Ólíkt hafast menn að 18. desember 2009 06:00 Ásgrímur Sverrisson skrifar um niðurskurð til kvikmyndagerðar. Fleira er líkt með Íslandi og Írlandi en nöfnin. Bæði löndin styðja t.d. kvikmyndagerð með opinberu fé. Bæði löndin fengu rækilega að kenna á því við bankahrunið í fyrra og þurfa að skera verulega niður í opinberri þjónustu. Á Íslandi var gert ráð fyrir 34% niðurskurði á fé til kvikmyndagerðar í fjárlagafrumvarpi. Á Írlandi lagði sérstök nefnd til í sumar að Írski kvikmyndasjóðurinn yrði lagður niður. Galnar hugmyndir báðar, en kannski skiljanlegar þegar menn eru í heljargreipum örvæntingar gagnvart þrítugum hamrinum. Yfirleitt endar það þó með því að menn skríða upp úr holunni og taka sig saman í andlitinu.En ólíkt hafast menn aðÁ Írlandi ákváðu þeir á dögunum að loka ekki Írska kvikmyndasjóðnum. Í staðinn var ákveðið að skera framlög til hans niður um 5%, ögn minna en 6% meðaltals niðurskurður til listgreina. Þeir eru sem sagt komnir upp úr holunni. Þeir munu hafa komist að þessari niðurstöðu vegna hins menningarlega, sjálfsmyndarlega, ímyndarlega og efnahagslega gildis kvikmynda fyrir Írland. Menningarmálaráðherrann Martin Cullen hafði sérstaka forgöngu um að berja þetta í gegn og lagði hann sérstaka áherslu á mikilvægi menningar og skapandi starfa fyrir landið á alþjóðlegum vettvangi. Á Íslandi lagði Fjárlaganefnd Alþingis hins vegar til á dögunum að draga lítilsháttar úr niðurskurðinum; frá 34% í 23%. Hér eru menn sem sagt enn þá í holunni. Þegar fjárlagafrumvarpið var lagt fram tók Katrín Jakobsdóttir menningarmálaráðherra skýrt fram í viðtali við Fréttablaðið að þarna sé ekki verið að horfa til listgreinarinnar sem slíkrar og að hún skildi vel áhyggjur kvikmyndagerðarmanna. Jafnframt sagðist hún reikna með að menn myndu horfa til þess að íslensk kvikmyndagerð taki ekki bara við peningum heldur skili líka tekjum aftur í ríkiskassann. Ekkert hefur enn komið fram um að hún meini stakt orð. Niðurskurður til annarra listgreina er að meðaltali um 4%. Engin fer yfir 6%. Nema kvikmyndagerð. Gerð er tillaga um sexfalt hærri niðurskurð af dýnamískri listgrein sem skilar ríkissjóði meiri tekjum en nemur framlögum. Þetta er hugsað sem sárabót frá upphaflegri tillögu sem kvað á um rúmlega áttfalt hærri niðurskurð. Hvers vegna?Það er ekki svo að kvikmyndagerðarmenn skilji ekki að skera þarf niður. Þeir skilja bara ekki hvers vegna stjórnvöld leggja sig sérstaklega fram um að skera aðeins þessa tilteknu listgrein niður við trog. Eins og Bandalag íslenskra listamanna og hagsmunasamtök kvikmyndagerðarmanna hafa rækilega bent á, er niðurskurður af þessari stærðargráðu glapræði. Fjöldi starfa glatast, erlend fjárfesting fer forgörðum, tekjur ríkisins minnka en útgjöld aukast. Norsk stjórnvöld hafa tilkynnt að framlög til kvikmyndagerðar verði aukin um 8% á næsta ári. Var þegar vel í lagt hjá Norðmönnum, en engu að síður er þetta mesta hækkun í einu lagi á framlögum til kvikmyndagerðar þar í landi. Í þessu samhengi má benda á að samkvæmt samkomulagi menntamálaráðuneytis og aðila kvikmyndagerðar frá 2006 stóð til að auka framlög árið 2010 um 13%. Kvikmyndagerðarmenn hafa byggt upp starfsemi sína á undanförnum árum miðað við þetta samkomulag. Heildarniðurskurður 2010 miðað við samkomulagið og núverandi niðurskurðartillögu, nemur því um 36%. Raunlækkun er svo enn meiri. Verkin tala. Þessar tillögur, sem að sjálfsögðu eiga uppruna sinn í ráðuneytinu þrátt fyrir að ætla megi annað af málflutningi ráðherrans, sýna hvar áherslurnar liggja. Ráðherrann kýs að skera margfalt niður framlög til kvikmyndagerðar miðað við aðrar listgreinar. Nái þetta fram að ganga verður hinu mikla uppbyggingarstarfi áratugarins í kvikmynda- og sjónvarpsmyndagerð rústað, um leið og tekjur ríkissjóðs minnka enn frekar. Verður þetta arfleifð menningarmálaráðherrans? Höfundur er kvikmyndagerðarmaður og ritstjóri Iceland Cinema Now. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir Skoðun Loftslagsmál: tölur segja sögur en hvaða sögu viljum við? Ingrid Kuhlman Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Partí í Dúfnahólum 10 Þórlindur Kjartansson Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia Skoðun Skoðun Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál: tölur segja sögur en hvaða sögu viljum við? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar