Viðskipti innlent

Greiðslustöðvun SPM framlengd til 30. júní

Í dag var greiðslustöðvun Sparisjóðs Mýrarsýslu (SPM) framlengd til 30. júní. Tilgangur greiðslustöðvunarinnar er undirbúa nauðasamninga við lánadrottna á grundvelli samkomulags við helstu lánadrottna sjóðsins, að því er segir í tilkynningu.

Umsjónarmaður í greiðslustöðvun er Sigurður Arnalds hæstaréttarlögmaður.

Eins og greint var frá í fréttatilkynningu sem birtist í kauphöllinni þann 27. apríl síðastliðinn fékk SPM greiðslustöðvun í þrjár vikur.

Lánardrottnum verða kynnt drög að nauðasamning fyrir SPM á næstu dögum. Ef nauðasamningar nást er stefnt að sameiningu SPM og Nýja Kaupþings banka hf.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×