Kertafleyting við Tjörnina 6. ágúst 2009 06:00 Í áratugi hafa friðarsinnar á Íslandi komið saman við Tjörnina í Reykjavík og fleytt kertum til að minnast fólksins sem varð fyrir kjarnorkusprengjunum sem var varpað á japönsku borgirnar Hiroshima og Nagasaki. Í ár mun baráttufólk og friðarsinnar enn einu sinni hittast til að minnast atburðarins og setja fram kröfuna um framtíð án kjarnorkuógnar, í Reykjavík, á Akureyri, í Vestmannaeyjum og á Egilsstöðum og e.t.v. víðar hér á landi. „Heimsganga í þágu friðar og tilveru án ofbeldis" er alþjóðleg aðgerð stofnuð af Húmanistahreyfingunni til að vekja menn til vitundar um hversu nauðsynlegt það er að efla frið og skapa samfélög án ofbeldis. Heimsgangan áréttar kröfur sínar um allan heim 6. ágúst næstkomandi. Forsvarsmaður göngunnar, Rafael de la Rubia, mun þá flytja ávarp við hátíðlega athöfn í Hiroshima. Í ávarpinu mun hann meðal annars segja: Tökum saman höndum til stuðnings heimsgöngunni í þágu friðar og tilveru án ofbeldis og gerum eftirfarandi kröfur til þeirra sem deila og drottna: n Kjarnavopnum verði útrýmt um allan heim n Innrásarherir hverfi umsvifalaust heim frá hernumdum svæðum n Hefðbundnum vopnum verði fækkað n Ríki heims geri gagnkvæma samninga um að ráðast ekki hver á önnur n Ríkisstjórnir hafni því að beita stríði sem aðferð til að skera úr deilum Heimsgangan í þágu friðar og tilveru án ofbeldis er ákall til samvisku hvers og eins okkar, hún er röddin sem við þurfum að brýna í sameiningu og siðferðislegt tilboð. Þetta er það sem við verðum að gera á þeim erfiðu tímum sem nú eru. Í dag minnumst við íbúa Hiroshima og Nagasaki, heiðrum minningu þeirra og eflum þá heimshreyfingu sem er bæði opin og margbreytt, hafnar ofbeldi af öllu tagi og lýsir því yfir að ekkert sé verðmætara en mannslíf. Við hvetjum alla landsmenn til að taka undir kröfuna um að eyða kjarnavopnum, leitast við að skapa heim án ofbeldis og mæta í kertafleytinguna kl. 22.30 við Tjörnina í Reykjavík, í Lystigarðinum á Egilsstöðum og á Akureyri. Höfundur er fulltrúi Heimsgöngunnar í samstarfsnefnd friðarhópa. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Skoðun Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar