Hver vill mig í vinnu? Sigrún Bragadóttir skrifar 3. desember 2009 06:00 Ég er að verða fertug og hef verið á vinnumarkaðnum í 20 ár. Ég er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Ég útskrifaðist árið 2000 og hef unnið á tveimur vinnustöðum síðan. Ég hef mikla reynslu í eignastýringu fagfjárfesta. Sjóðurinn sem ég stýrði var með eina af bestu ávöxtun á síðasta ári. Ég hef unnið í bókhaldi frá því ég var í menntaskóla. Ég þekki merkingu fylgiskjala, afstemmingu og uppsetningu ársreikninga frá a-ö. Ég er harðdugleg og samviskusöm. Líst ykkur ekki vel á mig? Jú kannski, en samt fæ ég hvergi vinnu. Ég hef verið frá vinnu í tæpa 6 mánuði, er komin á atvinnuleysisbætur og var að fá útborgað kr. 96.589. Ég veit að ég er ein af 16.000 en það lætur mér ekkert líða betur. Ég hef gert allt sem mér dettur í hug til að næla mér í atvinnu. Ég er á skrá hjá atvinnumiðlunum, ég hef látið alla sem ég þekki vita að ég er að leita mér að vinnu. Ég hef sent upplýsingar um mig til starfsmannastjóra fyrirtækja. Ég fylgist með atvinnuauglýsingum í blöðum og á netinu og hef sótt um a.m.k. 60 störf. Ég hef einu sinni komist í viðtal og síðan ekki söguna meir. Ég pantaði mér viðtal hjá Vinnumálastofnun. Ég vildi fá aðstoð við að reyna enn betur. „Haltu áfram því sem þú ert að gera, ekki gefast upp." Nei, nei ég er ekkert að gefast upp en hvað get ég gert meira? Jú, ég hef boðið mig fram sem sjálfboðaliða hjá Rauða krossinum og ABC en þeir hafa ekki þegið aðstoð mína. Hvað ætla stjórnvöld að gera? Að semja um greiðslur á Icesave reddar mér ekki vinnu. Að skerða fæðingarorlofsgreiðslur reddar mér ekki vinnu. Að herða reglur þeirra sem þiggja atvinnuleysisbætur reddar mér kannski vinnu. Ég má ekki afþakka boð um vinnu þá missi ég bæturnar. Ég vil bara segja það við hæstvirtan félagsmálaráðherra að ég mun ekki afþakka boð um vinnu. Ég menntaði mig og náði mér í starfsreynslu til þess að vera á vinnumarkaðnum. Verði mér boðið afgreiðslustarf, skúringastarf eða annað þjónustustarf mun ég segja já takk. Ég hef aldrei verið atvinnulaus áður og mér finnst þessi staða ömurleg. Ég hálfpartinn skammast mín fyrir stöðu mína. Mér finnst eins og ég hafi brugðist, eins og ég hafi ekki staðið mig nógu vel. En ef ég lít aðeins upp úr svartnættinu, getur þá verið að fleiri en ég hafi brugðist? Getur verið að ég hafi misst vinnuna vegna þess að útrásarvíkingar, eftirlitsaðilar og stjórnvöld töpuðu sýn í góðærinu? Getur verið að þessir aðilar séu meginástæða þess að við þessi 16.000 sitjum heima og fáum krafta okkar ekki nýtt? Ég vil vinna, ég þrái það að komast út á morgnana, hitta vinnufélagana, fá mér kaffibolla og setjast við tölvuna og kljást við verkefni. Það er það sem ég vil gera. Í staðinn sit ég heima, kraftar mínir og andlegt þrek dalar með degi hverjum og ég fyllist hálfgerðu vonleysi. Höfundur er atvinnulaus viðskiptafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Herskylduhrakspár Haraldar skekkja raunhæfa sýn á varnarmál Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Skoðun Skoðun Herskylduhrakspár Haraldar skekkja raunhæfa sýn á varnarmál Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Sjá meira
Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason Skoðun
Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar
Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason Skoðun