Innlent

Kostar 25 milljónir að ljúka rannsókninni

Þessi birkibútur úr gamalli kolagröf er frá 870.  Vala hefur ekki fundið neitt sem sýnir ótvírætt fram á að í Reykjavík hafi verið föst búseta fyrir þann tíma. Líklegra sé að fólk hafi dvalið hér árstíðabundið, fyrir eiginlegt landnám, en ekki haft fasta búsetu. Fréttablaðið/GVA
Þessi birkibútur úr gamalli kolagröf er frá 870. Vala hefur ekki fundið neitt sem sýnir ótvírætt fram á að í Reykjavík hafi verið föst búseta fyrir þann tíma. Líklegra sé að fólk hafi dvalið hér árstíðabundið, fyrir eiginlegt landnám, en ekki haft fasta búsetu. Fréttablaðið/GVA

Vala Björg Garðarsdóttir fornleifafræðingur segist þurfa tvö sumur og 25 milljónir til að ljúka við uppgröft á leifum frá víkingaöld við Alþingisreit. Hún vonar að verkið verði ekki boðið út á kostnað vísindanna og bendir á að vísindaleg rannsókn, með tilheyrandi samstarfi við háskóla, geti verið ódýrari. Erlendir fræðimenn vilja taka þátt í starfinu.

Uppgrefti fornleifa við Alþingisreit lauk fyrir mánaðamót, samkvæmt áætlun.

Við gröftinn komu í ljós ýmsar leifar allt frá víkingaöld, sem á eftir að skoða betur og ekki var gert ráð fyrir í upphaflegri áætlun. Tyrft var yfir minjarnar aftur og þær skildar eftir óáreittar, að svo stöddu.

Nefnd á vegum menntamálaráðherra fer nú yfir hvað skuli gert við þær menjar sem fundust, og hvernig skuli brugðist við vísbendingum um að enn meiri fornleifar leynist á næstu grösum.

Vill vísindalega rannsóknVala Björg Garðarsdóttir fornleifafræðingur hefur stýrt uppgreftinum. Hún vill helst ekki að haldið verði útboð um verkefnið. „Ég vona að þetta verði skilgreint sem vísindaleg rannsókn og gert á þeirri forsendu en ekki sem björgunaruppgröftur, eins og var,“ segir hún.

Fleiri sérfræðingar muni koma að rannsókninni á víkingaaldar­leifunum en komu að uppgreftinum á Alþingisreitnum sem slíkum. Vala sér fyrir sér samstarf milli minjastofnana, erlendra og innlendra háskóla, ríkis og borgar, en vonandi verði stjórnin í höndum sama fólks og áður, það er Völu og félaga. Skýrsla eftir níu mánuðiSpurð hvenær verði farið í þessar rannsóknir segist Vala vona að það verði næsta sumar, og ekki seinna en sumarið 2011.

„Við höfum níu mánuði til að púsla þessu saman og skila af okkur lokaskýrslu. Við gætum svo klárað rannsóknirnar á víkingaaldarleifunum á tveimur sumrum fyrir kannski 25 milljónir, sem er ekki mikið,“ segir hún.

Í vetur verður unnið úr þeim gögnum sem aflað hefur verið í uppgreftinum, fyrir skýrsluna.

„En af því að þetta fór í útboð er okkur sniðinn nokkuð þröngur stakkur. Þessa vinnu mætti vinna talsvert ítarlegar í vísindalegri rannsókn því þar eru gæði starfsins aðalatriðið og þá kæmu að sérfræðingar og háskólarnir. Ég fæ vonandi að taka þátt í því,“ segir hún. Ódýrari akademíaHún segir Íslendinga ekki gera sér grein fyrir því hversu miklu ódýrara akademíska fyrirkomulagið er.

„Sérfræðingar sem þar koma að eru á styrkjum frá sínum háskólum. Það gæti til dæmis verið doktors­nemi, sem ætlar að sérhæfa sig í járnvinnslu. Þann efnivið má nýta í rannsóknina, en í útboði er slík sérfræðiþjónusta aðkeypt. Það mætti því skoða þessa útboðshugsun aðeins betur.“

Nú sé einnig mjög aðlaðandi fyrir erlenda háskóla að vinna verkefni á Íslandi, því styrkirnir verði tvöfalt hærri hér en erlendis, vegna lágs virðis krónunnar.

„Það er því ekki erfitt að fá erlenda háskóla í þetta samstarf. Við erum þegar búin að heyra í sérfræðingum sem biðja um að koma að verkinu,“ segir Vala fornleifafræðingur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×