Uppsagnir munu ekki hafa áhrif á þjónustu Krabbameinsfélagsins Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. ágúst 2009 11:43 Guðrún Agnarsdóttir segir að þjónusta Leitarsviðsins muni ekki breytast. Mynd/ Arnþór
Skipulagsbreytingar á Leitarsviði Krabbameinsfélagsins munu ekki hafa nein áhrif á þá þjónustu sem Krabbameinsfélag Íslands veitir skjólstæðingum sínum, hvorki í þéttbýli né dreifbýli. Vísir greindi frá því í gær að sex geislafræðingar á Leitarsviði myndu missa vinnuna. „Það er ævinlega leitt þegar segja þarf upp góðu starfsfólki en meginhlutverk og markmið Leitarsviðs Krabbameinsfélagsins er að tryggja starfsemi krabbameinsleitar og sjá til þess að þjónusta verði ekki skert," segir Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér vegna málsins. Guðrún segir í yfirlýsingunni að undanfarna mánuði hafi Krabbameinsfélag Íslands unnið að endurskipulagningu á Leitarsviði. Ástæða þess sé bæði takmörkun á rekstrarfé vegna almenns niðurskurðar í heilbrigðismálum og breyttar aðstæður vegna nýrrar stafrænnar tækni sem tekin var í notkun á síðasta ári. Við mat á verkferlum eftir upptöku stafrænnar tækni hafi orðið ljóst að áætluð þörf fyrir geislafræðinga til að geta boðið upp á óskerta þjónustu væri nú 5.3 til 6.0 stöðugildi í stað 7 stöðugilda áður. Þáttur í endurskipulagningu hafi því óhjákvæmilega verið uppsögn geislafræðinga frá og með 1. júní. Í kjölfar þess hafi verið rætt við alla geislafræðinga, staðan endurmetin og flestum boðin endurráðning í skertu starfshlutfalli með fyrirvara um að tækist að manna röntgendeildina með viðunandi hætti. Í ljós hafi komið að það reyndist ekki unnt.
Mest lesið Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Fleiri fréttir Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Sjá meira