Valkostir vegna Icesave-reikninganna 18. desember 2009 06:00 Ómar Harðarson skrifar um Icesave. Umræðan um Icesave og samningagerð við Breta og Hollendinga, um áhrif slíkra samninga á íslenskt hagkerfi og á stöðu Íslands meðal þjóðanna er komin í marga hringi. Helstu rök og áherslur eru komnar fram. Af umræðum á Alþingi og víðar er ljóst að það eru þrjár leiðir um að velja í sambandi við Icesave: 1. Leið ríkisstjórnarinnar og ganga frá samningnum nú þegar. 2. Leið Sjálfstæðisflokksins og fella samninginn en leita eftir betri samningi. 3. Leið Framsóknarflokksins og Hreyfingarinnar sem og Ögmundar og Lilju og fella samninginn og neita að borga. Meginröksemdir þeirra sem tala fyrir þriðju leiðinni eru tvær. Annars vegar að ekkert skyldar íslenska ríkið til að taka á sig þessar skuldir. Hins vegar að samþykkt ríkisábyrgðar myndi óhjákvæmilega leiða til greiðslufalls ríkisins. Við þetta er tvennt að athuga. Í fyrsta lagi er enginn kröfuhafi tilbúinn til að trúa því að Ísland geti ekki staðið við Icesave-skuldbindingarnar né önnur lán sem á ríkinu hvíla. Hversu mjög sem menn draga útreikninga Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eða stjórnvalda í efa, þá blasir við að allir aðrir utan landsteinanna leggja trúnað á þá. Sömuleiðis er enginn kröfuhafi, né aðrir í alþjóðasamfélaginu, tilbúnir til að skrifa undir þá skoðun að íslenska ríkinu beri ekki að standa á bak við bankakerfið, þ.e. til þrautavara ef innstæðutryggingarsjóður bregst. Afstaða nágrannaþjóðanna skiptir hér öllu máli. Það er þaðan sem erlent lánsfé kemur, þar eru markaðirnir sem Íslendingar þurfa á að halda. Ljóst er þegar að engrar samúðar er að vænta hvað hina svokölluðu dómstólaleið varðar. Frekari þvinganir og lokanir fyrir erlent lánsfjármagn blasa við íslenska ríkinu og einkaaðilum verði þessi leið farin. Ef það er rétt að við séum í reynd gjaldþrota eða verðum það innan tíðar, þá verðum við því miður að ganga þau svipugöng alla leið þangað til öllum öðrum er það ljóst. Þess vegna er þriðja leiðin ófær. Önnur leiðin byggir á því að það sé enn færi á að ná fram betri samningum. Ekki er alveg ljóst hvað Sjálfstæðisflokkurinn telur raunhæft að ná fram umfram núverandi samninga, né heldur hvernig flokkurinn getur ályktað að samningsstaða okkar sé betri nú þegar fjármálamarkaðir hafa jafnað sig og hætta á allsherjarhruni vegna neitunar Íslands á að standa við lágmarkstrygginguna er ekki lengur jafn mikil og haustið 2008. Það er því hætt við að viðsemjendur muni einfaldlega halda áfram að beita íslenska ríkið sama þrýstingi og áður. Verði samningurinn felldur yrði væntanlega úti um núverandi ríkisstjórn. Víst munu margir ekki gráta það, en staðan gagnvart lánardrottnum og helstu viðskiptaþjóðum yrði hins vegar grafalvarleg. Stjórnvöld yrðu strax að bregðast við og reyna að forða verstu afleiðingum slíkrar ákvörðunar, s.s. lokun erlendra markaða, gjaldfellingu erlendra lána og þess háttar og reyna að sannfæra viðsemjendur um að það sé þrátt fyrir allt vilji til samninga. Núverandi ríkisstjórn yrði þó í engri trúverðugri stöðu til þessa, enda þá orðin ómerkingur í tvígang. Allar frekari tafir á stjórnarmyndun yrðu til að þrengja stöðuna enn meir. Þá eru miklir fjárhagslegir hagsmunir í húfi vegna frekari tafa á lausn, jafnvel þótt viðsemjendur yrðu sannfærðir um samningsvilja Íslendinga. Eigur Landsbankans geta ekki á meðan gengið upp í Icesave-skuldina. Það veldur miklum óþarfa vaxtakostnaði. Þá geta frekari tafir á lánaaðstoð frá AGS og Norðurlöndum valdið raunverulegri hættu á gjaldfalli vegna afborgana á næstu árum. Það er þó rétt að benda á að þjóðargjaldþrot myndi hvergi nærri þýða endalok íslensku þjóðarinnar. Aðrar þjóðir, eða a.m.k. valdhafar þeirra, hafa til dæmis tekið ákvarðanir um að hafa alþjóðasamfélagið að engu og fara sínu fram í krafti sérstöðu sinnar. Sumum hefur vegnað ágætlega, s.s. Ísraelsmönnum, öðrum verr eins og t.d. Serbum. Þótt lífskjör fari hér nokkra áratugi aftur í tímann þá er engin ástæða til örvæntingar. Það var líka hægt að búa á Íslandi árið 1970, þótt þjóðin væri bæði fámennari og fátækari þá en nú. Að öllu virtu er hins vegar eina ábyrga afstaðan að ganga frá Icesave-samningnum nú þegar. Verði afborganir of þungar, þá er sjálfsagt að láta síðar reyna á viðeigandi ákvæði samningsins. Svo má trúa stjórnarandstöðunni að til sé nægt lánsfjármagn erlendis á hagstæðum kjörum. Með slíkum lánum mætti endurfjármagna Icesave-skuldbindingarnar og létta þar með greiðslubyrðina. Þau má auðvitað taka strax, og án þess að tefja málið frekar. Höfundur er deildarstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar