Framhald á svipugöngum Vinstri grænna Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. júlí 2009 15:29 Tryggvi Þór Herbertsson er afar óánægður með það að málið skyldi hafa verið tekið úr nefnd. Mynd/ GVA.
Sjálfstæðismenn eru mjög ósáttir við að Icesave málið skyldi hafa verið tekið út úr efnahags- og skattanefnd, segir Tryggvi Þór Herbertsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í nefndinni. Málið verður ekki rætt frekar í efnahags- og skattanefnd en Tryggvi telur að enn séu að berast nýjar upplýsingar á hverjum degi sem muni hafa áhrif á niðurstöðu málsins þegar um það verða greidd atkvæði á Alþingi. „Sérstaklega erum við ósátt við þetta af því að það liggur ekkert á því að taka þetta mál út," segir Tryggvi og bendir á að það sé ekki búið að ákveða hvenær málið verði tekið úr fjárlaganefnd. „Hver dagur sem málið hefði verið lengur inni, því betra, og þar af leiðandi skiljum við ekki þessi vinnubrögð," segir Tryggvi. Tryggvi segist telja sig vita að einn fulltrúi Vinstri grænna sé á móti málinu og hafi tekið undir þau sjónarmið sem minnihlutinn hafi verið með. „Hún mætir ekki á fund og það er sendur varamaður sem tryggir meirihluta í nefndinni til að það sé hægt að taka málið út úr nefnd. Þetta er svona áframhald á þeim svipugöngum sem Vinstri grænir virðast vera í," segir Tryggvi. Tryggvi segir það vera alveg klárt mál að minnihlutinn skili séráliti í málinu. „Ég get ekki séð betur en að það sé mun ítarlegra og nákvæmara en álit meirihlutans. Sem er náttúrlega óneitanlega sérstakt," segir Tryggvi.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Myrtu fjörutíu manns í kirkju Erlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira