur Gunnlaugsson skrifar

Meirihluti stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti á stjórnarfundi í síðustu viku sölu á hlut OR í HS Orku. Vinnubrögðin sem stjórnarmönnum minnihlutans í stjórn OR var boðið uppá voru óásættanleg. Meirihluti framsóknar- og sjálfstæðismanna hefur ekkert lært síðan sömu flokkar sigldu samstarfi sínu í strand fyrr á kjörtímabilinu með sams konar vinnubrögðum sem einnig sneru að einkavæðingu í orkugeiranum.

Stjórnarmenn minnihlutans fengu engin gögn með fundarboði, en á fundinum voru lagðir fram tveir samningar. Annar um kaup á um 15% hlut í HS Orku af Hafnafjarðarbæ og hinn um sölu á 32% hlut í HS Orku til Magma Energy Sweden. Síðari samningurinn var sautján síður og honum fylgdi bunki fylgigagna. Fulltrúar minnihlutans lögðu fram tillögu á stjórnarfundinum þar sem óskað var eftir sólarhrings fresti til að fara yfir gögnin og ráðfæra sig við sérfræðinga. Samningurinn er langur og flókinn og nauðsynlegt að gefa kjörnum fulltrúum kost á að taka upplýsta ákvörðun eins og þeim ber skylda til. Meirihluti stjórnar felldi tillögu um frestun en gerði klukkustundar fundarhlé sem er fráleitt nægur tími. Sú afgreiðsla vekur spurningar um það hvort einn klukkutími hafi nægt stjórnar­mönnum meirihlutans til að kynna sér og samþykkja þennan hörmungarsamning.

Ljóst er að samningurinn við Magma hlýtur að hafa verið tilbúinn 10 dögum fyrir fundinn þegar tilboð Magma rann út og ríkistjórnin bað um frest. Sú staðreynd gerir það enn alvarlegra að stjórnarmönnum minnihlutans hafi ekki verið sendir samningarnir fyrir fund. Þessi vinnubrögð bera mjög keim af þeim vinnubrögðum sem viðhöfð voru í REI málinu. Umboðsmaður Alþingis gerði alvarlegar athugasemdir við framgöngu og upplýsingagjöf í REI-málinu. Þá eins og nú voru það sjálfstæðismenn og framsóknarmenn sem voru í meirihluta í Reykjavík. Þeir virðast ekkert hafa lært.

Höfundar eru borgarfulltrúar og sitja í stjórn OR.




Skoðun

Sjá meira


×