Þögn er sama og samþykki 9. desember 2009 06:00 Á síðustu vikum hafa greinar verið birtar í tilefni 16 daga átaks gegn ofbeldi. Mörg góð samtök eru að vinna þarft og gott starf í íslensku samfélagi bæði til að fyrirbyggja kynbundið ofbeldi og hjálpa þeim sem beittir eru ofbeldi. Starf Blátt áfram felst í því að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi og leggur helst áherslu á að fræða fullorðna um hvernig hægt er að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi á börnum. Lengi má telja þær alvarlegu afleiðingar kynferðislegs ofeldis en ég mæli með nýútkominni bók Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur, Á Mannamáli. Þar er gefin greinargóð lýsing á afleiðingum ofbeldisins bæði fyrir einstaklinginn og samfélagið. Blátt áfram eru sjálfstæð félagasamtök og er tilgangur samtakanna að efla forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi. Í upphafi starfsins árið 2004 kom fljótlega í ljós hversu lítil þekking var á málaflokknum á Íslandi. Fagfólk sem leitað var til í upphafi til að kynna starfið var á sama stað hvað varðaði skilningsleysi og ótta við að tala um kynferðislegt ofbeldi. Hvernig ofbeldi gerist og mikilvægi þess að tilkynna grun um ofbeldi. Þetta var okkur áhyggjuefni en um leið gaf okkur skilning á þeirri mótstöðu og viðbrögðum stjórnenda á mikilvægi þess að fræða starfsfólk sitt um kynferðislegt ofbeldi. Flest viðbrögðin voru, þetta gerist ekki hér - við þurfum ekki að tala um þetta - ertu að áska okkur um eitthvað? Með samúð og skilning á þeim mannlegu viðbrögðum sem við sáum aftur og aftur lögðum við fram staðreyndir málaflokksins sem og hinar mörgu leiðir til að fyrirbyggja ofbeldið. Ein af hverjum 5 stúlkum og einn af hverjum 10 drengjum eru beitt kynferðislegu ofbeldi fyrir 18 ára aldur samkvæmt rannsókn Hrefnu Ólafsdóttur félagsráðgjafa. Á síðastliðnum árum hefur sókn í fræðslu fyrir fullorðna, námskeiðið Verndarar barna, verið jafnt og þétt að aukast. Eru það góðar fréttir og er skilningur á mikilvægi þess að hvert og eitt okkar taki ábyrgð á þeirri þögn sem ríkir yfir kynferðislegu ofbeldi, að skila sér. Í fræðslunni finnum við að erfiðast er að ræða þetta við þá nánustu og að huga að þeim möguleika að ofbeldismann/konu gæti verið að finna í fjölskyldunni, eða í þjónustuhlutverkum þar sem við treystum öðrum fyrir börnum okkur nær 100%. Á námskeiðinu Verndarar barna fær einstaklingurinn, hvort sem hann er sálfræðingur, kennari, prestur eða faðir/móðir, tækifæri til að hugsa sig vel um, og tjá sig um hver er helsti óttinn við það að tala um kynferðislegt ofbeldi, eða við það að tilkynna grun um ofbeldi. Þetta er fyrsta skrefið. Þegar fólki tekst að yfirstíga óttann og sér að með því að velja að treysta sjálfum sér, tala um ofbeldi er það ekki lengur að samþykkja ofbeldi. Það er að taka ábyrgð á sér og sínum og er í leiðinni frábært fordæmi fyrir aðra í samfélaginu. Blátt áfram hefur reglulega boðið fjölmiðlafólki sem og hæstaréttardómurum á námskeiðið Verndarar barna og vil ég hér með minna á það sem og hvetja sem flesta til að sækja þetta námskeið sem samkvæmt rannsóknum (rannsókn Darkness to Light) breytir hegðun og tryggir öruggara umhverfi barna með því að rjúfa þögnina. Höfum hugrekki til að tala blátt áfram um kynbundið ofbeldi, samþykkjum það ekki með þögn okkar. Boðið er upp á námskeiðið Verndarar barna umhverfis landið, vinsamlegast heimsækið heimasíðu Blátt áfram til að finna leiðbeinanda í þínu bæjarfélagi. Höfundur er varaformaður samtakanna Blátt áfram. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar