Skoðun

Vörður staðinn um Strætó

Jórunn Frímannsdóttir skrifar

Stjórn og stjórnendur Strætó bs. hafa undan­farna mánuði unnið að mótun stefnu og framtíðar­sýnar fyrir fyrirtækið ásamt því að endurskilgreina hlutverk þess sem þjónustufyrirtækis. Stefnumótunin hefur, eðli máls samkvæmt, verið undir áhrifum af þeim efnahagslegu þrengingum sem við búum við um þessar mundir. Fjármagn er af skornum skammti og sterk krafa er um það í samfélaginu að vel sé farið með almannafé um leið og leitast er við að veita góða og styrka þjónustu.





Markmið StrætóHöfuðmarkmið Strætó bs. er að strætósamgöngur á höfuðborgarsvæðinu séu góður og öruggur kostur í samanburði við aðra ferðamáta og stuðli að því að draga úr aukningu bílaumferðar og þeim vandamálum sem henni fylgja. Framtíðarsýn stjórnar Strætó bs. er að í árslok 2014 verði Strætó þekkt sem fyrirmyndarfyrirtæki á sviði umhverfisvænna og skilvirkra strætósamgangna. Þjónusta fyrirtækisins verði framúrskarandi og svari þörfum mikilvægustu markhópa þess.

Leiðakerfið verði skilvirkt og hagkvæmt og starfsfólk ánægt og stolt af sínum störfum. Ímynd fyrirtækisins skal einkennast af virðingu, þjónustulund og vingjarnlegu viðmóti gagnvart notendum. Þá er stefnt að því að nýting fjármagns sem bundið er í rekstrinum verði með því besta sem þekkist og eigendur þess verði ánægðir með samfélagslegt virði þjónustunnar.

Þjónustustefna til framtíðar

Stjórn Strætó bs. hefur skilgreint ítarlega þjónustustefnu í þeirri viðleitni að gera framtíðarsýn sína að veruleika. Hana má nálgast í heild sinni á www.straeto.is.

Meðal helstu lykilmarkmiða er að leiðakerfið skuli vera auðskilið og taki mið af almennum ferðaþörfum. Áhersla verður lögð á þjónustu á annatíma og hún efld eftir þörfum þannig að vagnar á stofnleiðum og öðrum helstu leiðum aki með að minnsta kosti 15 mínútna tíðni. Á öðrum tímum sé þjónustan löguð að eftirspurn og haldið innan eðlilegra kostnaðarmarka. Á minna notuðum leiðum getur tíðnin verið breytileg og í samræmi við notkun. Almennt er stefnt að því að lækka meðalkostnað hverrar ferðar í leiðakerfinu í heild.

Mikilvægt er að hafa í huga að akstursleiðir geta breyst samfara fjölgun eða fækkun farþega. Til grundvallar verða þá hafðar nákvæmar reglubundnar talningar ásamt kostnaðarmati.

Í þjónustustefnunni er mikil áhersla á áreiðanleika, stundvísi og þægindi og í því sambandi verður unnið að því með sveitar­félögunum að strætisvagnar fái aukinn forgang í umferðinni og þeir losaðir eftir megni við umferðartafir.

Lögð verður aukin áhersla á innkaup og notkun umhverfis­­vænna vagna og nýtingu á umverfis­vænum og innlendum orkugjöfum. Þá verða gerðar auknar kröfur til gæða og útbúnaðar í vögnum til að auka þægindi og öryggi.

Almenna markmiðið er að hlutfall þeirra sem nota strætókerfið verði aukið innan næstu fimm ára. Í því sambandi verða markaðs- og kynningarmál efld og m.a. leitast við að kynna almenningssamgöngur sérstaklega í skólum.

Almenningssamgöngur hafa sjaldan verið mikilvægari en einmitt nú. Með stefnumótun Strætó bs. sýna stjórn samlagsins og aðildarsveitarfélög einbeittan vilja sinn til að standa vörð um þjónustuna þannig að hún nýtist sem flestum á eins hagkvæman hátt og kostur er.

Höfundur er stjórnarformður Strætó bs.






Skoðun

Sjá meira


×