Óvissa ríkir um starfsleyfi Menntaskólans 13. ágúst 2009 05:45 Áætlað er að Menntaskólinn hefji starfsemi sína í húsi heilsuverndarstöðvarinnar í byrjun september næstkomandi. Mynd/GVA „
Það er nokkuð bratt að halda að menntaráð afgreiði svo stórt mál, eins og stofnun nýs grunnskóla, bara sisvona. Yfirleitt höfum við tekið okkur mun lengri tíma í svona lagað og það segir sig sjálft að við munum taka okkur allan þann tíma sem við þurfum til að skoða þessa umsókn. Það má ekki taka styttri tíma að stofna grunnskóla en að opna bar. Það eru ekki góð skilaboð," segir Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingar, sem situr í menntaráði Reykjavíkurborgar. Umsókn um stofnun nýs grunnskóla í húsi gömlu Heilsuverndarstöðvarinn-ar við Barónsstíg, Menntaskólans, sem áætlað er að hefji störf í byrjun september, barst ráðinu síðastliðinn föstudag og var formlega lögð fyrir til umsagnar á fundi ráðsins í gær. Menntaráð hefur umsóknina nú til faglegrar meðferðar. Umsögn þess verður síðan lögð fyrir menntamálaráðherra til formlegrar viðurkenningar og leyfis fyrir stofnun skólans. Oddný bendir á að umsókn um nýjan tæknigrunnskóla hafi verið samþykkt af menntaráði í byrjun júní. „Þar var um að ræða sérlega vel ígrundaða umsókn, en þar á bæ telja menn sig samt ekki tilbúna til að hefja störf fyrr en haustið 2010," segir Oddný. Að sögn Katrínar Jakobsdóttur, menntamálaráðherra, kemur ráðuneytið ekki að ferlinu nema með áðurnefndri leyfisveitingu. „Það er mjög mikil hraðferð á þessu öllu saman, en ég veit ekki hvar málið er statt hjá sveitarfélaginu," segir Katrín. Kjartan Magnússon, borgar-fulltrúi Sjálfstæðisflokks og formaður menntaráðs, vill hvorki tjá sig um tímasetningu umsóknarinnar, né hvenær umsögn ráðsins um umsóknina fer fyrir menntamálaráðherra. „Við erum að fara yfir gögnin. Þegar því lýkur munum við afgreiða málið frá okkur með einhverjum hætti," segir Kjartan. Edda Huld Sigurðardóttir, fyrrum skólastjóri Ísaksskóla og einn aðstandenda Menntaskólans, segist mjög vongóð um að umsóknin verði samþykkt. „Í sjálfu sér er ekkert mál fyrir okkur að hnika upphafi skólaársins til um viku ef þess þarf. Auðvitað hefði verið betra að leggja fram umsókn í apríl eða maí, en þá var hugmyndafræðin á bak við skólann ekki komin svona langt," segir Edda. Hún segir ótal börn hafa verið skráð í skólann með fyrirvara um að leyfið verði komið í hús. Allir starfsmenn hafi þegar verið ráðnir.
Mest lesið „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Innlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Innlent Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Innlent Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Innlent Sólin gæti litið við í borginni um helgina Veður Fleiri fréttir Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Sjá meira