Samfylkingin og Evrópusambandið 30. apríl 2009 06:00 Ýmsir talsmenn Samfylkingarinnar fóru mikinn í Evrópuumræðunni í nýliðinni kosningabaráttu. Sögðu þeir Íslendinga bókstaflega verða að ganga í Evrópusambandið sem allra fyrst. Annars yrði hér allsherjar efnahagshrun, stórfelldur fyrirtækja- og fólksflótti og viðvarandi svartnætti. Íslendingar ættu ekkert val. Þessir talsmenn Samfylkingarinnar byggja afstöðu sína á bölskoðun á íslensku efnahagslífi og brennandi trú á Evrópusambandinu sem fátt virðist geta haggað. Jafnframt hafa þessir sömu talsmenn sagt að tafarlaus undirbúningur að aðild að Evrópusambandinu sé skilyrði í stjórnarsamstarfi við aðra flokka. Sumir þessarra talsmanna bæta því samt við að þeir séu ekkert endilega að leggja til að Ísland gangi í ESB - þeir séu bara að berjast fyrir því að Íslendingar sæki um og semji um aðild að ESB til að gá og sjá hvað við fáum í svona samingi. Þjóðin geti svo tekið afstöðu til samningsins. Að gá og sjáEn er þetta trúverðugur málflutningur? Ef áhugi þessara talsmanna á inngöngu er svo brennandi sem þeir láta, samanber málflutninginn um að Íslendingar „verði að ganga þarna inn", hverju eru þeir þá tilbúnir að fórna fyrir samninginn? Getur þá verið að afstaða þeirra til aðildarviðræðna sé bara að „gá og sjá"? Rétt er að hafa í huga í þessu sambandi að ESB fer tæplega í aðildarviðræður við þjóðir sem ætla bara að semja til prufu. Aðildarumsókn mætir þeirri eðlilegu kröfu af hálfu ESB að um ásetning og vilja til inngöngu sé að ræða hjá viðkomandi stjórnvöldum. Þegar aðildarsamningur er frágenginn gerir ESB jafnframt þá eðlilegu kröfu að viðkomandi stjórnvöld standi að baki slíks samnings og vinni með ráðum og dáð að samþykkt hans í viðkomandi ríki. SjávarútvegsstefnanAðildarumsóknir einstakra ríkja á undanförnum árum hafa fylgt þeirri forskrift. Við þetta má svo bæta að ríki sem hyggjast ganga í ESB verða að gera sér grein fyrir því í upphafi að þau fara inn í sambandið til að vera og fara ekki þaðan út aftur þótt þau kunni að telja síðar að það þjónaði betur hagsmunum þeirra. Þessir hörðu talsmenn Samfylkingarinnar í Evrópumálum hafa lýst því yfir að þeir myndu ekki styðja samning og inngöngu í ESB sem fæli í sér að Íslendingar afsöluðu sér forræði yfir náttúruauðlindum sínum. En er þetta raunhæfur málflutningur? Ef eitthvað liggur yfirleitt fyrir um innihald hugsanlegs aðildarsamnings Íslands og ESB, er það einmitt hin ófrávíkjanlega krafa ESB (samkvæmt öllum helstu talsmönnum sambandsins) að Ísland félli undir auðlindastefnu sambandsins og að forræði og yfirstjórn auðlindanýtingar, svo sem aflaheimildir og veiðistjórn, færðist til sambandsins (Ísland fengi í mesta lagi einhvern aðlögunartíma). Hér er rétt að hafa í huga að fiskveiðistjórnun Evrópusambandsins hefur verið í miklum ólestri á undanförnum árum sökum margs konar undanbragða og ofveiði. Nýjar hugmyndir sem fram hafa komið innan sambandsins fela í sér að landskvótareglan um „hlutfallslegan stöðugleika" verði endurskoðuð eða lögð niður. Þetta er þó einmitt sú regla sem harðir Evrópusinnar hafa talið að myndi vera Íslendingum traust vörn við úthlutun aflaheimilda ef þeir gengju inn í sambandið. Evran og efnahagslífiðLoks hafa hinir hörðu talsmenn sagt að Íslendingar þurfi að ganga sem fyrst í Evrópusambandið til að taka upp evru svo rétta megi efnahahagslífið við. En er það trúverðugur málflutningur? Innganga í ESB tryggir engan veginn upptöku evru. Hér er um tvö mál að ræða. Ýmis ríki ESB uppfylla ekki skilyrði sambandsins fyrir upptöku evru og hafa aldrei gert. Íslendingar hafa heldur ekki uppfyllt öll þessi skilyrði samtímis og ekki útlit fyrir að svo verði á næstu árum. Til viðbótar kemur svo að ef af upptöku evru yrði einhvern tíma í framtíðinni tryggði það ekki Íslendinga gegn efnahagslegum áföllum og erfiðleikum. Nægir þar að nefna reynslu Spánverja og Íra.Loks er að nefna að Evrópusamstarfið felur í sér pólitískt ekki síður en efnahagslegt samstarf og samrunaþróun. Embættismenn í Brussel og stjórnmála- og áhrifamenn aðildarríkja Evrópusambandsins sem skemur vilja ganga á hinni pólitísku braut vilja auka vægi sambandsins sem yfirþjóðlegrar valdstofnunar og draga sem því svarar úr valdi þjóðríkjanna sem mynda bandalagið, en þeir sem lengst vilja ganga innan sambandsins stefna að evrópsku stórríki með afnámi fullveldis aðildarríkjanna sem yrðu fylki og héruð í evrópska stórríkinu. Hér má minna á viðeigandi orð Uffe Elleman Jensen á dögunum um að lönd sem ætla sér inngöngu í Evrópusambandið verði að hafa áhuga á hinu pólitíska samstarfi og samruna. Menn gangi ekki inn í Evrópusambandið einungis á efnahagslegum forsendum.Galli á málflutningi hinna hörðu stuðningsmanna Evrópuaðildar er hve umræðan er þröng í kringum tiltekin efnahagsleg atriði, hve kostir ESB-aðildar eru illa rökstuddir og hve lítið er gert úr ókostunum sé yfirleitt á þá minnst. Úr verður áróður í stað þeirrar upplýsandi umræðu sem mikil þörf er á um þessar mundir.Höfundur er prófessor í félagsfræði. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þú þarft líklega ekki að taka símann og hleðslutækið úr svefnherberginu Ásdís Bergþórsdóttir Skoðun Þögnin í áramótaávarpi forsætisráðherra Daði Freyr Ólafsson Skoðun Hvað tengir typpi og gullregn? Kristján Friðbertsson Skoðun Á krossgötum Alexandra Briem Skoðun Jólapartýi aflýst Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Guðbjörg verður áfram gul Reynir Traustason Skoðun Hverjum voru ráðherrann og RÚV að refsa? Júlíus Valsson Skoðun Hinir „hræðilegu“ popúlistaflokkar Einar G. Harðarson Skoðun Borg á heimsmælikvarða! Skúli Helgason Skoðun Jólareglugerð heilbrigðisráðherra veldur usla Alma Ýr Ingólfsdóttir,Telma Sigtryggsdóttir,Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Skoðun Skoðun Þú þarft líklega ekki að taka símann og hleðslutækið úr svefnherberginu Ásdís Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Á krossgötum Alexandra Briem skrifar Skoðun Þögnin í áramótaávarpi forsætisráðherra Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Borg á heimsmælikvarða! Skúli Helgason skrifar Skoðun Veiðiráðgjöf byggð á ágiskunum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Loftgæði mæld í Breiðholti - í fyrsta sinn í 12 ár Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað tengir typpi og gullregn? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Er áramótaheitið árið 2026 betri skjávenjur? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar eiga krakkarnir að vera á nýju ári? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hinsegin Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Leiðtogi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Sögulegt ár í borginni Skúli Helgason skrifar Skoðun Fimmtán algengar rangfærslur um loftslagsbreytingar – og hvað er rétt Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Öryggið á nefinu um áramótin Eyrún Jónsdóttir,Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Þegar höggbylgjan skellur á Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Hefur þú rétt fyrir þér? Svarið er já Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Markmiðin sem skipta máli Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Netverslun með áfengi og velferð barna okkar Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Við gerum það sem við sögðumst ætla að gera Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Stingum af Einar Guðnason skrifar Skoðun Guðbjörg verður áfram gul Reynir Traustason skrifar Skoðun Kvennaár og hvað svo? Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Hinir „hræðilegu“ popúlistaflokkar Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Hafnarfjörður í mikilli sókn Orri Björnsson skrifar Skoðun Jólapartýi aflýst Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Umbúðir, innihald og hægfara tilfærsla kirkjunnar Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Hættuleg þöggunarpólitík: Hvernig hræðsla og sundrung skaða framtíð Íslands Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Jólareglugerð heilbrigðisráðherra veldur usla Alma Ýr Ingólfsdóttir,Telma Sigtryggsdóttir,Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Verðmæti dýra fyrir jörðina er ekki mælanlegt í krónum Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið grípur of seint inn: Um börn og unglinga í vanda, úrræðaleysi og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar Kristín Kolbeinsdóttir skrifar Sjá meira
Þú þarft líklega ekki að taka símann og hleðslutækið úr svefnherberginu Ásdís Bergþórsdóttir Skoðun
Jólareglugerð heilbrigðisráðherra veldur usla Alma Ýr Ingólfsdóttir,Telma Sigtryggsdóttir,Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Skoðun Þú þarft líklega ekki að taka símann og hleðslutækið úr svefnherberginu Ásdís Bergþórsdóttir skrifar
Skoðun Fimmtán algengar rangfærslur um loftslagsbreytingar – og hvað er rétt Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Hættuleg þöggunarpólitík: Hvernig hræðsla og sundrung skaða framtíð Íslands Nichole Leigh Mosty skrifar
Skoðun Jólareglugerð heilbrigðisráðherra veldur usla Alma Ýr Ingólfsdóttir,Telma Sigtryggsdóttir,Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Þegar kerfið grípur of seint inn: Um börn og unglinga í vanda, úrræðaleysi og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar Kristín Kolbeinsdóttir skrifar
Þú þarft líklega ekki að taka símann og hleðslutækið úr svefnherberginu Ásdís Bergþórsdóttir Skoðun
Jólareglugerð heilbrigðisráðherra veldur usla Alma Ýr Ingólfsdóttir,Telma Sigtryggsdóttir,Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun