Skoðun

Lífsspursmál

Steinar Rafn Garðarsson skrifar um lengdan útkallstíma slökkviliðs.

Slökkvilið Hveragerðis hefur um langa hríð sinnt klippu-útköllum vegna umferðarslysa á Suðurlandsvegi og Hellisheiði ásamt öðrum vegum í Ölfusi. Slökkvilið Hveragerðis er ákaflega sterkt á þessu sviði og á mjög öflugan og góðan búnað til þessara starfa, búnað í hæsta gæðaflokki. Slökkvilið Hveragerðis hefur einna mesta þekkingu og reynslu af klippu-störfum af slökkviliðum á Suðurlandi vegna fjölda alvarlegra umferðarslysa á þeirra svæði, auk þess eru slökkviliðsmenn liðsins með mikla reynslu og menntun á þessu sviði. Hefur liðið haft á sér mjög gott orð fyrir fagleg, snögg og góð störf á vettvangi.

Suðurlandsvegur er einn fjölfarnasti og jafnframt einn hættulegasti vegur landsins. Á síðustu árum hefur fjöldi alvarlegra umferðarslysa orðið á vegkaflanum frá Litlu kaffistofunni að Ingólfsfjalli. Á árunum 2007 og 2008 var slökkvilið Hveragerðis kallað út um 24 sinnum með klippur til björgunar á fólki úr bílflökum og voru flest þessara útkalla á þessum hluta Suðurlandsvegar, en af þessum 24 útköllum voru 5 banaslys.

Um síðustu áramót sagði sveitarfélagið Ölfus upp þjónustusamningi sem sveitarfélagið hafði gert við Hveragerðisbæ um rekstur slökkviliðsins, þjónustu sem slökkvilið Hveragerðis hefur séð um í sveitarfélaginu Ölfusi fram til þessa. Sveitarstjórn Ölfuss undirritaði nú á dögunum samning við Brunavarnir Árnessýslu um að BÁ taki við öllum þeim verkefnum sem slökkvilið Hveragerðis hefur séð um í sveitarfélaginu Ölfusi. Nánar tiltekið hefur slökkvilið Hveragerðis séð um öll klippu-störf í Ölfusinu og um allar brunavarnir á því svæði sem nær hefur verið Hveragerði en Þorlákshöfn.

Um næstu áramót taka Brunavarnir Árnessýslu (BÁ) Selfossi við þessari þjónustu og kemur það til með að lengja útkallstíma vegna umferðarslysa á þjóðvegi 1 verulega. Svæðið nær allt frá Ingólfsfjalli að Litlu kaffistofunni, Þrengslunum og öllum öðrum vegum í Ölfusi. Viðbragðstími slökkviliðs Hveragerðis er með því besta sem gerist í hlutastarfandi slökkviliðum og hefur það í mörgum tilvikum verið á undan bæði lögreglu og sjúkraliði á vettvang. Kemur útkallstími til með að lengjast verulega og sem dæmi má nefna að þegar þörf verður á að kalla til klippur vegna alvarlegs umferðarslyss á Hellisheiði tekur það slökkvibíl frá BÁ allt að 15 til 20 mínútum lengur að komast á vettvang heldur en slökkvibíl frá Hveragerði.

Þetta er tími sem ekki má missa þegar um alvarleg umferðarslys er að ræða og fólk er í bráðri lífshættu því þá skiptir hver mínúta miklu máli og getur undirritaður vart til þess hugsað hvaða afleiðingar þessi aukna bið getur haft í för með sér.

Undirritaður er starfandi sjúkraflutningamaður og þekkir því vel hvað lengri bið eftir aðstoð getur þýtt þegar kemur að björgun mannslífa. Er það von mín, og margra annarra, að yfirstjórn Brunavarna Árnessýslu og sveitarstjórn Ölfuss taki þessa hluti til skoðunar og láti til hliðar alla samkeppni og hrepparíg og hugsi fyrst og fremst um hag þeirra einstaklinga sem munu þurfa á þessari aðstoð að halda. Tryggjum vegfarendum áfram öruggustu og fljótusu þjónustuna með samningi við slökkvilið Hveragerðis á þeim svæðum sem slökkvilið Hveragerðis er fljótara á vettvang. ÞAÐ ER LÍFSSPURSMÁL!

Höfundur er EMT-I og formaður Brunavarðafélags Hveragerðis.




Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Sjá meira


×