Skoðun

Menningaruppeldi

Fyrir frumkvæði Samfylkingar og VG í borgarstjórn voru tveir starfshópar settir á laggirnar árið 2007. Báðir áttu að grandskoða hvernig efla mætti list- og menningaruppeldi í leik- og grunnskólum borgarinnar. Margar góðar tillögur eru afrakstur vinnunnar auk mikilvægrar upplýsinga um stöðu listgreinakennslu og menningaruppeldis í skólum borgarinnar. Eins fór fram mikilvæg úttekt á samstarfi skóla við menningarstofnanir og kröftug, þverfagleg umræða átti sér stað.

Nú þegar er hafið spennandi tilraunaverkefni um menningartengilið milli skólasviðanna og menningar- og ferðamálasviðs sem miklar vonir eru bundnar við. Fjölmargar aðrar tillögur liggja fyrir og bíða þess að komast til framkvæmda.

Menning geymir sjálfsmynd þjóðar. Seint verður ítrekað nægilega mikilvægi þess að börn og ungmenni fái ríkuleg tækifæri til að kynnast menningu og listum. Það eflir sjálfstraust þeirra og skilning, víkkar sjóndeildarhringinn og reynir á ólíka hæfileika. Nú þegar öllum skólum er gert að hagræða er brýnt að hafa í höndunum vandaða úttekt á stöðu list- og menningaruppeldis í skólum.

Við vitum nú hvað vel er gert, hvar við getum gert betur og hvað við viljum standa vörð um. Á Þjóðfundi Íslendinga kom fram eindreginn vilji til að efla menntun og menningu. Nú gefst dýrmætt tækifæri til að endurskoða áherslur skólakerfisins og undirstrika gildi menningarinnar í menntun barna og unglinga.

Samræmdar mælingar á bóklegum fögum eru mikilvægar en segja einungis hálfa söguna. Ábyrgð okkar sem förum með stefnumótun er að styðja við skapandi skólasamfélag, fjölbreytt nám og námsmat. Það er skóli framtíðarinnar.

Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingar.




Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Sjá meira


×