Gott gengi í upphafi varð okkur að falli 28. júlí 2009 06:15 Ásgeir Jónsson, höfundur Why Iceland? „
Eitt af því sem varð Íslandi að falli var of gott gengi í upphafi. Efnahagsumbætur eftir hrun þorsksins 1988 og opnun landsins á tíunda áratugnum gáfu landsmönnum góðan aðgang að erlendum fjármagnsmörkuðum og sköpuðu forsendur fyrir 15 ára velmegunartíma," segir Ásgeir Jónsson, hagfræðingur og forstöðumaður greiningardeildar Nýja Kaupþings. „En því miður fórum við fram úr sjálfum okkur undir lokin með hrapallegum afleiðingum." Á föstudag kom út bók eftir Ásgeir sem ber heitið Why Iceland? eða Af hverju Ísland? Í bókinni fjallar Ásgeir um aðdraganda hrunsins og hvað hafi farið úrskeiðis hérlendis. Ásgeir lýsir meðal annars stöðutöku erlendra vogunarsjóða gegn krónunni. Hann segir að frá árinu 2006 hafi Íslendingar litið útrás bankanna öðrum augum en útlendingar. Íslendingar hafi séð yfirtökur á erlendum stofnunum sem alþjóðavæðingu og áhættudreifingu en erlendir aðilar hafi séð hana sem stækkun íslenska bankakerfisins. Hann segir að bankahrunið sjálft hafi ekki verið óumflýjanlegt. Því miður hafi íslensku bankarnir byrjað of seint að selja eignir þó allar aðgerðir hefðu ávallt verið sársaukafullar. Ekki hafi heldur verið til nægur gjaldeyrisforði til þess að yfirvöld gætu gripið inn í með trúverðugum hætti. Einnig skorti tilfinnanlega samvinnu milli Seðlabankans og bankanna. „Það sem gerði þó lokaútslagið var alger neitun frá stærstu seðlabönkum hins vestræna heims að koma Íslandi til hjálpar". Aðspurður segir Ásgeir bókina ekki vera persónulegt uppgjör við þátttöku sína í íslenska bankaævintýrinu. Hann sé aðeins sögumaður og reyni að sýna heiðarleika sem slíkur. „Ég neita þó ekki minni ábyrgð," segir hann. Það sé þó nokkuð annað að horfa fram en aftur. Honum finnst þó nokkurrar ósanngirni gæta í umræðunni um hvað greiningardeildirnar eigi að hafa sagt og ekki sagt. Hann bendir á að sérfræðingar Citigroup hafi mælt með kaupum á hlutabréfum í Kaupþingi í júlí 2007. „Staðreyndin er þó sú að nær enginn bjóst við því að fjármálakreppan yrði jafn djúp og raun bar vitni og í kjölfarið er ljóst að mörg viðtekin lögmál í bankarekstri verða nú tekin til endurskoðunar. Það nægir að nefna að árið 2008 hafði enginn banki í Evrópu orðið gjaldþrota í þrjátíu ár. Þar fyrir utan er líklega enginn Íslendingur samur eftir atburði vetrarins ég er þar vitanlega meðtalinn."
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Innlent „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans Sjá meira