Skoðun

Sameining sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu

Eftir bankakreppu hefur sameining sveitarfélaga komist aftur í umræðu. Jafnvel á höfuðborgarsvæðinu hafa ýmsir rætt þau mál óformlega. Flest sveitarfélög, m.a. á höfuðborgarsvæðinu, eru í miklum erfiðleikum vegna lækkandi tekna og framkvæmdastöðnunar. Álftanes stendur þar einna verst og nú eftir flopp D-listans með stofnun nær óstarfhæfs meirihluta er Sveitarfélagið Álftanes í andarslitrunum. Er lausnin að sameina, og/eða þarf að gerbreyta rekstri sveitarfélaga?

Hugmynd um að mynda eina yfirstjórn yfir öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hefur verið nefnd, eða jafnvel að sameina suðursveitarfélögin frá Kópavogi til Voga. Nú er komið að sveitarstjórnarmönnum að skoða alvarlega þessi mál. Raunhæfast er að gera það með stofnun starfshóps á vegum Samtaka sveitar­félaga á höfuðborgarsvæðinu.

Samfylkingin á Álftanesi ætlar að hefja þessa umræðu á opnum fundi og fær til sín góða gesti frá Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Þar mun íbúum höfuðborgar­svæðisins einnig gefast kostur á að leggja orð í belg. Fundurinn verður í hátíðarsal Íþróttamiðstöðvar Álftaness fimmtudaginn 3. des. kl. 20.

Höfundur er bæjarfulltrúi á Álftanesi.



Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Sjá meira


×