Tækifæri til áhrifa í Reykjavík 11. desember 2009 06:00 Í Reykjavík fer fram mikilvæg tilraun til aukins íbúalýðræðis með því að gefa öllum Reykvíkingum sextán ára og eldri tækifæri til áhrifa á forgangsröðun verkefna í þeirra hverfi. Þetta er í fyrsta skipti hér á landi sem íbúum sveitarfélags gefst slíkt tækifæri. Kosningunni, sem er bindandi, lýkur mánudaginn 14. desember. Hún fer fram á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/kjostu og í bókasöfnum eða þjónustumiðstöðvum borgarinnar. Verkefnunum, sem valin voru í samráði við íbúasamtök og hverfisráð borgarinnar, er skipt niður í þrjá flokka: a) Leikur og afþreying, b) Samgöngur og c) Umhverfi og útivist. Einungis er verið að kjósa um smærri verkefni og reynt var að hafa að leiðarljósi að þau ykju ánægju, öryggi og/eða þægindi íbúa í hverfunum. Kosningin er auðveld hvort sem er að heiman, úr eigin tölvu eða á bókasöfnum eða þjónustumiðstöðvum. Til að kjósa slá íbúar inn kennitölu, velja hverfi, forgangsraða verkefnum (1 mikilvægast, 2 næst mikilvægast og 3 minnst mikilvægt) og smella svo á „kjósa" hnappinn. Þjónustuver Reykjavíkurborgar veitir einnig aðstoð í síma 411-1111. Um allan hinn vestræna heim leita stjórnvöld leiða til að virkja íbúa til þátttöku í ákvörðunum. Það er mikilvæg aðferð til að endurnýja og styrkja lýðræðið, efla borgarana til þátttöku í samfélagslegum málefnum, auka traust á ákvörðunum stjórnvalda og styrkja tengsl stjórnmálamanna við íbúa og skilning á þeirra þörfum. Við skorum á Reykvíkinga að nýta þetta tækifæri og stuðla þannig að þróun lýðræðis á erfiðum tímum. Gunnar Helgi Kristinsson er prófessor og Margrét S. Björnsdóttir forstöðumaður við Háskóla Íslands. Bæði veittu Reykjavíkurborg ráðgjöf við verkefnið, sem tengist þriggja ára þróunar- og rannsóknaverkefni þeirra um íbúalýðræði og félagsauð sveitarfélaga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Skoðun Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Í Reykjavík fer fram mikilvæg tilraun til aukins íbúalýðræðis með því að gefa öllum Reykvíkingum sextán ára og eldri tækifæri til áhrifa á forgangsröðun verkefna í þeirra hverfi. Þetta er í fyrsta skipti hér á landi sem íbúum sveitarfélags gefst slíkt tækifæri. Kosningunni, sem er bindandi, lýkur mánudaginn 14. desember. Hún fer fram á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/kjostu og í bókasöfnum eða þjónustumiðstöðvum borgarinnar. Verkefnunum, sem valin voru í samráði við íbúasamtök og hverfisráð borgarinnar, er skipt niður í þrjá flokka: a) Leikur og afþreying, b) Samgöngur og c) Umhverfi og útivist. Einungis er verið að kjósa um smærri verkefni og reynt var að hafa að leiðarljósi að þau ykju ánægju, öryggi og/eða þægindi íbúa í hverfunum. Kosningin er auðveld hvort sem er að heiman, úr eigin tölvu eða á bókasöfnum eða þjónustumiðstöðvum. Til að kjósa slá íbúar inn kennitölu, velja hverfi, forgangsraða verkefnum (1 mikilvægast, 2 næst mikilvægast og 3 minnst mikilvægt) og smella svo á „kjósa" hnappinn. Þjónustuver Reykjavíkurborgar veitir einnig aðstoð í síma 411-1111. Um allan hinn vestræna heim leita stjórnvöld leiða til að virkja íbúa til þátttöku í ákvörðunum. Það er mikilvæg aðferð til að endurnýja og styrkja lýðræðið, efla borgarana til þátttöku í samfélagslegum málefnum, auka traust á ákvörðunum stjórnvalda og styrkja tengsl stjórnmálamanna við íbúa og skilning á þeirra þörfum. Við skorum á Reykvíkinga að nýta þetta tækifæri og stuðla þannig að þróun lýðræðis á erfiðum tímum. Gunnar Helgi Kristinsson er prófessor og Margrét S. Björnsdóttir forstöðumaður við Háskóla Íslands. Bæði veittu Reykjavíkurborg ráðgjöf við verkefnið, sem tengist þriggja ára þróunar- og rannsóknaverkefni þeirra um íbúalýðræði og félagsauð sveitarfélaga.
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar