Hlægilegur metingur dagblaðanna um lestur og traust 18. desember 2009 06:00 Hermann Þórðarson skrifar um dagblaðalestur. Stórblöðin Morgunblaðið og Fréttablaðið hafa á undanförnum misserum þráttað um hvort blaðið sé vinsælla og hvort blaðið njóti meira trausts hjá þjóðinni. Mælikvarðinn sem notaður er við þetta mat er einskis virði og ekki marktækur. Fréttablaðið mælir vinsældir sínar í því hve margir lesa blaðið í samanburði við Morgunblaðið. Fréttablaðið, eins og allir vita, er frítt og dreift um allt land. Það er því ekkert eðlilegra en að það blað sé meira lesið en blöð sem eru seld eins og Morgunblaðið og DV. Morgunblaðið heldur því fram að meirihluti þjóðarinnar treysti því best. Hvernig er það mat framkvæmt og á hvaða gögnum er það byggt? Áskrifendum Morgunblaðsins hefur fækkað verulega á undanförnum mánuðum. Það þýðir ekki endilega að færri lesi það en áður. Sumir vilja meina að fækkun áskrifenda sé vegna aðkomu Davíðs Oddssonar að blaðinu. Eitthvað gæti verið til í því en ég held að aðalástæðan sé fyrst og fremst versnandi hagur almennings í landinu sem sparar það við sig sem hann getur án verið. Og hvernig fær Morgunblaðið út þessa niðurstöðu? Ekkert er eðlilegra en að þeir sem enn kaupa Morgunblaðið séu ánægðir með blaðið sitt og treysti því best. En hve stór er sá meirihluti í raun og veru? Mér finnst að blöðin eigi að hætta þessum fáránlega metingi því hann skiptir í reynd engu máli. Sjálfur les ég öll blöðin og er áskrifandi að Morgunblaðinu og DV. Ég vil ekki vera án neins þeirra. Nota mætti það pláss í blöðunum sem fer undir þessar steindauðu auglýsingar þeirra um ágæti sjálfs síns, t.d. með auknu skemmtiefni fyrir lesendur og auknum íþróttafréttum, en þar standa Fréttablaðið og DV sig ekki nógu vel. Fréttir af íþróttum kvenna eru oft fátæklegar og þar er Morgunblaðið ekki undanþegið. Þessari ósk er hér með komið á framfæri við ritstjóra blaðanna. Höfundur er fyrrverandi flugumferðarstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar einhverfan er ósýnileg: Stúlkur og konur á einhverfurófi Vigdís M. Jónsdóttir Skoðun Til kennara og foreldra í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir,Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Við viljum ekki Sæbrautarstokk í nýja nefnd Regína Ásvaldsdóttir Skoðun Kaupmaðurinn á horninu er svarið Einar Mikael Sverrisson Skoðun Eru heimgreiðslur verkfæri djöfulsins? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Fleiri fána! Guðmundur Edgarsson Skoðun Brottflutningur bandarísks herliðs frá Evrópu Arnór Sigurjónsson Skoðun Þegar niðurstaðan kemur á undan greiningunni Erna Bjarnadóttir Skoðun Kerfisbundinn ránsfengur: Hvernig OHF-væðingin breytti lýðveldinu í sjálfsafgreiðslustöð Sigurður Sigurðsson Skoðun Allir æfa – Reykjavík á hreyfingu Rúnar Freyr Gíslason,Hafrún Kristjánsdóttir,Bjarni Fritzson Skoðun Skoðun Skoðun Skólinn á að rúma okkur öll Rakel Viggósdóttir ,Rósanna Andrésdóttir skrifar Skoðun Þurfum við nýtt kerfi í stað jafnlaunavottunar? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn stendur með Reykvíkingum - strax Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Eru heimgreiðslur verkfæri djöfulsins? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Allir æfa – Reykjavík á hreyfingu Rúnar Freyr Gíslason,Hafrún Kristjánsdóttir,Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Til kennara og foreldra í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir,Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Byrjum á grunninum ekki þakinu Sigurlaug Vigdís Einarsdóttir skrifar Skoðun Brottflutningur bandarísks herliðs frá Evrópu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Geðheilbrigðisvandi, taktu númer…. Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég kýs með leikskólahjartanu Kristín Dýrfjörð skrifar Skoðun Fleiri fána! Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Við viljum ekki Sæbrautarstokk í nýja nefnd Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Þegar niðurstaðan kemur á undan greiningunni Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Kaupmaðurinn á horninu er svarið Einar Mikael Sverrisson skrifar Skoðun Kerfisbundinn ránsfengur: Hvernig OHF-væðingin breytti lýðveldinu í sjálfsafgreiðslustöð Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Flokkur fólksins þorir og getur Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Hin leiðin í umferðarmálum Gunnar Einarsson skrifar Skoðun Hraðar heim Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Kristrún og Kópavogsskatturinn – opið bréf frá leikskólastjóra í Kópavogi Egill Óskarsson skrifar Skoðun Hugsum lengra en næstu kosningar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þegar einhverfan er ósýnileg: Stúlkur og konur á einhverfurófi Vigdís M. Jónsdóttir skrifar Skoðun Er byggðastefna á Íslandi? Eyþór Stefánsson skrifar Skoðun Góð, betri, best Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar Skoðun Byrgjum brunninn í stað þess að byggja brunna Bryndís Rut Logadóttir skrifar Skoðun Eru verkalýðsfélög úrelt eða bara óþægileg sumum? Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Tímaskekkjan er ekki verkalýðshreyfingin Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Allt frítt í Garðabæ, eða ábyrgur rekstur ? Lárus Guðmundsson skrifar Skoðun Eigum við að forgangsraða börnunum okkar? Ester Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ætti Ísland að taka þátt í PISA? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun Betri heilsa – betri Kópavogur Arnar Grétarsson skrifar Sjá meira
Hermann Þórðarson skrifar um dagblaðalestur. Stórblöðin Morgunblaðið og Fréttablaðið hafa á undanförnum misserum þráttað um hvort blaðið sé vinsælla og hvort blaðið njóti meira trausts hjá þjóðinni. Mælikvarðinn sem notaður er við þetta mat er einskis virði og ekki marktækur. Fréttablaðið mælir vinsældir sínar í því hve margir lesa blaðið í samanburði við Morgunblaðið. Fréttablaðið, eins og allir vita, er frítt og dreift um allt land. Það er því ekkert eðlilegra en að það blað sé meira lesið en blöð sem eru seld eins og Morgunblaðið og DV. Morgunblaðið heldur því fram að meirihluti þjóðarinnar treysti því best. Hvernig er það mat framkvæmt og á hvaða gögnum er það byggt? Áskrifendum Morgunblaðsins hefur fækkað verulega á undanförnum mánuðum. Það þýðir ekki endilega að færri lesi það en áður. Sumir vilja meina að fækkun áskrifenda sé vegna aðkomu Davíðs Oddssonar að blaðinu. Eitthvað gæti verið til í því en ég held að aðalástæðan sé fyrst og fremst versnandi hagur almennings í landinu sem sparar það við sig sem hann getur án verið. Og hvernig fær Morgunblaðið út þessa niðurstöðu? Ekkert er eðlilegra en að þeir sem enn kaupa Morgunblaðið séu ánægðir með blaðið sitt og treysti því best. En hve stór er sá meirihluti í raun og veru? Mér finnst að blöðin eigi að hætta þessum fáránlega metingi því hann skiptir í reynd engu máli. Sjálfur les ég öll blöðin og er áskrifandi að Morgunblaðinu og DV. Ég vil ekki vera án neins þeirra. Nota mætti það pláss í blöðunum sem fer undir þessar steindauðu auglýsingar þeirra um ágæti sjálfs síns, t.d. með auknu skemmtiefni fyrir lesendur og auknum íþróttafréttum, en þar standa Fréttablaðið og DV sig ekki nógu vel. Fréttir af íþróttum kvenna eru oft fátæklegar og þar er Morgunblaðið ekki undanþegið. Þessari ósk er hér með komið á framfæri við ritstjóra blaðanna. Höfundur er fyrrverandi flugumferðarstjóri.
Kerfisbundinn ránsfengur: Hvernig OHF-væðingin breytti lýðveldinu í sjálfsafgreiðslustöð Sigurður Sigurðsson Skoðun
Allir æfa – Reykjavík á hreyfingu Rúnar Freyr Gíslason,Hafrún Kristjánsdóttir,Bjarni Fritzson Skoðun
Skoðun Allir æfa – Reykjavík á hreyfingu Rúnar Freyr Gíslason,Hafrún Kristjánsdóttir,Bjarni Fritzson skrifar
Skoðun Til kennara og foreldra í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir,Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar
Skoðun Kerfisbundinn ránsfengur: Hvernig OHF-væðingin breytti lýðveldinu í sjálfsafgreiðslustöð Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Kristrún og Kópavogsskatturinn – opið bréf frá leikskólastjóra í Kópavogi Egill Óskarsson skrifar
Kerfisbundinn ránsfengur: Hvernig OHF-væðingin breytti lýðveldinu í sjálfsafgreiðslustöð Sigurður Sigurðsson Skoðun
Allir æfa – Reykjavík á hreyfingu Rúnar Freyr Gíslason,Hafrún Kristjánsdóttir,Bjarni Fritzson Skoðun