Norrænt velferðarkerfi á Íslandi II Guðmundur Magnússo skrifar 18. september 2009 06:00 Nú er mikilvægt að ná peningum frá fjármagnseigendum (næst að vísu ekki í það sem er á Tortóla). Allir þeir peningar sem liggja til ávöxtunar í fjármálastofnunum eru því skattlagðir með s.k. fjármagnstekjuskatti sem tekinn er bæði af vöxtum og verðbótum. Auk þess verða lífeyrisþegar fyrir skerðingum á bótum almannatrygginga ef að fjármagnstekjur fara upp fyrir um 98.000 kr. á ári. (tvísköttun!) Þannig að 20% verðbólga í vetur var ágóði ríkissjóðs. Varasjóður lífeyrisþega á verðtryggðri bók að upphæð u.þ.b. 500 þús. kr., kláraði frítekjumarkið og það sem var umfram skerti bætur hans frá Tryggingastofnun ríkisins, sem felldi jafnvel niður bótaflokk og þar með réttindi til niðurgreiðslu á sjúkraþjálfun, svo dæmi sé tekið. En þetta eru nú bara öryrkjar sem hafa hvorki meðallaun né heimili en svífa einhvers staðar í lausu lofti ofan og utan við samfélag „venjulegs fólks"! Eins og að framan greinir er fjármagnstekjuskatturinn reiknaður bæði af vöxtum og verðbótum, sem er hrein eignaupptaka. Það væri eðlilegt að reikna af raunvöxtum og ætti ekki að vera neitt flókið á tölvuöld. Tökum dæmi: Kona nokkur er að safna fyrir fremur dýrri tannaðgerð, en nær aldrei markinu. Því jafnframt að greiða skatt af verðbótunum, sem skerðir í raun höfuðstólinn, koma þær einnig til skerðinga á lífeyrinum. Þetta er viðbót við þær skerðingar sem urðu 1. júlí vegna atvinnutekna eða lífeyrissjóðstekna. Þegar kjör öryrkja eru borin saman við aðra hópa í samfélaginu er mikilvægt að muna að hér er oft um ævitekjur að ræða, sem ekki er auðvelt að auka með annarri vinnu, eða að sjá fram á bættan fjárhag. Lífeyrisþegar skorast ekki undan ábyrgð og eru reiðubúnir að taka á sig sinn skerf af byrðunum, en það er fráleitt að ætlast til að þeir borgi hlutfallslega mest! Höfundur er varaformaður ÖBÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson Skoðun Skoðun Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver á íslenska fánann? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Vaðlaheiðargöng: greiðsluvilji er allt sem þarf Hilmar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar Skoðun Verum JÁ-kvæð í ágúst Kristján Kristinsson skrifar Skoðun Nágranninn Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar Skoðun Er ESB að grafa undan eigin hagsmunum? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landhelgisgæslan til taks - í heila öld Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar ,,ríkið” yfirgaf byggðina Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Húsnæðispakkinn Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Lýðræðisveislan í ágúst - Upplýsingar, fullveldi og framtíðarsýn fullvalda þjóðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Meira íslenskt grænmeti er velferðarmál Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun „Biðlisti“ Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun Meira afl fyrir orkuna Gunnar Guðni Tómasson skrifar Sjá meira
Nú er mikilvægt að ná peningum frá fjármagnseigendum (næst að vísu ekki í það sem er á Tortóla). Allir þeir peningar sem liggja til ávöxtunar í fjármálastofnunum eru því skattlagðir með s.k. fjármagnstekjuskatti sem tekinn er bæði af vöxtum og verðbótum. Auk þess verða lífeyrisþegar fyrir skerðingum á bótum almannatrygginga ef að fjármagnstekjur fara upp fyrir um 98.000 kr. á ári. (tvísköttun!) Þannig að 20% verðbólga í vetur var ágóði ríkissjóðs. Varasjóður lífeyrisþega á verðtryggðri bók að upphæð u.þ.b. 500 þús. kr., kláraði frítekjumarkið og það sem var umfram skerti bætur hans frá Tryggingastofnun ríkisins, sem felldi jafnvel niður bótaflokk og þar með réttindi til niðurgreiðslu á sjúkraþjálfun, svo dæmi sé tekið. En þetta eru nú bara öryrkjar sem hafa hvorki meðallaun né heimili en svífa einhvers staðar í lausu lofti ofan og utan við samfélag „venjulegs fólks"! Eins og að framan greinir er fjármagnstekjuskatturinn reiknaður bæði af vöxtum og verðbótum, sem er hrein eignaupptaka. Það væri eðlilegt að reikna af raunvöxtum og ætti ekki að vera neitt flókið á tölvuöld. Tökum dæmi: Kona nokkur er að safna fyrir fremur dýrri tannaðgerð, en nær aldrei markinu. Því jafnframt að greiða skatt af verðbótunum, sem skerðir í raun höfuðstólinn, koma þær einnig til skerðinga á lífeyrinum. Þetta er viðbót við þær skerðingar sem urðu 1. júlí vegna atvinnutekna eða lífeyrissjóðstekna. Þegar kjör öryrkja eru borin saman við aðra hópa í samfélaginu er mikilvægt að muna að hér er oft um ævitekjur að ræða, sem ekki er auðvelt að auka með annarri vinnu, eða að sjá fram á bættan fjárhag. Lífeyrisþegar skorast ekki undan ábyrgð og eru reiðubúnir að taka á sig sinn skerf af byrðunum, en það er fráleitt að ætlast til að þeir borgi hlutfallslega mest! Höfundur er varaformaður ÖBÍ.
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar
Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar
Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar
Skoðun Lýðræðisveislan í ágúst - Upplýsingar, fullveldi og framtíðarsýn fullvalda þjóðar Sigurður Sigurðsson skrifar