Punktar um leiki helgarinnar á Englandi 6. febrúar 2009 15:34 Robbie Keane verður væntanlega með Tottenham í grannaslagnum NordicPhotos/GettyImages
Leikur helgarinnar í enska boltanum verður án efa grannaslagur Tottenham og Arsenal á sunnudaginn þar sem þessir erkifjendur mætast í 144. sinn. Rússneski leikmaðurinn Andrei Arshavin sem á dögunum gekk í raðir Arsenal verður væntanlega í hóp liðsins þegar það sækir Tottenham heim klukkan 13:30 á sunnudaginn. Robbie Keane leikur væntanlega sinn fyrsta leik fyrir Tottenham eftir að hafa komið aftur til félagsins frá Liverpool á dögunum. Keane hefur strax verið gerður að fyrirliða liðsins. Grannarnir í norðurhluta Lundúna eru á ólíkum stað í deildinni en bæði lið þurfa lífsnauðsynlega á stigum að halda - Arsenal í baráttunni um meistaradeildarsæti og Tottenham í fallbaráttunni. Emmanuel Eboue er klár í slaginn hjá Arsenal en þeir Abou Diabi, Cesc Fabregas, Theo Walcott og Tomas Rosicky eru sem fyrr meiddir. Liverpool verður án fyrirliða síns Steven Gerrard þegar það sækir Portsmouth heim í kvöldleiknum á laugardaginn. Liverpool þarf mjög nauðsynlega á sigri að halda eftir slakt gengi frá áramótum og því ætti heimsókn til Portsmouth að vera fínn vettvangur til að ná liðinu á strik á ný. Tony Adams gæti gefið grísku nýliðunum Angelos Basinas og Theofanis Gekas tækifæri, en Jermaine Pennant má ekki spila gegn uppeldisfélagi sínu. Portsmouth hefur gengið afleitlega í tíð Tony Adams og veitir ekki af stigunum. Manchester United gæti endurheimt þá Wayne Rooney fyrir leikinn gegn West Ham á Upton Park á morgun klukkan 16:00 en Gary Neville er veikur og missir af leiknum. Petr Cech er meiddur í baki og verður ekki með Chelsea þegar liðið mætir Hull City klukkan 15 á laugardaginn. Ricardo Quaresma gæti þarna spilað sinn fyrsta leik með Chelsea eftir að hafa komið sem lánsmaður frá Inter. Varnarmaðurinn Bernard Mendy hjá Hull tekur út leikbann. Newcastle fær góð tíðindi fyrir útileik gegn West Brom í fallbaráttunni. Liðið hefur endurheimt framherjana Alan Smith, Mark Viduka og Obafemi Martins. Þá eru nýju leikmennirnir Ryan Taylor, Kevin Nolan og Peter Lovenkrands allir heilir en miðjumaðurinn Jonas Gutierrez er í leikbanni. Framherjinn Jay Simpson og miðjumaðurinn Robert Koren eru tæpir hjá West Brom og varnarmaðurinn Gianni Zuiverloon er í leikbanni. Shay Given gæti vel spilað sinn fyrsta leik fyrir Manchester City þegar liðið tekur á móti Middlesbrough sem er í bullandi vandræðum í deildinni. Boro endurheimtir þó miðjumennina Didier Digard og Gary O´Neil úr leikbanni. Nýliðarnir Tal Ben-Haim og Calum Davenport gætu komið við sögu hjá Sunderland þegar liðið tekur á móti Stoke á morgun klukkan 15, en Anton Ferdinand er ekki leikfær. Brasilíumaðurinn Jo fær væntanlega sitt fyrsta tækifæri með Everton á morgun klukkan 15 þegar liðið tekur á móti Bolton. Jo gekk í raðir Everton frá Man City í janúarglugganum. Miðjumennirnir Olivier Dacourt og Giles Barnes gætu spilað sinn fyrsta leik fyrir Fulham klukkan 15 á morgun þegar liðið sækir Wigan heim. Charles N´Zogbia gæti spilað sinn fyrsta leik með Wigan eftir að hafa komið frá Newcastle.
Enski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Sjá meira