Fá þeir fátækustu ekki hækkun? 9. desember 2009 06:15 Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 kemur fram að þeir fátækustu fá enga hækkun á sinni framfærslu sem er og verður 115.567 kr. á mánuði. Svo virðist sem núverandi meirihluti í Reykjavík hafi hvorki áhuga né skilning á aðstæðum þeirra sem fátækastir eru í samfélaginu og hafa því hafnað tillöguflutningi okkar fulltrúa Samfylkingarinnar um hækkun fjárhagsaðstoðar. Við höfum lagt til hækkun í samræmi við hækkun lágmarkslauna eða um 13.500 á mánuði og yrði þá grunnurinn 129.067 kr. Sú tillaga var felld með 4 atkvæðum meirihluta velferðarráðs 18. nóv. sl. en vísað til gerðar fjárhagsáætlunar. Þar gerðist ekkert. Kostnaður við þessa hækkun er tæplega 163 milljónir króna á ársgrundvelli og merkilegt að tillagan hafi ekki verið tekin upp af meirihlutanum þegar í ljós kom að tekjur borgarinnar yrðu á næsta ári 2,6 milljörðum meiri en áætlað hafði verið. Það er hlutverk sveitarfélaga að tryggja að íbúar þeirra geti lifað með reisn. Sem höfuðborg á Reykjavík að vera í fararbroddi sveitarfélaga um félagslega þjónustu og það var borgin lengst af. Reykjavík var fyrst sveitarfélaga til að greiða sérstaka fjárhagsaðstoð til barna árið 2005. Þá var upphæðin 10 þús. á mánuði en er nú 11.365 kr. Þá tók Reykjavíkurborg upp jólauppbót árið 2003 án þess að dæmi væru um slíkt hjá öðrum sveitarfélögum. Þrátt fyrir að íslenskt samfélag horfi nú upp á stórfellda fjölgun þeirra sem búa við fátækt hafa reglur um fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar ekki tekið neinum breytingum. Formaður velferðarráðs segir mikilvægt að hafa skýrar og gegnsæjar reglur. Það er mikilvægt, en mikilvægast er að sjá að núverandi framfærsluaðstoð Reykjavíkur dugir fólki ekki til að draga fram lífið. Það er óumræðanlega sárt þegar jólin nálgast. Ég trúi því ekki fyrr en á reynir að borgarstjórnarmeirihlutinn sitji fast við þá ákvörðun að hækka ekki framfærslu þeirra sem fátækastir eru. Þau geta treyst því að við fulltrúar Samfylkingarinnar munum samþykkja hækkun fjárhagsaðstoðarinnar – um það verður ekki pólitískt moldvirði. Höfundur er borgarfulltrúi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 kemur fram að þeir fátækustu fá enga hækkun á sinni framfærslu sem er og verður 115.567 kr. á mánuði. Svo virðist sem núverandi meirihluti í Reykjavík hafi hvorki áhuga né skilning á aðstæðum þeirra sem fátækastir eru í samfélaginu og hafa því hafnað tillöguflutningi okkar fulltrúa Samfylkingarinnar um hækkun fjárhagsaðstoðar. Við höfum lagt til hækkun í samræmi við hækkun lágmarkslauna eða um 13.500 á mánuði og yrði þá grunnurinn 129.067 kr. Sú tillaga var felld með 4 atkvæðum meirihluta velferðarráðs 18. nóv. sl. en vísað til gerðar fjárhagsáætlunar. Þar gerðist ekkert. Kostnaður við þessa hækkun er tæplega 163 milljónir króna á ársgrundvelli og merkilegt að tillagan hafi ekki verið tekin upp af meirihlutanum þegar í ljós kom að tekjur borgarinnar yrðu á næsta ári 2,6 milljörðum meiri en áætlað hafði verið. Það er hlutverk sveitarfélaga að tryggja að íbúar þeirra geti lifað með reisn. Sem höfuðborg á Reykjavík að vera í fararbroddi sveitarfélaga um félagslega þjónustu og það var borgin lengst af. Reykjavík var fyrst sveitarfélaga til að greiða sérstaka fjárhagsaðstoð til barna árið 2005. Þá var upphæðin 10 þús. á mánuði en er nú 11.365 kr. Þá tók Reykjavíkurborg upp jólauppbót árið 2003 án þess að dæmi væru um slíkt hjá öðrum sveitarfélögum. Þrátt fyrir að íslenskt samfélag horfi nú upp á stórfellda fjölgun þeirra sem búa við fátækt hafa reglur um fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar ekki tekið neinum breytingum. Formaður velferðarráðs segir mikilvægt að hafa skýrar og gegnsæjar reglur. Það er mikilvægt, en mikilvægast er að sjá að núverandi framfærsluaðstoð Reykjavíkur dugir fólki ekki til að draga fram lífið. Það er óumræðanlega sárt þegar jólin nálgast. Ég trúi því ekki fyrr en á reynir að borgarstjórnarmeirihlutinn sitji fast við þá ákvörðun að hækka ekki framfærslu þeirra sem fátækastir eru. Þau geta treyst því að við fulltrúar Samfylkingarinnar munum samþykkja hækkun fjárhagsaðstoðarinnar – um það verður ekki pólitískt moldvirði. Höfundur er borgarfulltrúi.
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar